Vera - 01.11.1982, Page 11
Ljósm. Anna
reglan búin að staðfesta í hans eigin
eyrum að þetta væri blá saklaust
athæfi.
Nokkru seinna skrifuðu tvær
stelpur um það að þessi maður
hefði gert tilraun til að kippa þeim
inn í bíl til sín."
— Nú kemur í Ijós að strákar
verða einnig J'yrir barðinu á þessum
karlmönnum.
„Já, það er alveg rétt þótt í miklu
minna mæli sé. Ég held að strákarn-
ir kæri líka frekar."
„Fyrir skömmu hélt Gunnlaugur
Þórðarson mjög gott erindi í út-
varpinu þar sem hann benti á, að í
Danmörku væri þessum mönnum
gefinn kostur á að láta taka sig úr
sambandi, enda hefur komið í Ijós
að mennirnir gjörbreytast við það.
Þessir menn eru með kynferðislega
ofbeldishneigð og það hefur sýnt
sig að þeir sækjast ekki í annars
konar ofbeldi í staðinn, séu þeir
teknir úr sambandi. Nú er svo kom-
iö í Danmörku, að sumir þessara
manna eru sjálfir farnir að leita til
lækna til að láta gera þessa aögcrð á
sér.
I'aö er mín skoðun, að þetta eigi
að vera lágmarks refsing hjá þeim
mönnum sem staönir eru að nauðg-
44
un aftur og aftur. Þaö er engin lausn
að loka þá inni í skamman tíma eins
og nú er gert, því þeir halda fyrr-
teknum hætti áfram um leið og þeir
sleppa út.
Við verðum að athuga að það eru
ekki margir menn sem staðnir eru
aö þessari tegund ofbeldis, en þeir
geta hins vegar valdið mörgum stór-
um slysum."
— Geta konur gert einhverjar
ráðstafanir?
„Konur þurfa að ræða þcssi mál
miklu meira, hvort sem þær hafa
lent í nauðgun eða ekki. Ég held að
það sé forsendan fyrir því að eitt-
hvað fari að gerast. Þá þurfa mæður
að hafa meiri samvinnu um að
sporna gegn þessu, jafnvel að stofna
nteð sér samtök. Ég er viss um að
slíkt hefði mikið að segja. Það verð-
ur að opna þessa umræðu miklu
meira en nú er.“
— Telurþú að umrœðan sem ver-
ið hefur undanfarið um nauðganir
og ofbeldi gagnvart konum hafi haft
áhrif?
„Já, alveg tvímælalaust. Stelpur
eru orðnar hræddari við að húkka
sér bíl og foreldrar eru í auknum
mæli farnir að láta þær fá peninga
fyrir leigubíl til að komast með hpim.
Það finnst mér ávinningur út af fyrir
sig. Ég lána stelpum sem koma til
mín oft peninga fyrir leigubíl.
Stundum fæ ég þá aftur, stundum
ekki. Mér finnst það ekki skipta
öllu máli. Ég er alltaf jafn sannfærð
um að ég hafi gert rétt, því stelpurn-
ar þurfa þá a.m.k. ekki að húkka sér
bíl á meðan."
Strætisvagnar hætta að ganga
of snemma
„Svo eru það strætisvagnarnir.
Þeir hætta að ganga allt of snemma
um helgar. Mér finnst lágmark að
þeir gangi til kl. 03. Ef svo væri þá
þyrftu töluvert færri stelpur að
húkka sér bíl til að komast heim til
sín á nóttunni."
— Að lokum sagði Laufey:
„Guðrún Jónsdóttir vakti fyrir
skömmu athygli á þessum nauðg-
unum á fundi hjá félagsmálaráði og
var það vel. Það er mikið atriði að
Kvennaframboðiö fylgi þessu máli
vel eftir, eins og öðrum mikilvægum
málum sem Kvennaframboðið tek-
ur upp.“ glr.
11
Það þarf einfaldlega að taka þá úr
sambandi
— Hvað á að gera við þá karl-
menn sem rátðasl á konur og börn og
nauðga þeim?
er rétt..