Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 Margt er skrýtið í kýrhausnum, segir mál- tækið. Ýmislegt er einn- ig skrýtið í frumvarpi til „nýrra stjórnskip- unarlaga“ (frumv). For- vitnilegt er að kíkja í þann „kýrhaus“, annars vegar með samanburði við gildandi stjórn- arskrá (stjskr) og hins vegar með innbyrðis samanburði innan frumv. Sagt hefur verið að stjskr sé eins og bútasaumsteppi. Þetta búta- saumsteppi tók stjórnlagaráð og klippti í sundur og saumaði síðan sam- an á ný með nokkrum breytingum og viðaukum sem fyrst og fremst eru til að koma til móts við sjónarmið ým- issa trúarhópa eins og náttúruverndarsinna, Siðmenntar, landið eitt kjördæmi, Ísland í ESB o.s.frv. Stjórnlagaráðinu tókst þó hvorki að gera landið að einu kjördæmi né skipta því í kjördæmi. Þessum atriðum og reyndar fleirum er vísað til ákvörðunar Alþingis. Sjá 39. grein frumv. Samkvæmt 2. grein frumv er fellt niður ákvæði stjskr um að forsetinn fari með löggjafarvald ásamt Alþingi. Samt skal forsetinn gegna sömu skyldum og áður í þessu samhengi, undirrita lög til að þau taki gildi eða vísa þeim til þjóðarinnar sam- kvæmt 60. grein frumv. Hér er þó sú breyting að forseti Alþingis undirritar lögin með forsetanum í stað ráðherra áður. Forsetinn heldur hins vegar hlut- verki sínu sem hluti framkvæmda- valdsins samkvæmt 2. grein frumv. Hann hefur þó litlar skyldur í því sam- hengi. Hann skal ráðfæra sig við þing- flokka og þingmenn áður en hann ger- ir tillögu til Alþingis um hver skuli gegna starfi forsætisráðherra. Þegar Alþingi hefur kosið forsætis- ráðherrann samkvæmt tillögu forset- ans, eða samkvæmt eigin tillögu, skip- ar forsetinn hann í embætti. Að öðru leyti kemur forsetinn ekki nálægt stjórnarmyndun samkvæmt 90. grein frumv. Sjá 15. grein stjskr. Þá getur forseti náðað menn að tillögu ráðherra samkvæmt 85. grein frumv, hann get- ur synjað því hvern ráðherra skipar í stöðu dómara og hann skipar formann nefndar um aðrar embættisveitingar samkvæmt 96. grein frumv. Ákvæði um ríkisráðsfundi samkvæmt 16. grein stjskr er sleppt. Sjá einnig um samskipti forseta og ráðherra almennt í 13.-20. grein stjskr. Raunhæf lausn hefði verið að sleppa forsetanum og skipta skyldum hans milli forseta Al- þingis og þjóðkjörins forsætisráð- herra. Stjórnlagaráðsmenn hafa lagt þunga áherslu á að frumvarpið fari óbreytt í þjóðaratkvæðagreiðslu til staðfestingar eða synjunar. Slíkt væri brot á stjskr. Samkvæmt 92. grein stjskr skulu breytingar á stjskr sam- þykktar tvívegis á Alþingi og séu al- þingiskosningar milli þessara sam- þykkta. Einnig má nefna að 92. grein stjskr kveður á um að breyting á kirkjuskipan skv. 62. gr. skuli borin undir þjóðaratkvæði. Stjórnlagaráð felldi út ákvæði 62. greinar um þjóð- kirkjuna án þjóðaratkvæðagreiðslu, en heldur þó inni í frumvarpinu ákvæðinu um þjóðaratkvæði um mál- ið. Fleira mætti tína til sem gefur til kynna að stjórnlagaráðið hafi varla verið þeim vanda vaxið að semja heild- stæða stjórnarskrá. „Ný stjórnarskrá“ – bútasaumsteppi Eftir Sigurbjörn Guðmundsson Sigurbjörn Guðmundsson » Ýmislegt gefur til kynna að stjórnlaga- ráðið hafi varla verið þeim vanda vaxið að semja heildstæða stjórnarskrá. Höfundur er verkfræðingur og lífeyrisþegi. Rangt er að halda því fram að Ólafur Ragnar hafi breytt embætti for- seta Íslands til fram- búðar. Hann hefur vissulega hagað emb- ættisfærslu sinni á þann veg að herða pólitíska ásýnd embættisins, bæði innan- og utan- lands, og leitast við að búa til alls konar tengsl milli erlendra vísinda-, fjármála- og stjórnmálamanna og sín, íslenska ríkisins eða fyrirtækja og stofnana. Gerst pólitískari en forver- arnir. Hann hefur verið að mörgu, en alls ekki öllu leyti, öðruvísi embætt- ismaður en forverarnir og að því leyti „breytt embættinu“. En þannig er það aðeins á meðan hann heldur því. Næsti forseti getur að sjálfsögðu gjörbreytt þessu, eða haldið áfram á svipaðri braut og Ólafur Ragnar. Sannleikurinn er sá að sérhver for- setanna hefur „breytt forsetaembætt- inu“, einfaldlega með því að hafa uppi þær áherslur sem hann telur rétt- astar. Ástæðan er einföld. Lagagrein- ar um forsetaembættið eru fremur rúmar. Hinir þrír þjóðkjörnu forset- arnir voru einmitt harla ólíkir í emb- ætti, hver um sig. Á þetta er minnt hér vegna und- arlegra tilrauna fræðimanna og stjórnmálamanna til að gera meira úr þýðingu tæpra sextán ára með Ólafi Ragnari hvað framtíð embættis- ins varðar en efni standa til. Á hinn bóginn eiga menn að rökræða um hve farsæl forsetatíð Ólafs Ragnars, eða ann- arra forseta, hefur verið og af hverju. Þeir geta óskað eftir svipaðri embættisfærslu og Ólaf- ur Ragnar hefur uppi hjá næsta forseta, eða einhverju allt öðru. Í ljós hefur komið að með- al almennings eru mjög skiptar skoð- anir um hvað forseti Íslands skuli eða megi gera og hvað ekki, ekki síður en meðal stjórnmálamanna. Raunar gætu alls konar stjórnarskrárbreyt- ingar í anda stjórnlagaráðsins, ef af þeim verður, breytt einhverju um eðli þessa embættis. Til eru þeir sem vilja það burt. Líklega er enginn þjóðkjörinn for- seti í nálægum löndum jafn lagalega valdalítill og sá íslenski, nema ef vera skyldi sá þýski. Með hugmyndum á ótal sviðum, uppbyggilegum tillögum, vandaðri gagnrýni og hrósi, vali á við- mælendum, tengslamyndun og mörgu öðru getur íslenskur forseti hins vegar haft veruleg samfélagsleg áhrif og jafnframt áhrif á erlendum vettvangi. Í báðum tilvikum verður hann auðvitað að hafa samráð við þá sem bera ábyrgð á stjórnarathöfn- unum. Hann verður að þræða vand- rataða, mjóa línu við að tileinka sér sjálfstæða og líflega embættisfærslu án þess að taka fram fyrir hendur á ráðherrum. Og ávallt liggur fyrir að margir í heiminum horfa til íslensks forseta með svipuðum skilningi og til forseta eins og er til dæmis í Frakk- landi, vegna lítillar þekkingar á ís- lenskri stjórnskipan, og líta svo á að þar fari ígildi helsta stjórnmálafor- ingjans. Gefi Ólafur Ragnar kost á sér til fimmta kjörtímabilsins, eru minni lík- ur en meiri á að hann fái öflugt mót- framboð, nema ef einhverjum tekst á afar skömmum tíma að leggja fram trúverðugan og vel rökstuddan val- kost. Stígi Ólafur Ragnar til hliðar eru mestar líkur á óvenjumörgum fram- boðum í því andrúmslofti upplausnar og vantrausts sem einkennir stjórn- málin í kjölfar hrunsins, á meðan stjórnvöld róa gallaðan lífróður við að rétta samfélagið að nokkru leyti við. Þá gæti svo farið að þjóðkjörinn for- seti hefði 20-30% atkvæða að baki sér. Hvers konar forseti? Eftir Ara Trausta Guðmundsson » Í ljós hefur komið að meðal almennings eru mjög skiptar skoð- anir um hvað forseti Ís- lands skuli eða megi gera og hvað ekki... Ari Trausti Guðmundsson Höfundur er nátttúruvísindamaður og áhugamaður um þjóðmál. Það vekur umtal er afburðakylfingur eins og Tiger fellur um tugi sæta á getulista í sinni grein. Menn velta fyrir sér hvort ástæðan sé breytt sveifla, meiðsl eða einkalífið. Margir segja ástæðuna vera að sjálftraust Tigers hafi beðið hnekki. Vanga- veltur á borð við hvers vegna það beið hnekki læt ég les- endum eftir. Mér finnst nærtækara að spyrja, hvað gerir þú fyrir þig ef sjálfstraust þitt hefur beðið hnekki eða ekki fengið að vaxa sem skyldi? Á skalanum 1-10, hversu mikil áhrif hefur sjálfstraustið á árangur þinn? Hugsanlega metum við áhrif sjálfs- traustsins eftir því hvað við tökum okkur fyrir hendur. Við gætum gefið okkur aðra einkunn varðandi það að ganga vel í golfi en að reikna út erfiða stærðfræðiformúlu. Sálfræðin segir að við höfum jafn- mörg sjálfstraust og hóparnir sem við tengjumst eða berum okkur sam- an við. Þess vegna getur nýtt um- hverfi, starf eða samband þrengt að okkur. Hver man ekki eftir fyrsta vinnudeg- inum, hinu eina sanna stefnumóti eða fyrstu kynningunni? Hvernig var fyrsti vinnudag- urinn? Þú lést þig von- andi hafa hann. Hvernig var stefnumótið? Þú lifðir það líklega af. Hvernig tókst til með kynninguna? Þú lifðir hana líka af. Það æfir upp sjálfstraustið að gera hlutina oft. Sama lögmál gildir í ræktinni, við nám, í starfi, í foreldrahlutverkinu og við flest annað sem við tökum okkur fyr- ir hendur. Þess vegna er svo mik- ilvægt að hafa seiglu og úthald þó umhverfið reyni á. Það kemur fyrir að kvíði og vanlíð- an taka yfirhöndina og þæginda- hringurinn skreppi hættulega saman. Þá eigum við til að hafa samskipti við æ færri einstaklinga, sleppa að mæta á atburði og forðast nýjar uppá- komur. Aðrir láta vaða, hvort sem það er í ákveðna einstaklinga, verk- efni eða atburði. Slík áskorun getur reynst óyfirstíganleg hindrun fyrir einn en skemmtileg áreynsla fyrir annan. Að taka af skarið getur veitt einum aukið sjálfstraust á meðan annar upplifir slæma útkomu. Brennt barn forðast eldinn, tilfinningin verð- ur þá allsráðandi. Ef árangurinn sem þú væntir lætur á sér standa, gagn- vart því sem þú tekur þér fyrir hend- ur, gerðu þá eitthvað í því. Fjárfestu í sjálfstrausti þínu, það mun borga sig. Í byrjun getur reynst vel að lesa bækur sem skrifaðar eru sjálfstrausti til stuðnings. Sé ástandið hamlandi geta samtöl við fagaðila hjálpað. Ef kvíði er ástæðan fyrir því að þú sveig- ir fram hjá því sem þú þarft að takast á við, leitaðu þá aðstoðar hjá fag- aðilum. Margskonar kvíðameðferð er í boði og námskeið sem hafa borið ár- angur fyrir Íslendinga í mörg ár. Þitt er valið. Taktu á þínum málum og þú nærð árangri. Féll Tiger á sjálfstraustinu? Eftir Láru Óskarsdóttur Lára Óskarsdóttir »Ef árangurinn sem þú væntir lætur á sér standa, gagnvart því sem þú tekur þér fyrir hendur, gerðu þá eitt- hvað í því. Höfundur er fyrirlesari og þýðandi bókarinnar Meira sjálfstraust. Tillaga stjórnlagaráðs að nýrri stjórn- arskrá virðist vera mun ýtarlegri en sú sem nú er í gildi, samt tel ég að menn ættu að gefa sér góðan tíma til að íhuga innihaldið því mér finnst nokkuð mikið lögfræðingayfirbragð á henni sem gerir innihaldið teygjanlegt. Stjórnarskrárlög eru hornsteinn rétt- arstöðu þegnanna og réttarstöðuvernd á að vera öllum opin, en er það ekki. Ég hef bent á það í Morgunblaðinu að þroskahamlaðir af fátæku fólki eru iðulega sviptir öllum mannréttindum, dæmt af þeim sjálfræði svo sveit- arstjórnarfulltrúar geti flutt þá þangað sem þeim hentar. Þó er þroskahöml- uðum heimilaður réttur í lögum til að velja sér verjanda fyrir dómi, velja fjárhaldsmann og einnig að mega vera heima hjá foreldrum með aðstoð fé- lagsþjónustu og velja sér þjónustufull- trúa. Dæmi eru um að sami ein- staklingur sé sviptur öllum þessum réttindum og að félagsþjónustu- fulltrúar velji bæði sækjanda og verj- anda ásamt því að hindra aðkomu for- eldra að málinu og beri það fyrir sig að um sé að ræða fullorðinn mann, því komi foreldrunum ekkert við um hann. Mér finnst þetta ósvífin framkoma. Þessi vinnubrögð hafa lengi verið við lýði í íslensku þjóðfélagi og ekki sjáan- legt að þar verði nein breyting á. Aftur á móti ætti stjórnarskráin að geta var- ið mannréttindi þessa fólks, en hún hefur ekki gert það hingað til. Löggjöf á Íslandi hefur verið eins og nokkurs konar jórturgúmmí fyrir lög- fræðinga og lögin teygð og toguð eftir því hvað hentar hverju sinni og þegar pólitískur teygjanleiki bætist við getur teygjan nánast orðið óendanleg og lög- gjöfin lítils virði fyrir það sem hún ætti að standa fyrir, að tryggja réttlæti. 39. gr. stjórnlagaráðs um alþing- iskosningar finnst mér að þurfi góða athugun svo ekki myndist flækjufótur í kosningum. Flokkaflakk á þingi er orðið vanda- mál. Fimm eða sex þingmenn hafa sagt sig frá þeirri flokksstefnu sem þeir voru kjörnir til og ákveðið að sitja á þingi sem einræðisherrar sinnar prí- vatstefnu. Mér finnst það lágmark að þingmenn séu það félagslega þroskaðir að þeir geti starfað á þeim lýðræðislega grunni að í hópstarfi ráði meirihluti ákvörðunum. Þingmaður sem ekki get- ur fylgt áfram þeirri stefnu sem hann er kjörinn til á að víkja og varamaður að taka við. Í 48. grein stjórnarskrár segir: Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum. 46. grein í tillögu stjórnlagaráðs er nánast samhljóða. Hvernig getur mað- ur sem er fulltrúi samtaka, starfað ein- göngu eftir eigin sannfæringu og án þess að virða samþykktir samtakanna? Áður fyrr báru auðlindir þjóðfélags- ins, sjávarútvegur og landbúnaður, uppi góð lífskjör í þjóðfélaginu og at- vinnuleysi var nánast óþekkt. Nú er eins og tekjur af þessum auðlindum séu horfnar og eina von okkar sé að er- lendir auðmenn aumkvi sig yfir okkur og komi með fúlgur af ölmusufé. Mér finnst þetta benda til þess að íslenskir athafnamenn með hæfileika til að reka fyrirtæki séu útdauð tegund. En að selja útlendingum landsvæði væri fyrsta skrefið í því ferli að útlendingar fengju keypta búta af landinu hér og þar og yrðu áður en menn áttuðu sig á orðnir ráðandi hluthafar á land- areignum. Enginn heiðarlegur Íslend- ingur hefur áhuga á því. Útlendingar eiga aðeins að fá leigðar lóðir undir sína starfsemi. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Valshólum 2 Reykjavík. Stjórnarskráin og fleira Frá Guðvarði Jónssyni  Ársalir - fasteignamiðlun  Ársalir - fasteignamiðlun  Til leigu vandað atvinnuhúsnæði á jarðhæð að Hverfisgötu 4, Reykjavík. Húsnæðið, sem er laust strax eru tæpir 200 m² mest opið rými, eitt stórt fundarherbergi, myndað með glerskilrúmi og gler rennihurð. Tvær snyrt- ingar og kaffikrókur. Nýtt parket á gólfum og mjög vönduð lýsing er í húsnæðinu. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir fasteignasala - fyrirtækjasala - leigumiðlun 533 4200 og 892 0667 Engjateigi 5, 105 Rvk Hverfisgata 4 Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Teikningar og nánari upplýsingar í síma 533 4200 eða arsalir@arsalir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.