Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 9

Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 „Ef ég hefði valið að fara ekki í þessa ferð hefði mér fundist ég missa af mjög mikilvægri upp- lifun.“ Þetta sagði einn þeirra nem- enda af alþjóðabraut Verzlunar- skóla Íslands sem nýverið lögðu leið sína til Brussel, höfuðborgar Belgíu, í þeim tilgangi að fræðast um og fá innsýn í Evrópusambandið og samningaferli Íslands við sam- bandið. Eftir fyrirlestra í Evrópuþinginu, ráðherraráðinu, framkvæmda- nefndinni, EFTA og íslenska sendi- ráðinu voru nemendur sammála um að þeir hefðu fengið góða innsýn í markmið, sögu og framtíðarsýn ESB. Þá fengu þeir smáinnsýn í menningu Belgíu er þeir í lok ferð- ar skoðuðu miðaldabæinn Brugge. Saman Nemendahópurinn glæsilegi úr Versló samankominn í Brussel. Kynntu sér ESB Hvernig velur maður flóttafólk er yfirskrift fundar Alþjóðamálastofn- unar Háskóla Íslands og Forlagsins sem fram fer í Odda 101 nk. mið- vikudag kl. 12.25-13.20. Fundurinn er í tilefni útgáfu bókar Sigríðar Víðis Jónsdóttur, Ríkisfang: Ekk- ert. Ingibjörg Broddadóttir, varafor- maður flóttamannanefndar, segir frá ferðum sínum með íslensku sendinefndinni sem fer á vettvang og tekur viðtöl við flóttamenn. Kristján Sturluson, framkvæmda- stjóri Rauða kross Íslands, fjallar um flóttafólk og í hvaða stöðu þeir eru sem eiga engin skilríki. Hvernig velur maður flóttafólk? Sex bandarískir Fulbright- styrkþegar dvelja í vetur á Íslandi við nám, rannsóknir og listsköpun. Nemendurnir fást við ólík svið: ljós- myndun, miðaldafræði, innsetn- ingu, tónlistarþjóðfræði, rannsókn á sjálfbærni sjávarþorpa og stjórn- sýslufræði. Bandaríkjamennirnir hlakka all- ir til að eyða næstu níu mánðuðum á Íslandi og kynnast landi og þjóð, segir í fréttatilkynningu. Í janúar munu svo bætast við þrír bandarískir fræðimenn sem hlotið hafa Fulbright-styrk til gesta- kennslu við íslenska háskóla. Sex styrkþegar STUTT Björn Björnsson Sauðárkrókur „Ég segi nú að mitt mesta og besta lán sé hvað öll mín börn og afkom- endur hafa verið heilbrigð og komið sér vel hvar sem þau koma, og úr því að maður þarf að verða svona gamall þá má maður þakka fyrir allt sem maður hefur og þó að sjón- in sé ekki góð og fæturnir slakir þá er það ekki til að gera veður út af,“ segir Lilja Gunnlaugsdóttir sem löngum hefur verið kennd við Ás- hildarholt við Sauðárkrók en hún fagnar hundrað ára afmæli í dag. Lilja býr á Dvalarheimili aldr- aðra við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki og unir hag sínum vel. Hún er við ágæta heilsu þó sjóninni hafi hrakað svo að hún getur ekki lengur lesið sér til gagns né horft á sjónvarp. Heyrnin er þó í góðu lagi, hún hlustar mikið á útvarp og hefur ánægju af að hitta fólk og spjalla því minnið er enn í góðu lagi. Lilja fæddist að Ytri-Kotum í Norðurárdal og dvaldi þar til tólf ára aldurs en þar bjuggu þá for- eldrar hennar, þau Friðbjörg Hall- dórsdóttir og Gunnlaugur Guð- mundsson. Tvítug fór Lilja í Kvennaskólann á Blönduósi og seg- ist þar hafa fengið góða undirstöðu undir lífið og það að koma sex börn- um til fullorðinsára, en með eig- inmanni sínum Vilhjálmi Hólm Sig- urðssyni eignaðist hún átta börn en tvær dætur misstu þau ungar. Lilja og Vilhjálmur slitu samvistum og fluttist Lilja þá með barnahópinn sinn að Áshildarholti og gerðist ráðskona hjá Rafni Sveinssyni sem þar bjó. Mesta lán að börnin séu heilbrigð  Lilja Gunnlaugsdóttir frá Áshildarholti fagnar hundrað ára afmæli í dag  Hefur ánægju af að hitta fólk og spjalla því minnið er enn í góðu lagi Heilsuhraust Lilja ungir hag sínum vel á Dvalarheimili aldraðra. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði akstur sex ökumanna um helgina vegna ölvunar- og vímu- efnaástands. Um var að ræða fjórar konur á aldrinum 18-39 ára og tvo karlmenn, 17 ára og 32 ára. Þá greip lögreglan sex ökumenn sem höfðu þegar verið sviptir öku- leyfi. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 19-34 ára og ein tvítug kona. Til viðbótar var 16 ára piltur staðinn að akstri. Fleiri konur ölvaðar undir stýri en karlar Verð kr. 14.900 Daglega eitthvað nýtt Str. 34-48 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is –– Meira fyrir lesendur MEÐAL EFNIS: Fjölskyldubílar Umhverfisvænir bílar Rafbílar Atvinnubílar Jeppar Nýjustu græjur í bíla Staðsetningarbúnaður Varahlutir Dekk Umferðin Bíllinn fyrir veturinn Þjófavarnir í bíla Námskeið Ásamt fullt af öðru spennandi efni PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 3. október. Bílablað SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um fjölskyldubíla, atvinnubíla, jeppa, vistvænabíla og fleira föstudaginn 7. október Ókeypis heyrnarmæling Pantaðu tíma í ókeypis heyrnarmælingu og leyfðu okkur að leiðbeina þér við val á heyrnartækjum með allt að fjögurra ára ábyrgð. Læknastö›in • Kringlunni Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.