Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 10

Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 10
hlaupið hlaupið í fyrsta sinn. „Á Flensborgardaginn ætlum við okkur að fylla skólann af fólki sem ætlar að kynna ýmiss konar hreyfingu fyrir nem- endum. Við leggjum sérstaka Flensborgarskólinn í Hafnarfirði hef- ur frá haustinu 2009 unnið með Lýð- heilsustöð og Landlækni að verkefn- inu Heilsueflandi framhaldsskóli. Verkefnið fór formlega af stað haust- ið 2010, en þá var Flensborgarskólinn forystuskóli þessa verkefnis og einn á ferð. Nú eru hins vegar nær allir framhaldsskólar landsins orðnir hluti þessa verkefnis. Skokkhópar sameinast Í ár er þema verkefnisins hjá Flens- borgarskólanum Hreyfing. Því tengt eru ýmsir viðburðir á dagskrá en næstkomandi föstudag verður Flens- borgardagurinn tileinkaður hreyfingu og daginn eftir verður Flensborgar- Heilsueflandi framhaldsskóli Reipitog Nemendur og kennarar Flensborgar takast á. Setning Nemendur við upphaf heilsueflingar. Flensborgarhlaupið sameinar nemendur og skokkhópa Tekist á Fulltrúi nem- enda í miklum átökum við fulltrúa kennara. áherslu á íþróttir sem eru ekki fjöl- mennar heldur frekar jaðaríþróttir ýmiss konar. Á laugardaginn verður ljósmynd/Magnús Gíslason Skokkhópar eru starfræktir víða um land og eru tilvaldir til að njóta fé- lagsskapar annarra skokkara. Fyrir þá sem eru nýlega byrjaðir að skokka getur líka verið gott að njóta stuðn- ings og aðhalds þeirra sem hafa meiri reynslu. Í kringum skokkhóp- ana er líka oftast haldið úti öflugu fé- lagslífi svo af þeim skapast heilmikill félagsskapur. Á vefsíðunni hlaup.is má finna góðar upplýsingar um ýmsa skokkhópa víða um land. Þar er hægt að lesa dálítið um hvern hóp fyrir sig, hvert er hlaupið og hvað hlauparar þurfa að muna eftir að taka með sér í hlaupið. Fjölda skokkhópa er að finna á höf- uðborgarsvæðinu en einnig á Vopna- firði, Dalvík, Grindavík og Ísafirði, svo aðeins nokkrir séu nefndir. Endilega … … kynnið ykkur skokkhópa Morgunblaðið/Ernir Vinsælt Margir drífa sig orðið út til að skokka og fríska sig við. 10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt! María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þóra Atladóttir fór á sittfyrsta kajaknámskeið árið2007 en hún lauk nýveriðalþjóðlegu leiðsögumanna- prófi í kajakróðri ásamt sjö öðrum. Þóra er meðlimur í Kayakklúbb- num og segir erlenda ræðara marga öfunda þá íslensku af þeirri góðu aðstöðu sem þeir hafi við Geldinganesið og víðar. Tækni og færni æfð „Sumarið 2006 fór ég í ferð um Breiðafjörðinn með leiðsögumanni og ákvað að drífa mig á námskeið árið eftir. Síðan var ég svo heppin að ég sá auglýstan bát sem mig langaði í og keypti hann. Síðan þá hef ég verið nokkuð dugleg að fara en mest síðasta árið. Maður getur gert ýmislegt í þessu, bæði að safna hvað maður rær marga km og svo náttúrlega að æfa færnina og tæknina. Það er mjög gaman að vinna í því og á sunnudögum er Kayakklúbburinn alltaf með sund- laugaræfingu þar sem maður getur fínpússað áratækni og annað slíkt sem mann langar að æfa. Í sund- lauginni eru haldin námskeið sem æskilegt er að sækja en þar eru kennd undirstöðuatriði eins og að láta sér líða vel í bátnum, félaga- bjarganir og aðrar björgunar- æfingar. Það eru um 400 skráðir í klúbbinn en á laugardagsmorgnum eru haldnir félagsróðrar. Þá mega allir mæta sem vilja koma og prófa,“ segir Þóra. Leiðsögumannaprófið sem Þóra tók kallast 4 star BCU- Leader og er samkvæmt alþjóðlegu Konur eiga oft auð- veldara með tæknina Þóra Atladóttir er meðlimur í Kayakklúbbnum og hefur lokið alþjóðlegu leiðsögu- mannaprófi í kajakróðri. Hún rær allan ársins hring og segir aðstöðuna sem klúbburinn hafi á Geldinganesi og öðrum stöðum í grennd við Reykjavík til fyrir- myndar. Þóra hvetur alla þá sem áhuga hafa til að nýta sér félagsróður á laugar- dögum en hann er opinn öllum þeim sem vilja koma og prófa kajakróður. Ljósmynd/Magnús Sigurjónsson Aðstoð Þóra kemur hér félaga sínum í Kayakklúbbnum til hjálpar. Gaman Það er skemmtilegt að róa á kajak þegar öldugangur er mátulegur. Vefsíðan amsterdamize.com er skemmtileg og athyglisverð hjóla- síða. Henni er ætlað að veita fólki innblástur og sýna hversu þægilegt og auðvitað hressandi það er að fara hjólandi á milli staða. Á síðunni má sjá alls konar skemmtilegar myndir. Meðal annars af brúðhjónum sem ákváðu að ferðast um á fallega skreyttum hjólavagni á brúðkaups- daginn. Það er að segja brúðguminn hjólaði en brúðurin fékk að sitja í blómum skrýddum vagninum. Stofn- andi síðunnar er Amsterdambúi sem vill um leið vekja athygli á því að hjólamenning Hollendinga sé alls ekkert sjálfgefin og þar sé mikill dugnaður í hjólaköppum. Á síðunni má líka horfa á mynd- band af hjólaferðum í Amsterdam og lesa um ýmislegt sem nauðsynlegt er fyrir hjólafólk að eiga. Eins og t.d. sérstakar hjóla-gallabuxur. Vefsíðan www.amsterdamize.com Hjólað Þessi lét rigninguna ekki stoppa sig í að hjóla. Hjólandi brúðhjón í Amsterdam Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.