Líf og list - 01.12.1950, Page 20

Líf og list - 01.12.1950, Page 20
— BERNARD SHAW Frh. af bls. 14 nú hafði þetta krabbameinsæxli tekið sig upp á nýjan leik, og var nú útséð um, að hún ætti ekki lengur en sex mánuði ólifað. Ég hafði alltaf búizt við að deyja á undan konu minni. Þetta fékk hræðilega á mig. En atburður þessi kom af stað einkennilegu gönuhlaupi hjá Shaw. Hann fékk þá flugu í höfuðið að skrifa mér, að þettá væri allt sam- an tilbúningur og vitleysa úr konu minni, og ef hún dæi, væri það sjálfri henni mestmegnis að kenna. Það væri alls ekki til neitt, sem héti krabbamein, og þar fram eftir götunum. Þetta kjánafega og óskamm- feilna bréf kom til skila ásamt bréfi frá Charlotte Shaw, konu sans. Ég átti ekki að skipta mér af þessu, skrifaði Charlotte. Ég átti livorki að særa mig né hann með því. Hann varð að gera þetta. Hún reyndi að sporna við þessu atferli eiginmanns síns — og það varð æ meir og meir hlutskipti liennar síðar á ævinni að halda aft- ur af honum. Hún hafði gifzt þessum torskilda og geðflókna manni og orðið yfir sig heilluð af honum. Hún lagði fé sitt af mörkum, til þess að koma leikritum hans vel á framfæri, svo að hann varð brátt háður henni. Og henni varð ljóst, að hún hafði átt sinn þátt í því að ýta þessu ó- útreiknanlega, hverfula vandræða- barni með snillingsgáfuna út í heiminn. ☆ Tár hans. ghaw grét sáran, þegar hans ást- kæra eiginkona dó; hann grét hvar sem hann fór um London. Flest okkar, sem komin eru eitt- hvað til ára okkar og kynnzt hafa ástinni, þekkjum þá ólæknandi sorg, sem hlýzt af því, að kasta á glæ ótai tækifærum til þess að sýna ástúð, og liversu ýmis smávæg atvik geta spillt fyrir velferð ástar- lífs og skapað hugarvingl. Síðar vitnast ætíð, að allt hefði mátt fara á annan og miklu betri veg. Shaw saup dreggjarnar af þess- um bikari sorgarinnar — og síðan virtist allt gleymt. Þannig er því háttað með okkur gamla fólkið. í hrörnun þankans verður fyrst vart við gleymnina. Shaw sá, sem nú er nýlátinn, er sami Shaw og hann var fyrir tutt- ugu árum. Shaw sá, sem á eftir kemur, hefur verið grátinn á braut. En mig langaði aldrei til þess að sjá hann, er Charlotte var horfin honum. Og ég forðaðist hann upp frá því að fundum okk- ar hafði eitt sinn borið saman. Shaw er ein þeirra sálgerða, sem líta á jarðnesk auðæfi raunsæjum augum, en skoða þau ekki sem spilapeninga, og mér kæmi ekki á óvart, að hann hefði ráðstafað hinum mikla auði sínum í eins konar Þjóðleikhús, sem mun halda nafninu Shakespeare-Shaw hátt á lofti um ókomnar tíðir. Stgr. Sig. ísl. — Persónuleiki SHAWS Frh. af bls. 15 sinni. En ekki gátu þó gagnrýnend- ur sannað á hann eftiröpun eða stuld úr verkum Euripidesar, Shakespeares og Molieres, vegna Jiess hve efnið í leikritum hans var óvenjulegt, málsnillin einstök og heimspekin kreddulaus. Shaw tókst að gera Jrá blinda á, hve sjálf meðferð lians á efninu var ófrum- leg, vegna þess hve hugsunin í leik- ritum hans var frumleg. En vegna þess að nokkur gam- anleikrit hans teljast nú til sí- gildra (klassiskra) bókmenntra, er hægara að gera sér grein fyrir Jjví, að brellur hans eru jafn-gamlar leikritabókmenntum heimsins, enda Jrótt að listamaðurinn Shaw eigi engan sinn líka. *** JjJn að öllum líkindum mun minn- ingin um manninn George Bernard Shaw lifa lengur en það, sem eftir hann liggur. Undravert lífsmagn hans, ótæm- andi forvitni hans, óþreytandi elju- semi hans, óskeikul glaðværð hans, fyndni hans og andríki, heilbrigði hans og góð kímnigál'a, óvanalegur skilningur lians, ómótstæðileg hé- gómagirni og eðlisl. einlægni hans, manngæði, ljúfmennska hans og umburðarlyndi, hve laus hann var við alla öfund og illgirni, vitifirrt öryggi um sjálfan sig og hversu frjáls liann var undan oki mann- legs breyskleika: að sameina slíkar eigindir í einum og sama persónu- leika er einstakt í sögu veraldar- innar. Stgr. Sig. ísl. r -\ L í F o g L I S T i óskar lesendum sínum GLEÐILEGRA JÓLA og GÓÐS KOMANDI ÁRS - og þakkar þeim fyrir örvandi viðkynning á árinu, scm er að liða. RITSTJÓRAR V ___________________________________________) 16 LÍF og LIST

x

Líf og list

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.