Morgunblaðið - 27.09.2011, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.09.2011, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 Ung hjón, Elisa og San-tiago, koma ásamttveggja ára barni sínu ígamalt hús í sveitinni. Elisa er kona, sem var á uppleið, en hefur sett starfsframann til hlið- ar vegna barnsins. Hann valdi hús- ið og hún hefur aldrei séð það áður. Strax í upphafi er ljóst að dvölin í sveitinni leggst illa í Elisu. Hún heyrir hljóð og dynki, nágrannarnir vekja tortryggni hennar og hún hefur áhyggjur af dóttur sinni. Ekki bætir úr skák að ekki hefur verið búið í húsinu um tíma og ljóst að það muni krefjast talsverðra við- gerða að koma því í stand. Áhorfandinn fylgist með því hvernig hugarástand Elisu breytist smátt og smátt á meðan maður hennar er ónæmur fyrir öllu því, sem angrar konu hans. Þetta gerir að verkum að fjarlægð myndast á milli þeirra hjónanna og eina nótt- ina sést hún horfa á hann eins og ókunnugan aðskotahlut. Myndin El Campo eða Á víða- vangi er eftir argentínska leikstjór- ann Hernan Belon. Myndinni hefur verið lýst sem sálfræðitrylli, en er í raun mjög lágstemmd. Angist Elisu nær aldrei til áhorfandans. Eina skýringin á vanlíðan hennar virðist vera sú að í sveitinni er stórborgar- konan eins og fiskur á þurru landi. Styrkleiki myndarinnar er fólg- inn í samskiptum hjónanna þegar þau eru komin út úr hinu verndaða umhverfi þess lífs, sem þau þekkja í Buenos Aires, í hús á landareign þar sem ekki er einu sinni síma- samband. Leikstjóri myndarinnar hefur sagt að hann vilji finna mennskuna í persónum sínum á tímum, sem fólk lifir í sýndarver- öld. Tæknin eigi að vera viðbót við samfélagið, en ekki í aðalhlutverki. Í þessari mynd hans standa aðal- leikararnir allt í einu berskjaldaðir utan tækniheims nútímans. Dolores Fonzi og Leonardo Sbaraglia standa sig vel í hlut- verkum Elisu og Santiagos. Hinn lokaði Santiago þarf að bregðast við hugarástandi Elisu án þess að hrinda henni frá sér þrátt fyrir að hann sjái að hætturnar, sem hún skynjar, eru ekki raunverulegar. Framtíð hinna nýbökuðu foreldra er í húfi. Spennan á milli þeirra leynir sér ekki, þótt hún sé ekki sett fram með ofsa. Það eru góðir sprettir í El Campo, en þegar upp er staðið er ekki trúverðugt að brak og brestir í náttmyrkrinu og óvæntar heim- sóknir frekar sakleysislegra ná- granna valdi slíku uppnámi í samlífi hjónanna. Sálarkreppa í sveitinni RIFF: Háskólabíó Á víðavangi (El Campo) bbmnn Leikstjóri: Hernan Belon. Leikendur: Dolores Fonzi, Leonardo Sbaraglia, Pochi Ducasse, Juan Villegas og Matilda Manzano. Framleidd í Argentínu 2011. Spænska. 85 mínútur. Flokkur: Vitranir. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Á víðavangi Styrkleiki myndarinnar er fólginn í samskiptum hjónanna þeg- ar þau eru komin út úr hinu verndaða umhverfi þess lífs, sem þau þekkja í Buenos Aires, í hús á landareign þar sem ekki er einu sinni símasamband. Það er frekar sérstakt aðhorfa á tæplega tveggjatíma kvikmynd um mat-argerð án þess að fá nokk- urn tímann vatn í munninn. En þannig er raunin með kvikmyndina El Bulli. Hún er sannarlega veisla fyrir augað og afar áhugaverð en til- raunavinna kokkanna á spænska veitingastaðnum El Bulli minnir helst á teymi rannsóknarmanna í CSI. Eigandi og yfirkokkur El Bulli, Ferran Adrià, hefur verið kallaður besti kokkur í heimi (en líka sá sturlaðasti). Hann hefur sérstakt dálæti á því að búa til froður og ekkert má vera eins og það sýnist. Það verður t.d. að lita svepp grænan svo hann líti ekki út fyrir að vera sveppur. Einkar athyglisvert er að fylgjast með ótrúlegum pælingum kokka- teymisins um áferð, sambland af bragði og aðferðir við að elda úr hráefni ef elda skyldi kalla. Enda er lítið að finna á diskunum nema skvettu hér og doppu af þessu og svo kannski smávegis sveppa- froðu … Eins er frábært að sjá hve auðveldlega er hægt að lesa við- brögð Ferrans við því sem hann smakkar. Kokkarnir tipla á tánum í kringum hann og léttir þegar hann sýnir ánægju. Eldamennska (tilraunamennska) Ferrans er langt frá Nigellu og ann- ari heimilislegri matargerð enda er ekki venjulegan mat að sjá í allri myndinni. Nema þegar starfsfólkið fær að borða. Það er mjög skemmti- legt að sjá svona allt aðra hlið á matargerð. En inn í myndina er líka fléttað ferðum á markað í Barce- lona, spjalli kokkanna eftir langan dag og svo er sýnt þegar staðurinn er opnaður á ný. Þannig er sköpuð heild í kvikmyndinni sem annars er fremur hæg og ef til vill ívið löng. Annars heillandi innsýn inn í hina svokölluðu sameindaeldamennsku sem minnir helst á eina stóra vís- indatilraun. Froðan hans Ferran RIFF 2011: Norræna húsið El Bulli bbbmn Stjórnandi: Gereon Wetzel. Heimild- armynd. Þýskaland, 2011. 108 mín. Flokkur: Matarmyndir. MARÍA ÓLAFSDÓTTIR KVIKMYNDIR Tilraunaeldamennska Eldamennska Ferran er langt frá Nigellu og annari heimilislegri matargerð enda er ekki venjulegan mat að sjá í allri myndinni að undanskildu því þegar starfsfólkið fær að borða. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJU DAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI 5% JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 6 - 8 - 10 7 I DON’T KNOW HOW SHE DOS IT KL. 6 - 8 - 10 L JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 5.45 - 8 - 10.15 7 I DON’T KNOW HOW SHE DOES IT KL. 8 - 10.10 7 Á ANNANN VEG KL. 6 L JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 7 JOHNNY ENGLISH REBORN LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 7 I DON´T KNOW HOW SHE DOES IT KL. 5.50 - 8 - 10.10 L WARRIOR KL. 8 14 OUR IDIOT BROTHER KL. 10.10 12 30 MINUTES OR LESS KL. 8 14 SPY KIDS 4 IN 4D KL. 3.30 - 5.50 L STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.40 L STRUMPARNIR 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar JOHNNY ENGLISH REBORN Sýnd kl. 6 - 8 - 10 COLOMBIANA Sýnd kl. 8 - 10:15 THE CHANGE-UP Sýnd kl. 8 SPY KIDS 4 4D Sýnd kl. 6 STRUMPARNIR 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6 WARRIOR Sýnd kl.10:15 Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! BÍÓMYND Í FJÓRVÍDD! HÖRKU SPENNUMYND FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR „TAKEN“ HHHH “Langbesta myndin sem ég hef séð á árinu hingað til” Kvikmyndir.is/ -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum HANN HLÆR FRAMAN Í HÆTTUNA FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR MR. BEAN ROWAN ATKINSON ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR! 700 kr. 700 kr. 700 kr. 950 kr.3 D 950 kr.3 D 700 kr. TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.