Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011
Borgarfulltrúi Besta flokksinsmætti hróðugur á sjónvarps-
skjái borgarbúa og annarra lands-
manna í gærkvöldi og útskýrði fyr-
ir þeim hvílíkum árangri
flokkurinn hefði náð í rekstri borg-
arinnar.
Besti flokkurinnfann út að það
er aðeins smekks-
atriði hvort höfuð-
borgin á að vera
snyrtileg eða ekki
og með þessa upp-
götvun í farteskinu
hefur hann náð að
spara töluverðar
fjárhæðir.
Besti flokkurinn telur til dæmisalveg óþarfa að hafa grasið
slegið í borginni og að ekkert geri
til þó að það sé óslegið á einstaka
stað, svo sem við fáfarnar götur á
borð við Miklubraut og Sæbraut.
Besti flokkurinn er líka á því aðþað þurfi ekki alltaf að vera að
sækja sorp eða tína upp rusl, órækt-
in þarf að fá að njóta sín víðar en á
grasbölunum.
Mikið happ er fyrir borgarbúaað slíkir hugmyndafræðingar
skuli hafa gefið kost á sér í síðustu
kosningum. Þeir sögðu það mæla
sérstaklega með framboðinu að þar
færi hugmyndaríkara fólk en geng-
ur og gerist, sem er augljóslega
hárrétt.
Engum öðrum hefði getað dottiðí hug að hægt væri að spara
með því að minnka þjónustu og láta
borgina líta verr út.
Það eru svona hugmyndir semlyfta borginni upp – og síðar
landinu öllu ef Besti flokkurinn fær
verðskuldað fylgi.
Karl Sigurðsson,
borgarfulltrúi
Besta flokksins
Besta hugmyndin
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.9., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 8 skýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað
Vestmannaeyjar 9 skýjað
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 12 skýjað
Lúxemborg 22 skýjað
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 21 léttskýjað
París 25 heiðskírt
Amsterdam 17 skýjað
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 23 heiðskírt
Moskva 11 skýjað
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 18 skýjað
New York 25 alskýjað
Chicago 12 alskýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:25 19:14
ÍSAFJÖRÐUR 7:31 19:18
SIGLUFJÖRÐUR 7:14 19:01
DJÚPIVOGUR 6:55 18:43
Aldrei hafa fleiri nemendur lært
ensku í grunnskólum landsins, en
78,9% grunnskólanemenda læra
ensku. Að meðaltali lærðu fram-
haldsskólanemendur 1,41 tungumál
skólaárið 2010-2011, sem er svipað
hlutfall og undanfarin ár. Bæði í
grunnskólum og framhaldsskólum á
Íslandi eru nemendur að læra kín-
versku.
Hagstofa Íslands hefur tekið
saman tölur um nemendur í grunn-
og framhaldsskólum sem lærðu er-
lend tungumál skólaárið 2010-2011.
Í mörgum skólum geta nemendur
sem hafa kunnáttu í norsku eða
sænsku valið þau tungumál í stað
dönsku. Á síðastliðnu skólaári lærði
101 barn sænsku frekar en dönsku
og 78 börn lærðu norsku.
Spænska þriðja erlenda málið
Flestir framhaldsskólanemendur
læra ensku eða 15.454, sem eru
61,5% nemenda. Næstflestir eru
nemendur í dönsku eða 8.268; eða
32,9% nemenda. Þessi tvö tungumál
eru skyldunámsgreinar fyrir flesta
nemendur í framhaldsskólum.
Alls lærðu 463 grunnskólanem-
endur spænsku, 179 börn þýsku,
174 börn lærðu frönsku og 23 börn
kínversku. Ekki hafa áður verið
grunnskólanemendur í kínversku.
Í fyrsta sinn frá upphafi gagna-
söfnunar Hagstofu Íslands árið
1999 læra íslenskir framhaldsskóla-
nemendur kínversku, þeir voru 18 á
síðasta skólaári. Þá hefur nemend-
um sem læra japönsku í framhalds-
skólum fjölgað verulega. Alls stund-
uðu 147 nemendur nám í japönsku
skólaárið 2010-2011 en voru 114 ár-
ið á undan. 29 nemendur lærðu
rússnesku í framhaldsskólum skóla-
árið 2010-2011 en voru 11 árið á
undan.
Nemendur sem læra íslensku
sem erlent tungumál voru 368.
Langflestir læra ensku
Morgunblaðið/ÞÖK
Nám Framhaldsskólanemar læra mörg tungumál, í fyrra lærðu til dæmis
átján þeirra kínversku. Enskan er enn vinsælasta tungumálið.
Tugir grunnskóla-
nema læra kínversku
Umferðaróhapp varð í Fitjahlíð í
Skorradal síðdegis á laugardaginn.
Jeppabifreið, sem var á leið inn
Skorradal, lenti út af veginum inn-
arlega í Fitjahlíð.
Bifreiðin rann skáhallt niður 12
til 15 metra háa brekku, flaug yfir
gilskorning, valt þar og lenti á
hvolfi ofan í gilinu.
Tvennt var í bifreiðinni, karl og
kona, og sluppu þau bæði án sýni-
legra áverka.
Í gær tókst með aðstoð krana að
hífa bifreiðina upp úr gilinu og upp
á veginn en hún er mikið skemmd
eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd.
Bíll sem valt
hífður yfir
trjátoppana
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Íslandspóstur
hefur hækkað
almennt póst-
burðargjald
um 30% frá
því í júní í
sumar. Í gær
bárust fréttir
af því að Póst-
og fjarskipta-
stofnun (PFS) hefði samþykkt
beiðni Íslandspósts hf. um 7,8%
hækkun gjaldskrár fyrir bréf inn-
an einkaréttar. Er hækkunin
vegna nýrra kjarasamninga við
póstmenn.
Í sumar kostaði útburður á al-
mennu bréfi 75 krónur. Íslands-
póstur hækkaði gjaldið í 90 krón-
ur í júní og nú hefur fyrirtækinu
verið heimilað að hækka gjaldið í
97 krónur.
Í erindi Íslandspósts til PFS er
þess getið að fyrirtækið hyggist
hagræða í rekstri til að mæta
hækkunarþörf vegna kjarasamn-
inga. Hugsanlega kunni því að
verða til svigrúm fyrir fyrirtækið
til að mæta ekki kostnaðarhækk-
unum vegna kjarasamninga að
fullu með hækkun gjaldskrár.
Hækka póst-
burðargjald