Birtingur - 01.06.1967, Qupperneq 17
Gleymið okkur
gleymið okkar kynslóð
lifið einsog manneskjur
gleymið okkur
við öfunduðum
jurtir og steina
og jafnvel hunda
ég vildi vera rotta
sagði ég við hana þá
ég vil ekki vera til
ég vil sofna
og vakna aftur eftir stríðið
sagði hún með augun aftur
gleymið okkur
spyrjið ekki um æsku okkar
látið okkur vera.
Rozewicz er lítið gefinn fyrir hin glæstu sam-
kvæmi stórborga, hann er úr verkalýðsstétt og
býr í iðnaðarborg og hefur ekki einsog ýmsir
starfsbræður hans pólskir setzt að erlendis.
Mrozek býr mest á Ítalíu, Gombrowicz í Suð-
ur-Frakklandi, Herbert í Vínarborg, kvik-
myndahöfundurinn Poljanski í Englandi.
Undanfarin ár hefur Rozewicz íengizt tals-
vert við að semja kvikmyndahandrit fyrir
bróður sinn Stanislas sem er einn helztu kvik-
myndahöfunda Pólverja. Þegar ég var í Pól-
landi í fyrrasumar frétti ég að Rozewicz hefði
fengið helztu bókmenntaverðlaun landsins.
Zbigniev Herbert er nokkru yngri en Roze-
wicz. Herbert er fæddur 1924. Hann er erfið-
ara skáld einsog sumir kalla það, dulari og
fágaðri, hámenntaður maður. Form hans er
ræktað og hnitmiðað. Ef stæði til að tala um
ljóðskáld myndi hér verða fjallað um Her-
bert framar öðrum pólskum ljóðskáldum í
dag, hin skarphugsuðu áleitnu stuttu ljóð. Ég
veit ekki hvort hann á upp á pallborðið hjá
stjórnendum Póllands í dag sem þykir hann
kannski ekki alþýðlegur: T. S. Eliot áleit að
menningunni yrði ekki bjargað nema af litl-
um minnihluta sem sinnti því af alúð sem
væri vonlaust um fjöldahylli. En þegar ég
heyri talað um Herbert sem skáld fyrir lítinn
hóp skil ég ekki hvað við er átt þegar ég hugsa
um þau ljóð sem ég hef lesið eftir hann í þýð-
ingum á ýmsum málum, eða það sem ég hef
lesið af leikþáttum eftir hann. Mér virðist
hann vera svo auðskilinn og hann fjallar um
tímabær mál. Fyrsta leikrit Herberts er samið
fyrir útvarp og hefur verið flutt í Ríkisút-
varpinu okkar: Hitt herbergið, 1958. (Síð-
ar hefur það verið búið fyrir leiksvið.) Þekkt-
ast er líklega Hellir heimspekinganna.
Þar segir frá dauða Sókratesar, heimspekilegt
birtingur
15