Morgunblaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 288. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Á tánum vegna Kötlu
2. Ástæðan fyrir að Jobs var …
3. Fékk bílinn borgaðan tvisvar
4. Í einangrunarklefa í 27 ár
Hljómsveitin Todmobile gefur út
nýja plötu, 7, hinn 10. nóvember
næstkomandi. Nýir meðlimir eru
gengnir til liðs við hana og nýtt lag er
komið í spilun, „Sjúklegt sjóv“.
Glæný Todmobile
stígur fram
Hannes Sig-
urðsson, listfræð-
ingur og for-
stöðumaður
Listasafnsins á
Akureyri, hefur
verið ráðinn for-
stöðumaður nýrr-
ar sjónlista-
miðstöðvar í
Listagilinu á Akureyri.
Sjónlistamiðstöðin verður til með
sameiningu Menningarmiðstöðv-
arinnar í Listagili og Listasafnsins á
Akureyri.
Hannes mun stýra
sjónlistamiðstöð
Vigdís Finnbogadóttir hlýtur Heið-
urspening Alliance française á ald-
arafmæli þess hinn 16. október.
Við þetta tækifæri afhendir Jean-
Claude Jacq, aðalritari
Fondation Alliance
française í París og
æðsti maður Alli-
ance française á
heimsvísu, Vig-
dísi Finn-
bogadóttur
Heiðurspen-
ing Alliance
française.
Alliance française
heiðrar Vigdísi
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt 8-13 m/s og skúrir, en þurrt að kalla norðan- og aust-
anlands. Hægari vindur í kvöld. Hiti 4 til 11 stig.
Á sunnudag Norðaustan 13-20 m/s um landið norðvestanvert og snjókoma eða slydda,
en mun hægari austlæg átt sunnan- og austantil. Hiti 0 til 5 stig.
Á mánudag og þriðjudag Hvöss norðan- eða norðaustanátt og snjókoma eða éljagang-
ur fyrir norðan og austan en annars bjart með köflum. Kólnandi veður.
Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH í
fótboltanum, segir að það sé einn af
ljósu punktum sumarsins að hann
skyldi verða efstur í einkunnagjöf
Morgunblaðsins. „Það fylgjast allir
með einkunnagjöfinni og mönnum
finnst gaman að ræða málin hvað
þetta varðar,“ segir Matthías sem
stefnir á atvinnumennsku og telur
sig tilbúinn í þann slag. »2-3
Einn af ljósu punkt-
unum á sumrinu
Sextán ára Valsstúlka er
komin á Ameríkuleikana í
Mexíkó þar sem hún spilar
með A-landsliði Bandaríkj-
anna í handknattleik. Morg-
an Þorkelsdóttir skoraði sex
mörk í síðasta æfingaleik
liðsins en í dag tekur alvar-
an við og Morgan og sam-
herjar stefna að því að ná
sem lengst og berjast um
sæti á Ólympíuleikunum í
London. »3
Sextán ára og
stefnir á ÓL
Fanney Lind Guðmundsdóttir, 22 ára
Hvergerðingur, er orðin atvinnumað-
ur í körfubolta í Frakklandi. Hún fær
„au pair“ til að gæta fjögurra ára
gamallar dóttur sinnar á meðan hún
æfir. „Hér er engin enska töluð og ég
hlusta á þjálfarann gefa
skipanir á frönsku á öll-
um æfingum og reyni
svo að finna út hvað
hann var að segja,“
segir Fanney í við-
tali við Morgun-
blaðið. »3
Reynir að finna út hvað
þjálfarinn segir
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„Mér líður ekki eins og þetta sé ein-
hver sigur; niðurstaðan er mér eng-
inn léttir. Það hefur verið vitað að
mistök voru gerð en samt er rosa-
lega erfitt að heyra það loks við-
urkennt formlega,“ segir Hanna
Lára Magnúsdóttir, móðir 18 ára
drengs sem í vikunni voru dæmdar
rúmar 30 milljónir króna í skaða-
bætur frá ríkinu vegna mistaka á
Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Arnar Þór Stefánsson var ellefu
ára þegar hann fór í aðgerð á FSA
og lenti í kjölfarið í öndunarstoppi
og síðan hjartastoppi, í hálfa
klukkustund, og vegna súrefnis-
skorts urðu heilaskemmdir það
miklar að hann er 100% öryrki,
bundinn hjólastól, verulega spast-
ískur, sér mjög illa og tjáir sig ekki.
Bótaupphæðin gæti hugsanlega
náð um það bil 40 milljónum króna
með vöxtum, en það samsvarar því
að Arnar fengi greiddar 80 þúsund
krónur á mánuði til 58 ára aldurs.
Það þykir móðurinni ekki mikið, en
þetta eru hæstu mögulegar bætur
skv. taxta ríkisins.
Foreldrar Arnars Þórs segja pen-
ingana ekki skipta meginmáli og
Hanna bendir á að engin fjárhæð
gæti bætt syni hennar skaðann.
„Það er ekki hægt að verðleggja líf-
ið. Addi nær sér aldrei. Líf hans er
ónýtt,“ segir hún.
„Aðalatriðið fyrir okkur var að
fá að vita hvað gerðist; hvers vegna
Addi lenti í hjartastoppi, en það
kemur ekki fram,“ segir Stefán
Rögnvaldsson, faðir Arnars Þórs,
um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur.
Sjúkrahúsið á Akureyri hafnaði
því á sínum tíma að greiða hjón-
unum bætur og var vísað til skýrslu
embættis landlæknis um málið, þar
sem fram kemur að útilokað sé að
segja að einn þáttur öðrum fremur
hafi óyggjandi haft úrslitaþýðingu.
Þess vegna var farið í mál við ríkið
á sínum tíma.
Arnar er í stífri sjúkraþjálfun og
foreldrar hans gera hvað þau geta
til þess að gera honum lífið bæri-
legt. „Við dröslum honum um allt.
Hann fær ekki að sitja einhvers
staðar úti í horni og láta sér leið-
ast,“ segir Stefán. Arnar er harður
stuðningsmaður enska knatt-
spyrnufélagsins Liverpool og fjöl-
skyldan fór einmitt utan á leik í vor.
Þá er Addi tíður gestur á tónleikum
á Akureyri. Rætt er við Hönnu Lára
og Stefán í Sunnudagsmogganum.
Gaman Feðgarnir Arnar Þór og Stefán Rögnvaldsson á Anfield Road, heimavelli Liverpool, á síðastliðnu vori.
Líður ekki eins og þetta
sé einhvers konar sigur
Átján ára dreng dæmdar 30 milljónir vegna mistaka á FSA
„Ég get ekki sagt að ég sé sérfræð-
ingur í íslenskri knattspyrnu um
þessar mundir. Ef þú hefðir spurt
mig fyrir nokkrum árum, þegar við
mættum Íslendingum í tveimur leikj-
um, hefði ég getað svarað öllum
spurningum þínum um íslenska
landsliðið. Ég hef hins vegar sex
mánuði til að hitta leikmennina og sjá
þá spila. Vonandi munum við einnig
fá tvo eða þrjá vináttulandsleiki á
þeim tíma. Ég mun leggjast yfir alla
landsleiki Íslands síðustu tvö árin að
minnsta kosti. Þegar kemur að fyrsta
leik Íslands í stórmóti undir minni
stjórn, þá lofa ég þér því að ég mun
vita allt um íslenska knattspyrnu-
menn,“ sagði nýráðinn landsliðsþjálf-
ari karla í knattspyrnu, Lars Lag-
erbäck, þegar Morgunblaðið tók
hann tali á blaðamannafundi í höf-
uðstöðvum KSÍ í Laugardal í gær.
Lagerbäck er 63 ára gamall Svíi og
hefur þjálfað hjá sænska knatt-
spyrnusambandinu nánast allan sinn
feril. Hann kom sænska landsliðinu
fimm sinnum í röð í lokakeppni EM
og HM 2000-2008. Hann stýrði Níg-
eríu í lokakeppni HM á síðasta ári.
» Íþróttir
Morgunblaðið/Ómar
Svíinn Lars Lagerbäck landsliðs-
þjálfari á blaðamannafundi í gær.
Leggst
yfir alla
landsleiki
Lars Lagerbäck
tekinn við landsliðinu