Birtingur - 01.06.1967, Blaðsíða 46

Birtingur - 01.06.1967, Blaðsíða 46
göngu hetjusögu Nevskys og frelsisbaráttu þjóðarinnar, heldur er einnig flóttað inn í hana ástarævintýri — tveir vinir elska sömu stúlkuna — sem endar síðan á skemmtilegan og óvæntan hátt. Þá er komið að kvikmyndinni um ívan grimma, en hún er í tveim hlutum, gerð á tímabilinu 1943—’46, en fyrsti undirbúningur að myndinni hófst reyndar ’41. ívan IV. komst til valda aðeins þriggja ára gamall, en var krýndur til keisara ungur að aldri, fyrstur allra stórhertoga í Moskvu. Strax við krýning- una boðar Ivan sameiningu Rússlands og að valdi bojaranna skuli hnekkt. Þetta var á 16. öld. Eitt hans fyrsta verkefni eftir krýninguna er stríð gegn Kasan. En ívan á sér líka óvini meðal eigin þjóðar, jafnvel nánasti vinur hans og samstarfsmaður, Kúrbskí, svíkur hann og gengur á vald þýzka furstanum Sigis- mund. Náfrænka keisarans, Starítskaja, sem er af bojaraættinni, er svarinn fjandmaður hans, og þegar ívan eitt sinn er að dauða kominn, leggur hún á ráðin og heimtar, að menn sverji Vladimir, syni hennar, sem er hálfgerður kjáni, hollustueið. En ívan deyr ekki, og þá tekur Starítskaja það til bragðs að byrla eiginkonu keisarans, Anastasju, eitur, og endar fyrri hlutinn, þar sem ívan stendur fullur angistar við kistu Anastasju og heldur brott frá Moskvu. Fyrri hluti myndarinnar var gerður í anda sovézkra valdhafa þeirra tíma, þegar Stalin réð ríkjum, þar sem ívan var sýndur sem hinn voldugi þjóðhöfðingi, staðráðinn í að sameina Rússland í eitt öflugt ríki. Myndin hlaut Stalíns-verðlaunin í Moskvu 1945. Aftur á móti kom seinni hlut- inn illa við kaunin á valdhöfunum, því að þar var ívan sýndur sem hinn einmana vald- hafi, sem á í mikilli innri baráttu og sálar- stríði. Hann hefur misst það bezta, sem hann átti — eiginkonu sína — og honum finnst allt svo kalt og drungalegt í kringum sig. ívani er ekki í mun að mynda eina ríkisheild henn- ar einnar vegna, heldur af Jjví að honum finnst það horfa mest til heilla J^jóðinni. Slík útlegging á mesta valdamanni Rússlands hlaut auðvitað ekki náð fyrir augum Stalíns og vina hans. Og eftir að hafa grandskoðað fyrri hlutann, komust þeir að raun um, að hann mundi einnig vera varhugaverður, og var báðum filmunum stungið undir stól, en rúmum tuttugu árum síðar var rykið dustað af þeim, og hefur kvikmyndin verið sýnd al- menningi víða um heim. í kvikmyndinni ívan grimmi er stíll Eisen- steins orðinn hægari en áður var. Hann legg- ur ekki eins mikla áherzlu á klippingarnar, myndsviðið og uppbygging myndarinnar skipta nú meginmáli, og svo sannarlega er myndsviðið stórkostlegt, þar sem veggskraut- 44 BIRTINGUR

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.