Morgunblaðið - 27.09.2011, Síða 17

Morgunblaðið - 27.09.2011, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 Vætutíð Hún er komin blessuð haustrigningin með sínum notalegu hlýindum en vissulega þónokkrum gráma eins og þessi mynd ber með sér sem tekin var út um ótal glugga Hörpunnar. Eggert Hafnarfjörður er ekki fyrsta og sennilega ekki síðasta sveitarfélagið á Ís- landi og þótt víðar væri leitað sem lendir í greiðsluvanda. Und- anfarin misseri hafa lán- veitendur um heim allan endursamið til hæfis skuldurum og á það jafnt við um einstaklinga, fyr- irtæki og sveitarfélög. Vandamálið í Hafn- arfirði er að núverandi meirihluti Sam- fylkingar og vinstri grænna neitar að horfast í augu við hina grafalvarlegu stöðu sem við blasir og hyggst greiða að fullu erlendum kröfuhöfum og senda framtíðinni reikninginn með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hinn 14. september síðastliðinn var end- urfjármögnun lána bæjarfélagsins á dagskrá að beiðni fulltrúa sjálfstæð- ismanna í minnihluta bæjarstjórnar. Þar ítrekuðu sjálfstæðismenn áhyggjur sín- ar af erfiðri fjárhagslegri stöðu sveitar- félagsins og hinni þungu greiðslubyrði sem við blasir vegna fyrirhugaðrar end- urfjármögnunar. Samkvæmt vænt- anlegum skilmálum endurfjármögnunar má gera ráð fyrir að erlend lán og fleiri skuldir bæjarins, samtals að upphæð um 14 milljarðar, verði endurfjármagnaðar með afar óhagstæðum vaxtakjörum. Hætta er á að þessi háu vaxtakjör muni sliga bæjarsjóð næstu árin og jafnvel áratugina. Forsendur áætlunar brostnar Sjálfstæðismenn hafa ennfremur lýst undrun á því hversu langan tíma endur- fjármögnunin hefur tekið og hversu seint farið var í viðræður. Ljóst hefur verið í þó nokkurn tíma að ekki yrði um endurfjármögnun að ráða af hendi hins erlenda lánardrottins, skilanefndar DEPFA-bankans, þar sem sú stofnun er í slitameðferð. Meirihluta Samfylkingar og Vinstri-grænna tókst ekki að endurfjármagna á vor- mánuðum 4,3 milljarða sem hafa því verið í vanskilum síðan í apríl. Af þessum sök- um gjaldféllu önnur lán bæjarins hjá sömu stofnun í samræmi við ákvæði í lána- samningum. Þegar við bæt- ast svo lausaskuldir bæj- arsjóðs og óuppgerður fjármagnstekjuskattur vegna sölu á eignarhlut bæjarins á hlut í HS Orku, sem og veiking krónunnar á árinu, þá er fjárhæð endurfjármögnunar rúmlega 14 milljarðar eins og áður hefur komið fram. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að þar sem svo margar forsendur í fjárhagsúttekt þeirri sem liggur til grundvallar endurfjármögnun lána sveitarfélagsins eru brostnar sé erfitt að sjá hvernig bæjarfélagið eigi að geta staðið undir þeirri greiðslubyrði sem fyrirhugaðri endurfjármögnun mun fylgja. Því beri að leita aftur til skilanefndar DEPFA-bankans og reyna að end- ursemja við þrotabúið. Samhliða þarf að vinna heildstæða áætlun um fjárhags- lega endurskipulagningu allra skulda og skuldbindinga sveitarfélagsins. Slík áætlun verður að taka mið af greiðslu- þoli sveitarfélagsins í samræmi við lög- boðnar skyldur þess. Eftir Helgu Ingólfsdóttur »Hætta er á að þessi háu vaxtakjör muni sliga bæjarsjóð næstu árin og jafnvel áratugina. Helga Ingólfsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Nauðsynlegt að end- ursemja um skuldir Hafnarfjarðar Hvaðanæva úr heiminum berast fréttir um neyðarfundi ráðamanna og neyðaráætlanir til þess að koma í veg fyrir allsherjar heimskreppu. Nýlega söfnuðust fulltrúar Alþjóðabankans, AGS og G20 með sterkustu efnahags- ríkjum heims til fundahalda í Wash- ington. Bæði Christine Lagarde, AGS, og Robert Zoellick, Alþjóðabankanum, skutu föstum skotum að stjórnmála- mönnum og vöruðu við, að skuldafjöllin í Bandaríkjunum og Evrópu hótuðu að „kæfa“ efnahag alls heimsins. Um allan heim taka fyrrum evrutrúaðir sinnaskiptum og hafa algjörlega snúið við blaðinu og viðurkenna núna, að evruverkefnið hafi verið dauðadæmt frá byrjun. Einn sem ekki skefur utan af hlutunum, fjármála- maðurinn Charles Gaves, sem fylgst hefur með hlutabréfamörkuðum í meira en 40 ár, segir í viðtali við Dagens Industri í Svíþjóð: „Það eina, sem getur bjargað Evrópu, er að aflífa evruna. Það er ekki til nein töfraformúla til að leysa vandamál evrusvæð- isins. Stjórnmálamennirnir hafa skapað kerfi sem hvorki virkar né þeir geta komist út úr.“ Gaves bætir við: „Það eru ekki skuldirnar heldur skortur á hag- vexti vegna evrunnar, sem hefur eyðilagt Suður- Evrópu. Evran er teknókratískt skrímsli.“ Næstum allar ríkisstjórnir evrusvæðisins hafa gripið til mikils niðurskurðar til að minnka fjár- málahalla og endurheimta traust markaða. En Charles Gave gefur ekki mikið fyrir sveltkúra stjórn- málamanna: „Að hækka skatta og skera í velferð- arkerfi leysir akkúrat ekki neitt. Frakkland, Spánn, Ítalía, Portúgal og mörg önnur lönd verða ekki sam- keppnishæf á meðan þau geta ekki gengisfellt gjald- miðla sína en það geta þau ekki gert vegna evr- unnar.“ Eina leiðin út úr kreppu ESB er að leggja niður evruna. En leiðin út úr myntsamstarfinu getur orðið sársaukafull að mati Gaves: „Algjör ringulreið er versti en líklegasti möguleikinn. Stjórnmálamenn sem reynst hafa óhæfir í tíu ár, hvers vegna ættu þeir allt í einu að verða hæfir núna?“ spyr hann. „Mörgum finnst þeir hafa verið sviknir. Evrukrat- arnir reyndu að framkvæma pólitískt valdarán og skapa eitt Evrópuríki, þegar evran var innleidd. En almenningur í Evrópu vill ekkert hafa að gera með slíkt ríki. Núna koma mótviðbrögðin,“ segir Gave. Charles Gave líkir ástandinu í Grikklandi við „væga innanlandsstyrjöld“. Margir sænskir sérfræð- ingar eru sammála mati Gaves, að óró- leikinn í Grikklandi muni vaxa og að lok- um breiðast út til annarra landa í Evrópu. Mark Rhinhard hjá Utanrík- ispólitísku stofnuninni í Svíþjóð telur, að stjórnmálamenn séu í skrúfstykki: „Stjórnmálamennirnir eru klemmdir á milli þrýstings frá markaðinum og al- mennings, milli eigin orða og takmörk- unar laganna. Þetta er hættulegt sam- band sem endar líklega á allt annað en fallegan hátt.“ Augljóst er, að áframhaldandi aðgerð- ir stjórnmálamanna, sem hingað til hafa aðeins aukið á kreppuna, munu enn frekar dýpka kreppuna, þegar áfram er keyrt í sömu hjólförum. Evrukratarnir bera þunga ábyrgð á þeirri sjálf- heldu sem ríki myntbandalagsins sitja föst í. Tjónið af völdum misheppnaðrar evrutilraunar fær tjónið, sem Íslendingar urðu fyrir vegna hryðjuverkalagaárásar ríkisstjórnar Gordons Browns, til að líkjast logni mið- að við þann storm, sem í vændum er. Það fer því að harðna allverulega á dalnum og ættu allir að huga að björgunarbátunum. Íslendingar eru vanir að bretta sjálfir upp ermarnar og berjast fyrir lífinu og gerðu best í því að stöðva leka þjóðarskút- unnar með kröfu um þingrof og nýjar alþingiskosn- ingar. Yrði það góð byrjun á þeim verkefnum, sem framundan eru. Evrukratar Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna bera fulla ábyrgð á að hafa komið Íslendingum í nú- verandi sjálfheldu með aðildarumsókninni að ESB og upptöku evrunnar og með því að standa í vegi fyrir hagvexti á Íslandi. Að taka lán til að gera út flota at- vinnuleysingja og húsnæðislausra leysir ekki frekar vandamálin á Íslandi en í Evrópusambandinu. Ríkisstjórn, sem blind eltir og keðjar sig fasta við sömu óráðsíu og ógnar velferð alls heimsins, á ekki heima á Íslandi. Eftir Gústaf Adolf Skúlason » „Það eina, sem getur bjargað Evrópu, er að aflífa evruna … Stjórnmálamennirnir hafa skapað kerfi sem hvorki virkar né þeir geta komist út úr.“ Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fv. ritari Evrópusamtaka smáfyrirtækja. Evran verður að fá að deyja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.