Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 15

Morgunblaðið - 27.09.2011, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 Benedikt XVI. páfi stóð ekki undir væntingum gagnrýnenda sinna, sem höfðu vonast eftir því að hann reyndi að jafna ágreining um katólsku kirkj- una þegar hann heimsótti föðurland sitt, Þýska- land, um helgina. Heimsókn páfa stóð í fjóra daga og fór hann til Berlínar, Erfurt og Freiburg. Markmiðið var að blása nýju lífi í katólskt kirkjustarf, sem hefur goldið fyrir ágreining og tregðu til nútímavæðing- ar. Uppljóstranir um barnaníð innan stofnana kirkjunnar hafa skaðað hana auk þess sem trú er almennt á undanhaldi í Þýskalandi. Á undanförn- um 20 árum hefur þeim sem sækja katólskar guðs- þjónustur fækkað um rúm 40%, katólskum hjóna- böndum um tæp 60% og verðandi katólskum prestum um rúm 60%. Benedikt páfi er ekki talinn hafa náð til þeirra, sem gengið hafa úr kirkjunni í heimsókninni, hvað þá aflað henni nýrra fylgjenda. Werner Tzscheetzsch, prófessor í katólskri guð- fræði, sem um langt skeið hefur gagnrýnt katólsku kirkjuna, sagði við Der Spiegel að þeir sem hefðu átt von á að hann myndi boða aukið umburðarlyndi kirkjunnar í kynferðismálum, gagnvart konum inn- an kirkjunnar eða aukin tengsl við önnur trúarbrögð „þekktu ekki þennan páfa“. Páfinn notaði heimsóknina til að ítreka íhaldssama afstöðu sína til málefna á borð við getnaðarvarnir, fóstureyðingar, líknarmorð og hjónabönd samkyn- hneigðra. Hann hélt lokaðan fund með litlum hópi fórnarlamba kynferðislegrar misnotkunar af hálfu katólskra klerka líkt og hann hefur gert í heimsókn- um til Bretlands, Möltu, Bandaríkjanna og Ástralíu. Hagsmunahópar fórnarlamba misnotkunar kirkjunn- ar sögðu hins vegar ekki nóg að gert. Páfagarður ætti að opna skjalasöfn sín þar sem misnotkun væri skráð og leyfa að þessir glæpir yrðu rannsakaðir í kjölinn. 60 þingmenn gengu út þegar páfinn ávarpaði þing- ið í Berlín og sögðu að verið væri að grafa undan að- skilnaði ríkis og kirkju. Angela Merkel kanslari, sem er dóttir lútersks prests, sagði að áskorun hans um endurreisn siðferðis á opinberum vettvangi hefði átt erindi. kbl@mbl.is Vonuðu að páfi seildist lengra  Þýskalandsheimsókn Benedikts XVI. ekki talin líkleg til að stöðva fráhvarf Ég veit að þetta eru erfiðir tímar fyrir kirkjuna í Þýska- landi. Margir yfirgefa hjörð- ina. En þið eruð hirðarnir og þið eruð góðir hirðar. Páfi á biskupafundi í Freiburg. Sýnishorn af vistvænum húsum eru nú til sýnis í Washington. Tilefnið er samkeppni sem orku- ráðuneyti Bandaríkjanna efndi til milli háskóla um hönnun og smíði húsa sem ganga fyrir sólar- orku og eru hagkvæm bæði í smíði og rekstri, auk þess að vera smekkleg. Hér sést kona ganga frá heimili sem nefnist „flísin“ og er samstarfsverkefni Arkitektaskóla Suður-Kaliforníu og Tækniháskóla Kaliforníu. Reuters Samkeppni um vistvæn híbýli BAKSVIÐ Karl Blöndal kbl@mbl.is Ósigur í öldungadeildarkosningum og spillingarmál þykja til marks um að Nicholas Sarkozy Frakklandsfor- seti gæti átt erfitt uppdráttar ákveði hann að sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum á næsta ári. Hægrimenn misstu meirihlutann, sem þeir hafa haft í öldungadeildinni frá því að fimmta lýðveldið var stofn- að árið 1958. Gerard Larcher, forseti deildarinnar, sagði fyrir kosningarn- ar að sigruðu vinstrimenn jafnaðist það á við pólitískan „jarðskjálfta“. Forsetinn, sem ekki hefur lýst yfir framboði en er þegar farinn að und- irbúa kosningabaráttuna, kallaði í gær Francois Fillon forsætisráð- herra og Jean-Francois Cope, leið- toga UMP-flokksins, til sín í Elysee- höll í gær til að ræða leiðir til að ná til kjósenda fram að kosningunum. „Þetta var eins og fyrirboði um það sem mun gerast 2012,“ sagði Francois Hollande, sem talið er lík- legt að verði forsetaframbjóðandi sósíalista, eftir að úrslitin voru ljós. Kjörið til öldungadeildarinnar fer fram á meðal 72 þúsund kjörinna borgarstjóra, bæjarstjóra, borgar- fulltrúa og bæjarfulltrúa, en ekki al- mennra kjósenda. Þykja tíðindi að svo íhaldssamur hópur sveiflist til vinstri. Sarkozy mun eiga erfitt með að knýja stór mál fram eftir þessi úr- slit þótt ekki hafi verið um almennar kosningar að ræða. Mútumál rannsakað Í liðinni viku voru tveir fyrrverandi aðstoðarmenn Sarkozys, þar á meðal vinur, sem var svaramaður hans þeg- ar hann kvæntist 2008, handteknir og ákærðir fyrir að taka við mútum í tengslum við vopnaviðskipti við Pak- istan og láta féð renna í kosningasjóði 1995. Í þessari viku er síðan búist við að Eduard Balladur, fyrrverandi forsætisráðherra og pólitískur lærifaðir Sarkozys, verði yf- irheyrður vegna sama máls. Sarkozy var talsmaður Balladurs er hann bauð sig fram til forseta fyrir 16 árum. Mútumálið tengist kosninga- baráttu Balladurs, en Sarkozy kveðst engan þátt hafa átt í fjármögnun hennar. Fjármögnunarhneyksli eru al- geng í Frakklandi. Þetta mál, sem snerist um sölu á kafbátum til Pak- istans, er hins vegar sérstaklega erfitt vegna þess að því er haldið fram að sprengjutilræði, sem var framið í Karachi í Pakistan árið 2003 og varð 11 frönskum verkfræðing- um að bana, hafi verið runnið undan rifjum pakistanskra útsendara í hefndarhug vegna þess að þeir voru skildir útundan í mútugreiðslunum. Þá gæti farið svo að Brice Horte- feux, aðstoðarmaður Sarkozys og fyrrverandi innanríkisráðherra, yrði yfirheyrður fyrir að hringja í Thierry Gaudet, annan aðstoðar- mannanna, sem voru handteknir í síðustu viku, og vara hann við því að fyrrverandi eiginkona hans, Helena prinsessa af Júgóslavíu, hefði kjaft- að leyndarmálum í lögreglu. Eva Joly, forsetaframbjóðandi Græningja, segir að yfirheyra eigi Balladur og Hortefeaux eigi að draga sig í hlé: „Ef ég verð kosinn forseti verða engar beinagrindur í skápnum. Þið mynduð ekki sjá fyrr- verandi innanríkisráðherra hafa samband við vitni í glæparann- sókn.“ Staða Sarkozys þrengist  Franskir hægrimenn missa meirihluta í öldungadeildinni sjö mánuðum fyrir forsetakosningar  Fimmtán ára gamalt mútumál gæti veikt stöðu forsetans Nóbelsverð- launahafinn Wangari Maathai lést á sunnudag af krabbameini. Maathai er fyrsta afríska konan, sem fengið hefur Nóbelsverðlaun. Henni voru veitt friðarverðlaun Nóbels árið 2004 fyrir umhverfisverndarstörf sín í Kenía og vernd skóga. Maathai stofnaði hreyfinguna Græna beltið 1977 til að berjast fyr- ir verndun náttúrunnar og góðum stjórnarháttum. Á níunda áratug 20. aldar tók hún einnig þátt í bar- áttunni gegn Daniel Arap Moi, þá- verandi forseta, og mátti ítrekað þola táragas og barsmíðar lög- reglu. „Hún var sönn afrísk hetja,“ sagði Desmond Tutu biskup, sem einnig er handhafi friðarverðlauna Nóbels, eftir að fráfall Maathai var tilkynnt í gær. Wangari Maathai – „sönn afrísk hetja“ – fallin frá Látin Wangari Maathai frá Kenía. Ríki og vopnaðar sveitir, sem neita að hætta að gera börn að her- mönnum, verða að eiga harðari aðgerðir yfir höfði sér en nú er. Þetta segir Francois Zim- eray, sendiherra Frakka í mann- réttindamálum. Hann ætlar að knýja á um aðgerðir á fundi, sem haldinn er samhliða allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Zimeray segir að hóta eigi með pólitískum refsiaðgerðum og al- þjóðaglæpadómstólnum. Réttur barnsins til að njóta æsku sinnar eigi ekki að fara á milli mála frem- ur en að það sé stríðsglæpur að nota börn í stríði. Meiri hörku gegn barnahermönnum Bjargað Fyrrver- andi barnahermenn. Gallíska hetjan Ástríkur mun lifa skapara sína. Lista- maðurinn Albert Uderzo, sem hefur haft umsjón með teiknimyndasög- unum um Ástrík frá því að félagi hans, höfundurinn Rene Goscinny, lést 1977, er nú 84 ára og hefur ákveðið hver skuli taka við kyndlinum, en gaf nafn hans ekki upp. Uderzo kvaðst hafa gert sér grein fyrir því að Ástríkur til- heyrði bæði höfundum sínum og les- endum. Bækurnar um Ástrík hafa selst í 350 milljónum eintaka. Nýr höfundur mun taka við Ástríki Félagar Ástríkur og Albert Uderzo. Carla Bruni, eiginkona Nicolas Sarkozys, segir að forsetinn hafi heillað sig með „ótrúlegri“ þekkingu sinni á blómum í við- tali við breska ríkisútvarpið, BBC, sem sýnt verður í dag. Hann þekkti latnesku nöfnin á öllum blómum og hefði opinber- að þekkingu sína er þau gengu um garð forsetahallarinnar … „og ég sagði við sjálfa mig: „Guð minn góður, ég verð að giftast þessum manni, hann er forsetinn og veit að auki allt um blóm, þetta er ótrú- legt.“ Bruni, sem á von á barni í október, sagði einn- ig að í bandarískri pólitík væri Sarkozy vinstrisinn- aður demó- krati. Blómleg byrjun CARLA BRUNI Nicolas Sarkozy -12,7% Fækkun katólikka í Þýskalandi 1990 til 2010 -42,5% Fækkun í katólskum messum í Þýskalandi 1990 til 2010 ‹ TRÚ Á UNDANHALDI › »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.