Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011
✝ Hulda SigríðurÞórðardóttir
var fædd í Reykja-
vík 29. júní 1935.
Hún lést á líkn-
ardeild Landakots-
spítala sunnudag-
inn 18. september
2011.
Móðir Huldu var
Kristín Gunnlaugs-
dóttir, fædd 29.
mars 1903, látin 30.
júní 1990. Faðir Huldu var
Þórður Guðmundsson, fæddur
26. desember 1901, látinn 31.
janúar 1998. Systkini Huldu
samfeðra eru Kolbrún, Erna,
Guðmundur Gísli, látinn, Sæ-
mundur og Jóhanna.
Þann 17. júní 1958 giftist
Hulda eftirlifandi eiginmanni
sínum Jóhannesi Gunnarsyni
vélfræðingi, fæddur 15. desem-
ir átti Kristín Jóhannes og
Björgu. Gunnlaugur, fæddur
30. janúar 1965, maki Elín Þ.
Pétursdóttir, börn þeirra eru
Gunnlaugur Agnar, Helga
Magnea og Hulda Kristín, fyrir
átti Elín Pétur og Anítu. Fyrir
átti Hulda Jón Albert Sig-
urbjörnsson, fæddur 17. janúar
1955, maki Lára Guðmunds-
dóttir, börn þeirra eru Daníel,
Hulda og Lilja. Barna-
barnabörnin eru orðin 16 tals-
ins. Hulda ólst upp í Reykjavík
og í Gróttu á Seltjarnarnesi.
Eftir skólagöngu vann Hulda á
saumastofunni Feldinum, í
Pennanum ritfangaverslun og
síðast sem deildarritari á vöku-
deild á barnadeild Landspít-
alans. Hulda starfaði auk þess
sem sjálfboðaliði hjá Rauða
krossi Íslands. Stór hluti starfs-
ævinnar var rekstur á stóru
heimili og þá sérstaklega þegar
börnin voru ung en þá var Jó-
hannes starfandi sjómaður.
Útför Huldu fer fram í Há-
teigskirkju í dag, þriðjudaginn
27. september 2011, og hefst kl.
15.
ber 1929. For-
eldrar hans voru
Gunnar Jónsson,
fæddur 12. ágúst
1886, látinn 2. des-
ember 1975 og
Guðrún Jónsdóttir,
fædd 6. nóvember
1895, látin 1. ágúst
1971. Börn Huldu
og Jóhannesar eru
Ómar, fæddur 11.
desember 1958,
maki Inga Hannesdóttir, börn
þeirra eru Gréta og Ómar
Andri, fyrir átti Ómar Bjarka
Frey. Guðrún, fædd 31. ágúst
1961, giftist Óla Þorsteinssyni,
þau eru skilin, börn þeirra eru
Hulda Margrét, Nína og Þor-
steinn. Kristín, fædd 31. ágúst
1961, maki Magnús Rúnar
Magnússon, börn þeirra eru
Gunnar, Nanna og Guðrún, fyr-
Nú hefur þú mamma mín feng-
ið hvíldina eftir erfið veikindi.
Það sem einkenndi þína ævi
var barátta og dugnaður og að
neita að gefast upp.
Æskan og veikindin hafa mót-
að þig þar sem þú veiktist fyrst
árið 1965 og gekkst undir aðgerð
fyrst 1967 og síðan í Noregi 1968
en aðgerðina var ekki hægt að
gera á Íslandi í þá daga.
Á uppvaxtarárunum ferðaðist
amma Kristín með þig á milli
staða. Amma vann við ráðskonu-
störf á heimilum í Reykjavík og
víðar en á þeim tíma var unnið
upp á húsaskjól og fæði og örlít-
inn vasapening.
Þú sagðir mér oft frá þessum
árum, nóg fékkst þú af hjarta-
hlýju, amma Kristín var einstök
kona.
Í Gróttu á Seltjarnarnesi
bjugguð þið amma lengi en þar
var amma ráðskona, þetta var
mjög góður tími en skólagangan
gat stundum verið erfið því í
Gróttu gætir flóðs og fjöru og erf-
itt gat verið að komast á milli, en
þá gistir þú hjá góðum vinum á
Seltjarnarnesi.
Fyrstu árin mín bjó ég með þér
og ömmu Kristínu á Grettisgöt-
unni, en svo varst þú svo heppin
að kynnast pabba og einkenndist
ykkar samband af mikilli vináttu
og hlýju.
Árin á Þórsgötunni eru eftir-
minnileg, þar hófuð þið búskap,
við vorum 6 í 30 fm íbúð og þar
leið öllum alltaf vel.
Á þessum árum vann pabbi
sem vélstjóri á millilandaskipum
hjá Eimskip og sást þú um heim-
ilið og allan krakkaskarann.
Með dugnaði og fyrirhyggju
var næsti samastaður í Mávahlíð-
inni þar sem þið keyptuð 4 her-
bergja íbúð. Meira að segja var
kominn bíll í hlaðið og fannst okk-
ur það öllum rosalegt.
Að lokum fluttum við í Drápu-
hlíðina, þar var hér um bil her-
bergi á mann og pabbi kominn í
land.
Það urðu tímamót árið 1983 í
þínu lífi þegar þið pabbi sáuð
auglýstar sumarbústaðalóðir í
Svínadal. Þar voru til sölu kjarri-
vaxnar lóðir u.þ.b. 1 hektari að
stærð.
Kaupin ákveðin og þá átti bara
eftir að velja landið. Auðvitað
valdir þú versta landið, mela og
berjalyng. Þvílík breyting, versta
landið er nú orðið það besta, ca 3
metra hár trjágróður og sum-
arbústaður með öllu tilheyrandi.
Það var ótrúlegt að fylgjast
með ykkur smíða, moka, leggja
stíga og gróðursetja, allt gerðuð
þið sjálf.
Mér er minnisstætt að á fyrstu
árum ykkar í bústaðnum komu
hörðustu túnrollurnar úr Svína-
dalnum og gerðu sig heimakomn-
ar í gróðrinum þínum en þær áttu
aldrei séns.
Sumir eru þeim hæfileikum
gæddir að vera foringjar og það
varst þú svo sannarlega, þú
stjórnaðir og skipulagðir nánast
alla viðburði í fjölskyldunni og
alltaf var allt á hreinu.
Þú varst alveg frábær þegar
kemur að öllu heimilishaldi, það
var alltaf allt búið til frá grunni
sem hægt var og allur matur
nýttur.
Þú mótaðir mig meira en allir
aðrir samanlagt, dugleg, heiðar-
leg og kvartaðir aldrei.
Fjölskyldan færir öllu því frá-
bæra starfsfólki þakkir sem hef-
ur annast þig í þínum veikindum.
Ég kveð þig með söknuði og ég
er stoltur yfir því að þú hafir ver-
ið mamma mín.
Jón Albert.
Í dag kveð ég tengdamóður
mína, Huldu Þórðardóttur, eftir
langa og erfiða baráttu við hinn
illvíga sjúkdóm sem krabbamein-
ið er. Þvílík barátta sem hún háði
allan tímann. Það lýsir því hvern-
ig kona hún var. Sterk, og ákveð-
in í að gefast ekki upp. Síðustu
dagana lá hún og mókti og varð
að lokum undan að láta. Hún var
umkringd börnum sínum fimm
og eiginmanni þegar yfir lauk.
Hulda kvaddi þennan heim í
faðmi fjölskyldu sinnar.
Ég kom inn í líf Huldu og fjöl-
skyldu hennar árið 1981 þegar ég
kynntist eiginmanni mínum. Ég
var feimin og vildi láta lítið fyrir
mér fara og helst ekkert yfirgefa
herbergið, þar til einn sunnudag-
inn að Hulda kom og sagði mér að
koma fram að borða. Þetta var
hennar leið til að bjóða mig vel-
komna í fjölskylduna. Við sátum
þarna og nutum þess að borða
sunnudagssteikina og það var
eins og ég hefði alltaf verið þarna.
Hún hafði lag á að halda uppi
samræðum þannig að vandræða-
gangur minn varð að engu.
Það er margs að minnast og
sakna. Jólin voru henni mikil fjöl-
skyldustund og komu þá allir
saman í Drápuhlíðinni á jóladag
þar sem kræsingar voru á borð-
um og tekið var hraustlega til
matar síns. Alltaf fjölgaði í hópn-
um og alltaf var nóg pláss. Hún
Hulda hélt sko vel utan um sitt
fólk.
Hulda átti sér sælureit þar
sem þau hjónin reistu sér glæsi-
legt sumarhús sem nú er orðið
heilsárshús og hafa margir notið
góðra stunda þar. Þar var hún
öllum stundum meðan heilsan
leyfði að gróðursetja tré og
plöntur, hlúa að þeim og viðhalda
bústaðnum sem hún elskaði, tína
ber, búa til sultu sem hún svo
dreifði til okkar allra. Það er svo
ótal margt annað sem kemur upp
í hugann sem ég hef bara fyrir
mig. Það verður eins og lokuð
bók minninganna sem hægt er
opna aftur og aftur.
Við munum hugsa vel um hann
Jóa, Hulda mín. Nú hefur þú
fengið hvíldina og megi englar
guðs vaka yfir þér.
Hvíl í friði.
Inga Hanna Hannesóttir.
Það er erfitt að kveðja Huldu
ömmu sem hefur verið fastur
punktur í tilveru okkar alla tíð.
Að geta alltaf komið við í Hlíð-
unum þegar maður er á ferðinni
og spjallað við ömmu og afa hefur
verið ómetanlegt. Góð ráð og
áminning um að mennta sig og
vera duglegur að vinna, það hefur
verið lífsspekin hennar ömmu og
hún miðlað þeirri speki óspart til
okkar. Margar góðar og ógleym-
anlegar stundir áttum við uppi í
sumarbústað en þar er sælureit-
ur ömmu og afa. Mikið eigum við
alltaf eftir að sakna jólaboðanna
hjá ömmu og afa, þar komu allir
sem gátu saman á jóladag og áttu
góða stund og aldrei brást kara-
mellukakan sem var í eftirrétt.
Ef það voru veislur í fjölskyld-
unni var amma alltaf mætt með
margar karamellukökur og þær
kláruðust alltaf fyrstar af veislu-
borðum. Amma hefur alltaf verið
tilbúin að gera allt fyrir fjölskyld-
una eins og þegar við vorum að
byggja nýja húsið á Kjalarnesi,
þá fluttu amma og afi upp í sum-
arbústað heilt sumar og leyfðu
okkur að búa í íbúðinni þeirra í
Hlíðunum.
Elsu amma, við skulum líta
eftir afa fyrir þig. Guð geymi þig,
elsku amma.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Gunnlaugur Agnar, Helga
Magnea, Hulda Kristín
Gunnlaugsbörn.
Elsku amma.
Þegar við systkinin settumst
niður og fórum að rifja upp gaml-
ar minningar frá því þegar við
vorum í pössun í Drápuhlíðinni,
eða þegar við systurnar fengum
að fara með í sumarbústaðinn, þá
kemur fyrst og fremst í huga
okkar hversu gott og rólegt var
að koma til ykkar. Alltaf svo gott
að borða, við vorum jú með mat-
arást á þér, amma.
Að fara í sumarbústaðinn og
tína ber á haustin eða hjálpa ykk-
ur að vinna eins og þú sagðir allt-
af eru minningar sem verða í
huga okkar alla tíð.
Síðustu árin höfum við hitt þig
og afa á Þorláksmessu í sköt-
veislu hjá mömmu og pabba og
þá var alltaf mikið hlegið og
spjallað. Þín á eftir að verða sárt
saknað þar.
Nú hefur amma Kristín fengið
þig til sín og vitum við að þú ert í
góðum höndum.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Hvíldu í friði, elsku amma okk-
ar.
Daníel, Hulda og Lilja
Jónsbörn.
Erfitt er að horfa á eftir þér
fara. Ég á eftir að sakna þín svo
mikið. Ég hef verið að hugsa um
allt það sem þú hefur gefið mér í
gegnum árin. Fullt af visku og
góðum ráðum. Ég hef aldrei
kynnst jafn sterkri manneskju og
þér og mun alltaf stefna að því að
verða svona sterk sjálf. Þú
kenndir mér svo margt og ég
mun geyma það alla mína ævi og
kenna mínum börnum það sama.
Þú kenndir mér að vera sjálf-
stæð, að standa með sjálfri mér
og hugsa vel um sjálfa mig því
það gerir það enginn fyrir mann.
Vera dugleg og samviskusöm og
leggja allan minn metnað í það
sem ég tek mér fyrir hendur. Þú
varst alltaf í liðinu mínu að hvetja
mig áfram.
Þú lagðir áherslu á menntun
og sagðir mér að það væri eitt-
hvað sem enginn gæti tekið af
mér. Þú átt stóran þátt í því að ég
hef lagt metnað minn í menntun
mína. Þú kenndir mér það að það
skiptir ekki máli hversu mikla
peninga maður aflar, það skiptir
máli hvernig maður fer með þá.
Þú varst mér hvatning til að
horfa öðuvísi á lífið. Þú gekkst í
gegnum svo margt en lést ekkert
buga þig. Alltaf hélstu áfram.
Hreinskilnin þín er eitthvað sem
ég mat mikils. Það var gott að
geta leitað til þín og þú sagðir
hlutina eins og þeir voru.
Ég man svo vel eftir árinu sem
ég og Jói bjuggum hjá ykkur afa.
Þú kenndir mér að hugsa vel um
umhverfið mitt og ganga vel um.
Ég man eftir því þegar þú og afi
gáfuð mér fyrstu skólatöskuna
mína. Hún var með fullt af leyni-
hólfum og mér fannst hún flott-
ust í heimi. Ég man einnig eftir
göngutúr sem ég og þú fórum í á
Miklatún og söfnuðum greinum í
vasa, þú sagðir að þær myndu
taka við sér og blómstra sem þær
gerðu. Allar stundir sem ég og
Jói eyddum með þér og afa uppi í
bústað geymi ég hjá mér. Það var
svo skemmtilegt að leika sér í
landinu, hvort sem það var að
róla sér eða dunda sér á smíða-
pallinum.
Mér þótti svo vænt um að geta
leitað til þín þegar mig vantaði
ráð í eldhúsinu. Ósjaldan hringdi
ég og spurði hvernig ætti að elda
hitt og þetta. Þú áttir alltaf til góð
ráð fyrir mig.
Ég hlakkaði alltaf til jólanna
því þá færi ég til þín í jólaboð.
Maturinn var svo góður og ég
tala nú ekki um karamellukökuna
þína sem þú og afi kennduð mér
síðan að baka, besta kakan í
heimi.
Ég elska þig svo mikið og þú
varst mér mikil fyrirmynd. Ég á
fullt af góðum og skemmtilegum
minningum um þig og ég er þakk-
lát fyrir þær allar. Ég mun
geyma þig í hjarta mínu og alla
þá visku sem þú gafst mér.
Þín
Björg.
Elsku amma mín, þú varst svo
stór partur af lífi mínu og mótaðir
mig svo mikið að þeim manni sem
ég er í dag. Umhyggja þín var
einstök þegar þú komst inn til
mín og Bjargar áður en við áttum
að fara að sofa, settist hjá okkur
og baðst Guð að geyma okkur. Þú
athugaðir alltaf hvort ég væri
ekki nógu vel klæddur í hvert
sinn sem ég kom til þín.
Það voru ófá hádegin sem ég
kom til þín og alveg sama hvað
maður bað þig að hafa ekki fyrir
manni þá bjóstu alltaf til mat
handa mér. Ég var sko ekki á
móti því enda var maturinn svo
góður að ég fór alltaf pakksaddur
út. Þegar ég fer að hugsa um mat
og þig amma þá fer ég að hugsa
um karamellukökuna þína, kakan
sem maður beið eftir á hverjum
jólum og í hverri veislu. Amma þú
varst mér mikil hvatning og fyr-
irmynd. Þú hvattir mig til að
drífa mig í að ná mér í einhverja
menntun, alveg sama hver hún
væri, bara að mennta mig. Þú
kenndir mér að vera harðdugleg-
ur og aldrei að gefast upp. Alveg
frá því að ég man fyrst eftir mér
hefurðu verið að búa mig undir
lífið. Setning frá þér situr svo fast
í mér, þú sagðir alltaf: Passaðu
upp á sjálfan þig því enginn gerir
það fyrir þig.
Guð geymi þig amma.
Jóhannes (Jói).
Hulda Sigríður
Þórðardóttir
Elsku amma og fósturmamma
mín. Í dag hefðirðu orðið 69 ára,
sem er enginn aldur. Þú hefðir átt
Vilborg
Þóroddsdóttir
✝ Vilborg Þór-oddsdóttir frá
Fjallalækjarseli í
Þistilfirði fæddist í
Garði í Þistilfirði
27. september
1942. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn
9. mars 2011.
Útför Vilborgar
fór fram frá Sval-
barðskirkju í Þist-
ilfirði 19. mars 2011.
að eiga svo mörg góð
ár eftir. Innilega til
hamingju með af-
mælið. Mikið rosa-
lega er erfitt að
skrifa þessar línur
því ég er enn að átta
mig á því að þú sért
farin. Vildi að ég
hefði þig ennþá hjá
mér. En ég veit þér
líður vel og afi hefur
verið feginn að hitta
kerlu sína aftur.
Fyrsta minningin um þig var í
eldhúsinu í sveitinni, alltaf að elda
mat eða baka. Ég fékk alltaf að
vera með þér þegar þú bakaðir
kleinurnar, fékk að snúa upp á
þær. Alltaf reyndi ég að teygja
meira á þeim en átti að gera til að
stækka þær. Ég hlýt nú að hafa
verið frekar erfiður krakki, alltaf
fyrir í eldhúsinu þegar ég mátti
ekki vera þar. Þú stoppaðir aldrei
á meðan heilsan leyfði, varst alltaf
í eldhúsinu að elda eða baka,
prjóna sokka, vettlinga eða húfur,
úti á túni að raka yfir sumartím-
ann eða í fjárhúsinu þegar sauð-
burðurinn stóð yfir. Ég fékk að
vaka með þér fyrst þegar ég byrj-
aði að aðstoða í sauðburðinum.
Á seinni árum gerðir þú mjög
falleg bútasaumsteppi í höndun-
um sem mjög fögur orð fara af.
Þér tókst á endanum að kenna
mér að prjóna eftir að þú fluttir á
Þórshöfn, ég prjóna reyndar ekk-
ert flókið, bara einfalda hluti til að
lenda ekki í vandræðum. Við
eyddum mörgum góðum stundum
þar síðustu árin þín. Ég er mjög
þakklát fyrir að hafa hætt að vinna
sumarið 2008 til að geta eytt með
þér síðustu árunum á sumrin. Ég
vil þakka þér fyrir allt sem þú
gafst mér og kenndir mér. Ég veit
að það mun koma mér að góðum
notum á lífsleiðinni. Ég bjó við
mikið öryggi að hafa ykkur afa
þegar ég var að alast upp. Ég veit
að þér líður vel núna en sorgin er
engu að síður til staðar í hjarta
mér og verður þar um ókomin ár.
Ég geymi þig á góðum stað í
hjarta mér um alla ævi. Þangað til
við hittumst aftur bið ég kærlega
að heilsa afa og vona að þið hafið
það gott saman. Valur þakkar þér
kærlega fyrir allar samverustund-
irnar á liðnum árum bæði í sveit-
inni og á Þórshöfn og biður kær-
lega að heilsa gamla.
Ég elska þig, amma mín og
fósturmamma.
Þín
Anna.
Fyrir liðlega tveimur áratug-
um kynntumst við félagarnir
Guðmundi og Salóme, afa og
ömmu Gumma vinar okkar, sem
átti sitt annað heimili hjá þeim á
þessum árum. Í kringum
Gumma var jafnan stór hópur
vina, sem ávallt var velkominn á
heimili þeirra hjóna.
Þær eru minnisstæðar heim-
sóknirnar í Holtagerðið, þar sem
Salóme bar jafnan fram miklar
kræsingar og Guðmundur sat í
hægindastólnum sínum í stof-
unni og messaði á sinn hógværa
hátt yfir okkur guttunum í líf-
legum umræðum um stjórnmál
og önnur málefni líðandi stund-
ar.
Eftir ótímabært fráfall
Gumma fyrir hartnær 17 árum
hefur heimili þeirra verið kjöl-
festan í árlegum áramótahittingi
Gummavinafélagsins, þar sem
Guðmundur
Árnason
✝ GuðmundurÁrnason fædd-
ist í Grindavík 21.
mars 1923. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
19. september
2011.
Útför Guð-
mundar fór fram
frá Kópavogskirkju
26. september
2011.
við tökumst á um
heimsyfirráð í Risk-
spilinu ásamt Stíg,
öðrum dóttursyni
Guðmundar og Sal-
óme.
Þau kynni við
Guðmund sem hóf-
ust á menntaskóla-
árum okkar hafa
haldist æ síðan og
sátum við félagarn-
ir, fulltíða menn,
enn sem áður við fótskör meist-
arans í Holtagerðinu um síðustu
áramót. Ekki hvarflaði að okkur
að það yrði í síðasta skipti sem
við nytum samvista við þann
mæta mann.
Guðmundur var skarpgreind-
ur, vel lesinn og hvers manns
hugljúfi. Þótt líkaminn gæfi eftir
í glímunni við elli kerlingu á síð-
ustu árum var hugurinn beittur
og hugsunin skýr allt til dán-
ardags.
Við þökkum Guðmundi fyrir
samverustundir í gegnum árin,
heiðursmaður er genginn.
Salóme og öðrum aðstandend-
um vottum við okkar innilegustu
samúð.
Agnar Sturla Helgason,
Auðunn Arnórsson,
Guðbrandur Örn Arnarson,
Hjörtur Þór Grjetarsson,
Óðinn Albertsson,
Ólafur Sveinsson.