Líf og list - 01.12.1950, Side 15
og óhollra, gætir víða í list okkar,
eldri sem yngri. Sí og æ renna upp
ný skeið í myndlist hans — lista-
maðurinn hefir lifað lengi í inni-
legum tengslum við náttúru lands-
ins og sífellt verið að sjá hana í
nýju ljósi, eins og marka má af
myndum hans, enda þótt valið á
þeim sé miður heppilegt á ýmsan
hátt. Til eru fallegar myndir eftir
Asgrím frá ýmsum öðrum tíma-
bilum, sem væri betri kynning á
list hans en sú á sýningunni. Eink-
um eru olíumálverkin áberandi ó-
smekklega valin í heild. Eitt þeirra
Sumar (nr. 2) sker sig þó úr að feg-
urð. Sú mynd er byggð á sama
mótívi og myndirnar nr. 1 og 6, en
munurinn er sá, að myndin Sumar
er gædd þróttmeiri og hreinni lita-
gjöf en liinar síðarnefndu — ekki
eins hrá og þær. Þó að Ásgiímur
virðist yfirleitt leggja öllu meiri
áherzlu á hæfileika lita en bein-
línis formið sjálft, sé kóloristi
fremur en formalisti, fer því víðs
fjarri, að formbygging þessarar
myndar bíði af því hnekki. Faar
myndir sýningarinnar eru jafn-
gagnhugsaðar að því leyti.
Myndir JÓNS STEFÁNSSON-
AR eru yfirleitt svo samfelldar að
gæðurn, að ekki er ofsögum sagt,
að þær skyggi á flest önnur mál-
verk þar á sýningunni. List hans
skipar þarna öndvegi, þegar á
heild er litið — ekki sízt ef hún er
lögð á vogarskálarnar við lengri
og nánari kynni. Þá kemur æ bet-
ur í ljós, að myndir hans vaxa yfir
flest önnur verk í íslenzkri rnynd-
list. Þó að Jón 'máli stundum að
sumu leyti öllu meira með heil-
anurn en hjartanu, fer hann sjaldn-
ast varhluta af þeixn innblæstri, er
gagntekur listamannshjarta. Sú
tignarlega fyrirmennska og menn-
ingarfágun, sem hapn glæðir
myndir sínar, sú djúpa hugsun og
riikvissa, sem einkcnnir myndirn-
ar: allt þetta gctur, ef til vill, ork-
að fráhrindandi og kaldranalegt
við fyrstu sýn. Margur mun hugsa:
hér vantar líf og leik (sprell), lífs-
og listargleði. En við nánari tengsl
og kynni af list hans vitnast, að
bak við þennan oddborgarahjúp
býr falinn eldur lífshrifni og ein-
lægni, sem logax' varanlega.
Um JÓHANNES KJARVAL
gildir hið sama og malarann Cha-
gall, að örðugt er að gera sér skýra
grein fyrir því, hvers vegna list
þeirra nær til dulinna kennda.
List Kjarvals er svo ótæmandi -
svo yndiþrungin, að hún gctur
aldrei lotið neinum lögmálum
raunveruleikans. — Kjarvál er og
verður óráðin spurn úr duliðs-
heimum.
7. des. 1950.
Steingrímur Sigurðsson.
Jón Stefónsson: Stúlko i Ijósrauðri blússu
Jón Stcfónsson, listmólari
LÍF og LIST
11