Morgunblaðið - 27.09.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
4 6 1
8 6
2 9 3 1 4
1 2 7
9 2 6
3
7 8 1 2
3 9
4 2 8
2 4 6 9 8
6 2 3 4 9
9 3 1
9 4
4
1
8 1 7
4 9 3 6
7 8
3 5 1
4 6 3
8 4
7 5 3 2
3 2 1
6 1 4
9 8
9 5 2 7
1 2 9 3 6 7 8 5 4
7 5 3 1 8 4 6 9 2
6 8 4 5 9 2 1 7 3
4 9 2 6 1 3 5 8 7
3 1 7 4 5 8 9 2 6
8 6 5 7 2 9 3 4 1
5 4 6 9 7 1 2 3 8
9 7 8 2 3 6 4 1 5
2 3 1 8 4 5 7 6 9
4 8 1 9 3 5 2 7 6
2 7 3 6 1 8 4 9 5
6 9 5 4 7 2 3 1 8
8 2 9 3 5 6 1 4 7
3 5 6 1 4 7 8 2 9
7 1 4 8 2 9 6 5 3
1 6 7 2 9 3 5 8 4
5 3 2 7 8 4 9 6 1
9 4 8 5 6 1 7 3 2
9 6 5 3 4 1 7 2 8
7 3 4 5 2 8 6 9 1
1 2 8 7 6 9 4 3 5
6 4 3 8 1 5 2 7 9
8 7 9 4 3 2 1 5 6
5 1 2 9 7 6 8 4 3
4 9 7 1 8 3 5 6 2
2 5 1 6 9 7 3 8 4
3 8 6 2 5 4 9 1 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 27. september,
270. dagur ársins 2011
Orð dagsins: „Á því munu allir
þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar,
ef þér berið elsku hver til annars.“
(Jh. 13, 35.)
Vinkonu Víkverja, sem er grjót-harður stuðningsmaður Vík-
ings, brá í brún á dögunum þegar
maður nokkur kom að máli við hana
og óskaði henni til hamingju með
sína menn. „Hvað áttu við?“ spurði
vinkonan hvumsa. „Nú, ég frétti að
Víkingur væri kominn í 1. deild.“
Þar sem vinkonan þekkir viðmæl-
anda sinn áttaði hún sig strax á því
að hér var um einlægni en ekki kald-
hæðni að ræða. Maðurinn, sem fylg-
ist sáralítið með knattspyrnu, hélt í
raun og veru að lið kæmust ekki ofar
en í 1. deild og óraði ekki fyrir því að
Víkingur hefði verið að falla úr úr-
valsdeild í þá fyrstu.
Lái manninum hver sem vill, auð-
vitað er það snargalið að næstefsta
deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu
heiti 1. deild. Hvers vegna í ósköp-
unum heitir hún ekki 2. deild? Er
eitthvað sem mælir gegn því? Er
ekki úrvalsdeild eða Pepsideild, eins
og hún heitir formlega, ekki hin
raunverulega 1. deild? Er eitthvað
fyrir ofan fyrsta sæti í keppni? Allt-
ént sér maður ekki alþjóðaólympíu-
nefndina samþykkja að veita fyrst
verðlaun fyrir úrvalssæti, síðan
fyrsta sæti og loks annað sæti.
x x x
Fyrirkomulagið með heiti deildaer ennþá ruglingslegra í Eng-
landi. Þar er 1. deild í raun og veru
3. deild. Fyrst kemur Premier
League, síðan Championship, þá
League 1 og League 2. Mögulega er
þetta einhver sálfræði. Það lítur
vissulega betur út á ferilskránni að
hafa leikið í fyrstu deild en þeirri
þriðju.
Til að forðast misskilning hafa
gárungarnir stungið upp á því að
eyða tölustöfum með öllu í deilda-
keppninni í Englandi, kalla deild-
irnar einfaldlega Premiership,
Championship, Unstable ship og
Sinking Ship.
Víkverji ræddi málið við vinkonu
sína, sem getið er um í upphafi þessa
pistils, og hún er honum hjartanlega
sammála um að breyta þurfi nöfnum
neðrideildanna á Íslandi. „Bíðum þó
með það þangað til eftir næsta tíma-
bil, þegar við Víkingar verðum búnir
að vinna 1. deildina!“ víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þroti, 4 hvítleitar,
7 moðreyks, 8 greinilegt, 9
nóa, 11 sjá eftir, 13 kunna
skil á, 14 diskagrind, 15 illt,
17 tryggur, 20 gljúfur, 22
látna, 23 eins, 24 seint, 25
heyið.
Lóðrétt | 1 baggi, 2 slátrar,
3 svara, 4 lýður, 5 kvæði, 6
nagdýr, 10 óreiðu, 12 upp-
lag, 13 skynsemi, 15 hrakn-
ings, 16 tómið, 18 slitið
sundur, 19 spillt, 20 vegur,
21 ófríð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 utangátta, 8 skafl, 9 teppa, 10 afl, 11 rúður, 13 arður,
15 höggs, 18 skúta, 21 kák, 22 loðna, 23 eflir, 24 hræðilegt.
Lóðrétt 2 trauð, 3 nafar, 4 áætla, 5 tapið, 6 Æsir, 7 barr, 12 urg,
14 rok, 15 héla, 16 góðir, 17 skarð, 18 skell, 19 útlæg, 20 aurs.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Afturganga. A-AV.
Norður
♠8
♥ÁK65432
♦Á2
♣Á85
Vestur Austur
♠G94 ♠KD1076532
♥D7 ♥–
♦KD109764 ♦853
♣3 ♣102
Suður
♠Á
♥G1098
♦G
♣KDG9764
Suður spilar 6♣ dobluð.
Lightner gamli gekk aftur á spila-
kvöldi BR í síðustu viku og var til
vandræða eins og venjulega. Á fjórum
borðum vann suður doblaða slemmu
með yfirslag eftir misheppnað útspils-
dobl. Sagnir voru á þessum nótum:
opnun á 4♠ í austur, 5♣ í suður, 5♠ í
vestur og hæversk 6♣ í norður. Nú
Lightner-doblaði austur út á eyðuna í
hjarta til að biðja um „útspil í lengsta
hliðarlit“. Vestur var ekki í vafa og
þrumaði út ♦K: 13 slagir.
Ekki þar fyrir – útspil í hjarta
bjargar bara yfirslagnum. En af
hverju redoblaði norður hvergi? Ja,
þrátt fyrir stöður var norður hræddur
við fórn í 6♠. Alveg réttilega, því 6♠
fara bara tvo niður (sem gera 500 í
staðinn fyrir 1190). Annars er athygl-
isvert að ekkert NS-par sagði al-
slemmu.
27. september 1922
Íslensk mynt fór í dreifingu í
Reykjavík. Upphaflega voru
slegnir 10 aurar og 25 aurar
en krónan var slegin 1925.
27. september 1958
Minnismerki um Þorstein Erl-
ingsson var afhjúpað í Hlíðar-
endakoti í Fljótshlíð, á aldar-
afmæli skáldsins, og heildar-
útgáfa á verkum hans kom út.
Meðal þekktra kvæða Þor-
steins eru Sólskríkjan (Sú
rödd var svo fögur) og Í Hlíð-
arendakoti (Fyrr var oft í koti
kátt).
27. september 1982
Platan Draumur aldamóta-
barnsins kom út. Þar birtist Ís-
land er land þitt, lag Magnús-
ar Þórs Sigmundssonar við
ljóð Margrétar Jónsdóttur, í
fyrsta sinn.
27. september 1999
Samtökin „Verndum Laugar-
dalinn“ afhentu Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgar-
stjóra undirskriftir 35 þúsund
borgarbúa sem mótmæltu
fyrirhuguðum byggingar-
framkvæmdum í Laugardal.
Borgarstjóri sagði ekki hægt
að horfa framhjá þessum mót-
mælum.
27. september 2007
Heimildarmyndin Heima var
frumsýnd í Háskólabíói. Hún
fjallar um tónleikaferðalag
hljómsveitarinnar Sigur Rósar
um Ísland sumarið 2006.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins
gaf myndinni fimm stjörnur
og sagði hana „sérlega hug-
hrífandi verk sem fer vel í
augu og eyru“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Þar sem fimmtugsafmæli organistans í Hallgríms-
kirkju ber upp á þriðjudag verður ekki blásið í
neina lúðra í dag, en á laugardaginn sest hann við
orgelið á vinnustaðnum og heldur afmælistónleika
fyrir boðsgesti; fjölskyldu, nánustu vini og sam-
starfsfólk. „Á eftir ætla ég að láta klingja glösum
og fagna með gestum mínum,“ segir Björn Steinar
Sólbergsson, sem einnig er skólastjóri Tónskóla
þjóðkirkjunnar.
Björn Steinar og eiginkona hans, Hrefna Harð-
ardóttir leirlistamaður, eiga lögheimili í Heiðar-
túni í Eyjafjarðarsveit en halda einnig heimili í
Reykjavík. Áður var hann organisti í Akureyrarkirkju.
Björn Steinar er Skagamaður; fæddur og uppalinn á Akranesi. Seg-
ist þó hálfur Norðlendingur og hálfur Borgfirðingur. „Móðir mín er
ættuð úr Borgarfirði en föðurleggurinn er úr Skagafirði og Svarf-
aðardal.“ Organistinn hefur ekki óskað sér neins sérstaks í afmælis-
gjöf. „En ég er forfallinn silungsveiðimaður, veiði bara á flugu og
gjafir tengjast oft því áhugamáli …“ Í veislunni verður einmitt í boði
silungur sem afmælisbarnið veiddi sjálft. „Ég geri mikið af því að
veiða á Norðurlandi yfir sumartímann.“ skapti@mbl.is
Björn Steinar Sólbergsson er fimmtugur í dag
Orgeltóna- og silungsveisla
Nýirborgarar
Reykjavík Stef-
án Daði Sigurðs-
son fæddist 23.
apríl kl. 24.00.
Hann vó 3.560 g
og var 51 cm
langur. For-
eldrar hans eru
Ólöf Birna Mar-
grétardóttir og
Sigurður James
Þorleifsson.
Reykjavík
Guðmundur
Brynjar fædd-
ist 1. júlí. Hann
var 15 merkur
og 51 cm lang-
ur. Foreldrar
hans eru Rán
Ingvarsdóttir
og Bergur
Ebbi Bene-
diktsson.
Flóðogfjara
27. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.53 4,2 12.05 0,1 18.08 4,4 7.25 19.14
Ísafjörður 1.54 -0,0 7.54 2,3 14.11 0,0 20.02 2,5 7.31 19.18
Siglufjörður 4.04 0,0 10.17 1,4 16.12 0,1 22.29 1,4 7.14 19.01
Djúpivogur 3.03 2,3 9.15 0,2 15.25 2,3 21.32 0,2 6.55 18.43
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Á meðan aðrir leika sér einbeitir þú
þér að sérstöku verkefni. Gerðu það besta
sem þú getur í hverju verkefni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft á hvíld og friði og ró að halda.
Gættu þess að gera alls ekkert að óathuguðu
máli á peningasviðinu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nú er rétti tíminn til að framkvæma
hugmyndir sem komu upp í hugann í gær.
Skyldan kallar svo þú þarft að gera þitt besta
í stöðunni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þótt líðan þín sé ekki með besta móti
mun það ástand ekki vara lengi. Láttu alla
hlutaðeigandi koma með hugmyndir og
finndu svo lausn sem allir geta sætt sig við.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fólk er óvenju þrætugjarnt í dag og því
er þetta afleitur dagur til alvarlegra sam-
ræðna við maka þinn og nána vini.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Sýndu fjölskyldunni þolinmæði og
þeim sem þú býrð með. Gættu þess bara að
reyna ekki að slá ryki í augu áheyrenda þinna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur fyllstu ástæðu til þess að vera
ánægður með framlag þitt ef þú bara varast
að láta ofmetnað ná tökum á þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú vilt gera þér dagamun og þá
er alltaf skemmtilegra að hafa fleiri með í för.
En þótt gaman sé að rifja upp fortíðina er það
framtíðin sem þú þarft að hafa í huga.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ætlast einhver í alvöru til þess að
þú lesir huga hans? Greinilega. Óvænt upp-
hlaup samstarfsfólks eða ættingja ganga
fram af þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ágreiningur við vini og maka fer
lítillega úr böndunum í dag. Láttu jákvæðni
þína smita út frá þér og þá munu hlutirnir
ganga árekstralaust fyrir sig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft að varast svo harða fram-
göngu að heilsu þinni kunni að stafa hætta
af. Einbeittu þér að málum heimilisins bæði
innan veggja sem utan.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er sama hversu gamall þú verður,
þú ert alltaf barn foreldra þinna. Fylgdu eðl-
isávísun þinni. Að einhver þarfnist þín er hið
mesta mögulega hól.
Stjörnuspá
Staðan kom upp á Norðurlandamóti
öldunga (60 ára og eldri) sem lauk
fyrir skömmu í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur í Faxafeni. Dan-
inn Bent Sorensen (2341) hafði
hvítt gegn heimamanninum Sigurði
E. Kristjánssyni (1924). 54. Hg6+!
og svartur gafst upp enda mát eftir
54… hxg6 55. Dg7#. Lokastaða
efstu manna varð eftirfarandi: 1.-2.
Jorn Sloth (2328) og Yrjo Rantanen
(2400) 7 vinninga af 9 mögulegum.
3.-4. Friðrik Ólafsson (2434) og
Nils Malmdin (2307) 6 1/2 v. 5.-6.
Heikki Westerinen (2340) og Per
Ofstad (2182) 6 v. Daninn Jorn
Sloth varð Norðurlandameistari eft-
ir stigaútreikning og Friðrik Ólafs-
son náði bestum árangri Íslendinga
en hann varð þriðji eftir stigaút-
reikning.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.