Morgunblaðið - 27.09.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011
Það eru bara hlýjar minningar
sem fara um hugann þegar ég
minnist hennar Siggu Ólafs eins
og við kölluðum hana í Barð-
strendingafélaginu. Mér fannst ég
alltaf eiga smá mömmu í Siggu,
hún var alltaf svo hlý og góð.
En þessi kveðja til Siggu er
ætluð til að þakka henni allt sem
hún gerði fyrir Barðstrendinga-
félagið. Sigga var búin að starfa
fyrir félagið lengi þegar ég byrjaði
þar og var þá búin að fara margar
vinnuferðir í Bjarkalund og vinna
félaginu mikið hér fyrir sunnan
meðal annars í kvennanefnd fé-
lagsins sem sá um skírdagskaffi
fyrir eldri félaga ásamt mörgu
öðru.
Samstarf okkar Siggu byrjaði
þegar stofnuð var Kvennadeild
Barðstrendingafélagsins af
Sigríður Ingunn
Ólafsdóttir
✝ Sigríður Ing-unn Ólafsdóttir
fæddist í Flatey á
Breiðafirði 26.
september 1912.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu Eir
23. ágúst 2011.
Útför Sigríðar
fór fram frá Bú-
staðakirkju 2. sept-
ember 2011.
nokkrum konum að
vestan og voru þær
systur Sigga, Vigga
og Lóló í þeim fé-
lagsskap. Sigga átti
mikinn þátt í vel-
gengni deildarinnar
með sínu góða fram-
lagi. Við fengum til
dæmis að nota hús-
næði sem Óskar
maður Siggu hafði
ráð yfir til funda og
vinnu fyrir fjáröflunardaginn,
þetta framlag þeirra var mikils
virði fyrir fjáröflun deildarinnar,
enda var fljótlega bætt ferðalagi
fyrir eldri Barðstrendinga við
starfsemi deildarinnar. Þau góðu
hjón áttu því stóran þátt í hvað vel
gekk í starfi Kvennadeildarinnar
og margt var hægt að gera fyrir
eldra fólk úr sýslunni.
Ég vil með þessum kveðjuorð-
um þakka Siggu allt sem hún
gerði fyrir Barðstrendingafélagið
og allt sem hún var mér þau átta
ár sem ég starfaði sem formaður
kvennadeildar, hennar góðu ráð
voru mikils virði.
Innilegar samúðarkveðjur til
afkomenda og systkina Siggu. Við
biðjum henni guðs blessunar og
góðra endurfunda við Óskar sinn.
Ásta Jónsdóttir.
Í nokkrum orðum langar okkur
að minnast hennar Elfu og þakka
fyrir 15 ára sambýli í blokkinni
okkar í Hraunbæ 150.
Það var góður hópur fólks sem
flutti inn í nýbyggða blokk í
Hraunbæ 150 upp úr 1965. Frá
upphafi skapaðist góður andi og
samheldni milli fjölskyldnanna í
þessari litlu blokk. Á móti okkur á
gangi bjó hún Elfa ásamt sinni
elskulegu fjölskyldu. Okkur varð
strax ljóst að þar fór einstök kona,
elskuleg og broshýr, hjálpsöm og
forkur dugleg. Hún Elfa var hús-
móðir í bestu merkingu þess orðs,
góð móðir, mikil búkona sem bak-
aði og matbjó frá grunni þjóðlegan
mat og flest sem þurfti til heimilis-
ins, einnig það sem við yngri hús-
mæður keyptum tilbúið úr versl-
unum. Svo gekk hún í öll verk,
kom jafnt til dyranna með prjóna,
skrúfjárn eða sleif í hendi.
Dóttir okkar Birna og Dísa
Elfa Ólafsdóttir
✝ Elfa Ólafs-dóttir fæddist á
Laugarvatni, Ár-
nessýslu, 23. janúar
1938. Hún lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 3.
september 2011.
Útför Elfu fór
fram frá Árbæj-
arkirkju 14. sept-
ember 2011.
dóttir Elfu voru
bekkjarsystur og
vinkonur. Birna seg-
ist fyrst hafa smakk-
að ýmsan þjóðlegan
mat eins og sviða-
kjamma hjá Elfu. Og
eitt sinn kom hún frá
Dísu og spurði: „Af
hverju er ekki kvöld-
vaka hjá okkur eins
og heima hjá Dísu?“
Og átti þá við að
heimilisfólkið settist inn í eldhús á
kvöldin, fékk sér bita og spjallaði
saman. Á þessum tíma var Elfa
heimavinnandi og það var gott
fyrir okkur útivinnandi foreldra
að vita af Elfu heima, ósjaldan
hlustaði hún eftir okkar börnum
og fylgdist með því að allt væri í
lagi hinum megin við ganginn.
Elfa og Sigurður voru orðin ein
eftir af frumbyggjunum í blokk-
inni okkar, í sinni björtu rúmgóðu
íbúð. Við nágrannarnir úr Hraun-
bænum höfum haldið sambandi
gegnum árin.
Við þökkum Elfu fyrir einstak-
lega gott sambýli, alúðina og
hlýjuna sem hún alltaf sýndi okk-
ur. Að lokum viljum við votta Sig-
urði og börnum hans og þeirra
fjölskyldum okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning góðrar konu.
Fyrrum nágrannar,
Elín Agnarsdóttir og
Þórður Skúlason.
Áður en ég kvaddi
Rögnu eftir ánægju-
lega heimsókn í Tómasarhaga 12 í
mars síðastliðnum gerði ég mér
erindi aftur inn í stofu. Ég varð að
fá tíma til að kyngja grátnum og
sjá einu sinni enn vistlegu og fal-
legu stofuna þeirra Rögnu og Ög-
mundar heitins Helgasonar
frænda míns, þar sem ég hafði átt
svo margar góðar stundir, sem ég
nú vissi að yrðu ekki fleiri. Svo
herti ég mig upp og kvaddi hana
og fjölskylduna með tali um end-
Ragna
Ólafsdóttir
✝ Ragna Ólafs-dóttir fæddist í
Neskaupstað 7. maí
1944. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 10. ágúst 2011.
Útför Rögnu var
gerð frá Neskirkju
19. ágúst 2011.
urfundi von bráðar
því að við vorum að
undirbúa væntan-
lega heimsókn henn-
ar og fjölskyldunnar
til mín í Svíþjóð í
maí. En við vissum
öll að þótt hún væri í
strangri meðferð,
sem í fyrstu virtist
bera nokkurn árang-
ur, þá yrði sigurinn
ekki hennar að lok-
um. Mig langaði mest til að halda
lengi í höndina á henni og þakka
henni fyrir að ég skyldi fá að bind-
ast henni vináttuböndum, þakka
henni fyrir allar skemmtilegar
stundir á liðnum árum, sem alltaf
hefðu mátt vera bæði fleiri og
lengri, en ég gerði það ekki, ennþá
héldum við öll í þá von að dagar
hennar og mánuðir yrðu fleiri en
þeir urðu áður en yfir lauk.
Ég heyrði fyrst getið um
Rögnu þegar ég var unglingur
heima á Akureyri og hún og Ög-
mundur heitinn, sem voru bæði í
menntaskólanum, voru byrjuð að
vera saman. Ögmundur var í
miklu uppáhaldi hjá frændfólki
okkar, þremur ógiftum og barn-
lausum systkinum, sem strax tóku
einnig miklu ástfóstri við Rögnu.
Ég man hvað augu Jóu frænku
ljómuðu þegar hún minntist á
hana og hvað ég var hissa á því.
Jóa frænka var ekki allra og ég
mundi ekki eftir að hún hefði
nokkurn tíma talað svona innilega
um nokkurn mann, nema auðvitað
Ögmund. Ögmundur var for-
stöðumaður handritadeildar
Landsbóksafns þegar ég kom
þangað 1997 til að stunda rann-
sóknir á rúnahandritum í eigu
safnsins. Þá kynntist ég honum og
fjölskyldu hans og þegar ég sá
Rögnu skildi ég Jóu frænku strax.
Enginn gat kynnst henni án þess
að vilja eiga hana fyrir einkavin
alla ævi. Ragna var falleg, vin-
gjarnleg og blátt áfram, smart og
einstaklega skemmtileg. Hún var
skorinorð og hafði skýrar skoðan-
ir á mönnum og málefnum, en hún
var ekki allra frekar en Jóa
frænka. Hún var einnig röggsöm,
stjórnsöm og útsjónarsöm og þeir
eiginleikar hafa áreiðanlega kom-
ið henni að góðum notum á langri
starfsævi sem kennari og síðar
skólastjóri Melaskólans í Reykja-
vík.
Af frábæru hugrekki og still-
ingu studdi hún Ögmund og Grétu
systur sína í sársaukafullri bar-
áttu þeirra við ólæknandi krabba-
mein og fylgdi þeim báðum til
grafar sama ár, 2006. Af sömu ein-
beitni gekk hún sína eigin þrauta-
göngu til enda og hélt í hina veiku
von um bata eins lengi og hún gat.
Þegar ég horfi á myndina sem ég
fékk síðastliðin jól af Rögnu með
barnabörnin sín fjögur, broshýr
og falleg áður en reiðarslagið
dundi yfir, finn ég að við öll, börn
hennar, barnabörn, systkini, nán-
ir ættingjar, aðstandendur og stór
vinahópur sættum okkur ekki við
örlög hennar og munum ekki láta
huggast þótt tímar líði, en yfir
minningu hennar hvílir þegar frið-
ur og ljómi í hugum okkar, sem
ekki mun dofna þótt fram líði
stundir.
Þórgunnur Snædal
og fjölskylda.
Samfylkingarbrids
Félagar í Samfylkingunni í Reykja-
vík verða með bridskvöld tvisvar í mán-
uði í vetur. Spilað er annan og fjórða
þriðjudag í mánuði. Spilað er að Hall-
veigarstíg 1, annarri hæð, og hefst
spilamennskan kl. 20 stundvíslega.
Næst er spilað 11. okt. Tilvalið fyrir
heimabridsfólk sem vill komast út á
meðal jafningja og spila.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 25.9. var spilaður eins
kvölds tvímenningur. Hæsta skor
kvöldsins í N/S í %:
Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 59,58
Garðar Jónss. – Sigurjón Ú. Guðmss. 55
Sigurjóna Björgvinsd. – Gunnar Guðmss. 50
A-V:
Oddur Hanness. – Árni Hannesson 62,08
Bergljót Aðalstd. – Björgvin Kjartanss. 59,58
Erlingur Þorsteinss – Björn Arnarson 55,83
Næsta sunnudag, 2.10., hefst fjög-
urra kvölda tvímenningskeppni. Spilað
er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á
sunnudögum kl. 19.
Vetrarstarf Bridsfélags
Kópavogs er hafið
Fyrsta keppni vetrarins hófst
fimmtudaginn 22. sept og er það þriggja
kvölda hausttvímenningur. Spilaður er
Monrad-barómeter þar sem hvert
kvöld er spilað sjálfstætt og samanlögð
prósentuskor gildir til verðlauna. Þann-
ig er hægt að bæta við nýjum pörum en
þau geta þó ekki unnið til verðlauna.
Staða efstu para er þessi: (%-skor)
Guðm. Grétarss. - Stefán R. Jónss. 60,7%
Heimir Þ. Tryggvas. - Árni M. Björnss. 58,9
Eðvarð Hallgrímss. - Guðl. Bessason 55,4
Erla Sigurjónsd. - Guðni Ingvarsson 54,3
Hjálmar Pálss. - Kristján B. Snorras. 54,3%
Spilað er í Gjábakka, Fannborg 8,
aftan við Landsbankann við Hamra-
borg.
Eldri borgarar Hafnarfirði
Föstudaginn 23. september var spil-
að á 14 borðum hjá FEBH með eftirfar-
andi úrslitum í N/S:
Örn Ingólfsson – Örn Ísebarn 364
Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen 359
Albert Þorsteins. – Guðmundur Péturss. 341
Skarphéðinn Lýðss. – Sverrir Jónsson 339
Friðrik Hermanns. – Sæmundur Björns. 332
A/V:
Auðunn Guðmss. – Sigtryggur Sigurðss. 374
Ásgeir Sölvason – Vilhjálmur Jónsson 357
Einar Markússon – Sverrir Gunnarsson 340
Jóhann Benediktss. – Hulda Mogensen 338
Katarínus Jónsson – Þorvaldur Þorgrss. 329
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Elsku Ella mín. Þín er sárt
saknað. Við kynntumst á DV fyrir
18 árum, við erum búnar að vera
góðar vinkonur alla tíð síðan. Það
var ekki létt að kynnast þér, en að
lokum náðum við vel saman. Þínir
kostir voru margir og þar nefni
ég hörkudugleg, heiðarleg, ósér-
hlífin, hreinskilin. Ég tel það hafa
verið hrein forréttindi að eiga þig
að vinkonu, Ella mín.
Takk fyrir skemmtilegu mat-
arboðin þín, þú varst höfðingi
heim að sækja. Þú bauðst mér á
tónleika í vor, blús á Nordica með
Vasa Jackson, ógleymanlegt
gaman, gaman hjá okkur.
Nokkru seinna fórum við á tón-
leika með Megasi mínum, þeir
klikka aldrei. Manstu þegar kon-
an stóð upp á miðjum tónleikum
og öskraði yfir salinn: Við elskum
þig öll, Megas.
Síðan fórum við á tónleika með
Andreu Gylfadóttur, hún er góð
líka. Við skemmtum okkur alltaf
vel saman. Þetta kvöld keyrðir þú
mig heim, og þá gerði ég mér
fyrst grein fyrir, hvað þú varst
sárþjáð, Ella mín. Þú varst fædd
hetja, þú lést ekkert buga þig,
Elínborg Jóna
Rafnsdóttir
✝ Elínborg JónaRafnsdóttir
fæddist 5. janúar
1956. Hún lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans í
Fossvogi miðviku-
daginn 7. sept-
ember 2011.
Útför Elínborgar
fór fram frá Bú-
staðakirkju 16.
september 2011.
enda eins gott, þú
fékkst ekkert borið í
þig á silfurfati á
þinni stuttu ævi.
Ung áttir þú Rabba
son þinn, eina barn-
ið þitt. Þú menntað-
ir hann. Rabbi stóð
vel undir vænting-
um, kláraði námið
og reyndist þér góð-
ur sonur og góður
faðir barna sinna,
enda máttir þú vera stolt af syni
þínum.
Elsku Ella mín, takk fyrir öll
18 árin, guð verði með þér.
Elsku Rabbi, Kristín og börn,
megi ljósið og friðurinn umvefja
ykkur og minningin um góða
móður ömmu og tengdamóður
ylja ykkur um ókomin ár.
Þegar komstu þá var hlýtt,
þau voru okkar kynni,
allt var göfugt, gott og blítt
er gafst í návist þinni,
ef að jarðlífs mæddu mein
mest var kærleiksdáðin,
skorinorð og hjartahrein
hollust gafstu ráðin.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Þín vinkona,
Vigdís Unnur
Gunnarsdóttir.
Skilafrestur | Ef óskað er eft-
ir birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför dóttur
minnar, systur okkar og mágkonu,
ÁSLAUGAR GUÐJÓNSDÓTTUR
hdl.,
Garðastræti 45.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
líknardeildar Landspítalans í Kópavogi.
Guðrún Stefánsdóttir,
Jóhann Geir Guðjónsson, Ingibjörg Einarsdóttir,
Gunnar Guðjónsson,
Stefán S. Guðjónsson, Helga Ottósdóttir,
Guðjón Hólm Guðjónsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR SIGURJÓNSSONAR,
Teigagerði 12.
Sérstakar þakkir til deilda 14 E-G og 11E á
Landspítalanum við Hringbraut fyrir góða
umönnun síðustu vikurnar.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Hjálmsdóttir,
Reynir Sigurðsson, Þórrún Þorsteinsdóttir,
Sigurður Sigurðsson, Ingibjörg J. Eiríksdóttir,
Ragnar Sigurðsson, Sigríður Jenný Guðmundsdóttir,
Steinunn Sigurðardóttir, Bjarni Vésteinsson,
Sigríður Rut Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra
FINNS JÓNSSONAR
verkfræðings,
Heiðarlundi 8,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til Ásgerðar Sverrisdóttur og Eiríks Jónssonar
og alls þess góða fólks sem annaðist Finn í veikindum hans.
Einnig fær Lúðrasveit Reykjavíkur kærar þakkir fyrir framlag sitt
við útförina.
Þórunn Sigurðardóttir,
Sigurður Finnsson, Lisa Finnsson,
Ólöf Finnsdóttir, Helgi Sigurðsson,
Guðrún Finnsdóttir, Orri Þór Ormarsson,
Hulda Björk Finnsdóttir, Kristbjörn Búason.
✝
Útför okkar elskuðu
HJÖRDÍSAR LINDU JÓNSDÓTTUR
fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn
28. september kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast Hjördísar er bent á styrktar-
reikning barna hennar, 0549-14-405060,
kt. 300147-4109.
Ástvinir.