Reykvíkingur - 08.03.1929, Side 19
REYKVÍKINGUR
67
Kaupið ekki
nærföt
\
í Vöruhúsinu
vegna pess að úrvalið
er mest og verðið Iægst,
en heldur vegna pess,
að hjá okkur eru vör-
urnar pær beztu
fáanlegu.
— Fastar flugferðír eru nú að
komast á meðfram endilöngum
austur- og vesturströndum Suður-
Ameríku.
— Nú er búið að dæla tvo
þriðj u af vatninu úr Nemi-vatn-
inu á italíu, og má nú, þegar
bjart er og logn, sjá skip, sem
er þar á botninum. Af öðru
skipi vita menn þar fjær landi;
en það er til þess að ná þess-
um skipurn, sem eru nær 2000
ára gömul, að verið er að tæma
vatnið.
— Alitið er, að Hoover muni
bjóða Coolidge, sem nú er for-
seti, sæti í hæstarétti Bandarikj-
anna, en þar losnar sæti nú á
næstunni. Taft á þar sæti, en
hann er sá eini, sem er á líli
af fyrverandi forsetum Banda-
ríkjanna.
— Úm daginn voru seld í
París jarðarber, sem rækuð
höfðu verið viö tilbúið sólarljós;
voru þau seld á sterlingspund
hvert.
— Fjórar smáborgir í Austur-
ríki, tvær með um 8 þús. íbú-
um og tvær með um 3 þúsund-
um, háfa sameinast í eitt bæjar-
félag og tekið nafnið Vierstetten.
— Enskur læknir að nafni
Daniel Powell hefur verið kærð-
ur fyrir að hafa drepið konu að
nafni Doris Ruth Simmons, 39
ára gamla. Málið er nú fyrir
dómstóli í Englaudi.
— Verksmiðjan, sem framleið-
ir »Vita«-glerið, tilkynuir, að nú
séu 147 spítalar á Englandi
búnir að skifta um gler í'glugg-
um hjá sér, og nota nú »Vita«-
gler.
— Nýja franska gull- og silf-
urpeninga er verið að móta, og
koma þeir í gang meðal fólks
1. apríl. 100 franka gullpening-
ar verða af sömu stærð og 20
franka gullpeningur fyrir stríð,
og 5 franka silfurpeningur jafn-
stór og 1 franki áður.