Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 37

Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 37
GARÐVEISLA: Höfundur Guðmundur Steinsson Leikstjórn: María Kristjánsdóttir Leikmynd og búningar: Þórunn S. Þorgrímsdóttir Ljós: Ásmundur Karlsson Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson Siðferðileg aðvörun eða siðleysi? I garðveislu Guðmundar Steins- sonar, sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í september sl. er ekki fjallað um nein smámál í sögu vestræna mannsins. Þótt texti Guðmundarsé lítill að vöxtum og leikritið stutt, vakti það áleitnar spurningar hjá mér um menningu og menningar- leysi. Stökkið úr aldingarði Edens inn í gjörspilltan nútímaheiminn er að vísu stórt, en ef við tökum leikrit Guðmundur sem ýktar táknmyndir um og úr veruleika okkar, er það að það ráð að byrgja sig inni í múrum svokallaðrar efnahagslegrar vel- ferðar, alls kyns hégóma og prjáls og futidið allsherjarfullnægingu í framleiðslu helsprengjunnar. Út- koman verður manneskjur, karl- menn og konur, sem hvorki geta talað saman, né elskað. Tiltölulega einföld mynd Guð- rnundar af öllu þessu svakalega máli, allsherjarupplausn og siðspill- ingu er í ætt við leikhús fjarstæð- unnar. Það gerir okkur kleift að sjá í ætt við leikhús fjarstæðunnar mörgu leyti áhugavert. Jafnvel þótt flestir kannist að einhverju leyti við það umkomuleysi, ömurleika og þá sálareymd sem samskipti kynjanna í líki Adams og Evu eldri hafa hafnað í, finnst mér boðskapur verksins og hin siðferðilega aðvörun þess höfða til ákveðinnar stéttar manna. Ég get ekki betur séð, en að ádeilan bein- ist aðallega gegn siðleysi og and- legri upplausn þess hluta mann- kyns, sem sölsað hefur undir sig auðæfi og völd í krafti valdastöðu sinnar og með kristnina sem hjálp- artæki og friðþægingu, en ekki trú. Þannig hefur hinn vestræni maður farið hers höndum um auðlindir náttúrunnar og lagt þær undir sig á skefjalausan hátt (höggvið niður aldintrén og reist sér stálkrossa í staðinn), kúgað aðrar þjóðir og gert þær að þrælum sínum (sbr. þjónarn- ir í garðveislu), afskræmt og skrum- skælt ástina og móður jörð (morðið á skaparanunt). Maðurinn tortím- ist, el' hann hlúir ekki betur að guð- inu í sjálfum sér. Athyglisverð tilraun Mér finnst Garðveisla, leikritið og sýningin í heild athyglisverð til- raun til þess að sýna okkur hvernig hinn vestræni maður hefur fórnað tilfinningum sínum og vitsmunum í blindri leit sinni að lífstilgangi. í þeirri leit hefur hann m.a. fundið margar hliðar mannlífsins og ekki síst anda mannsins í öðru Ijósi. Það fær okkur til að spyrja til hvers við erum og hvað við séum eiginlega að gera hvert öðru með öllu okkar um- stangi og stússi. Sviðsetning Sýningin, sem leikstjórinn María Kristjánsdóttir, höfundur leik- myndar og búninga, Þórunn S. Þor- grímsdóttir, leikarar og tæknimenn hafa skapað, er eftirminnileg upp- lifun. Hún er lofsamleg tilraun til nýsköpunar í íslensku leiklistarlífi, einkanlega hvað varðar sjálfa svið- setninguna, notkun tákna, búninga og förðunar, leikhljóða og lýsingar, sem mér fannst undirstrika mjög vel þann boðskap, sem ég fann í verk- inu. Þar hafa leikstjóri og höfundur leikmyndar unnið merkilegt og heilsteypt verk. Hinsvegar verður að játa, að allt þetta skyggir töluvert á sjálfan leik leikaranna og hlutverk þeirra og er jafnvel hindrun í vegi þeirra, sérstaklega í seinni hluta leiksins. I þeim hluta er persónusköpun veikbyggð og erfitt að átta sig á for- sendum og tilgangi sumra þeirra, eins og t. d. Kains og Abels. Persón- urnar í sjálfri garðveislunni verða því spegilmynd hver annarrar. Stigmögnun geðveikinnar, sem leiðir til morðsins á skaparanum er of hröð. Það gerist of margt í einu á sviðinu og gestir veislunnar verða því lítið annað en búningurinn einn, hálfgerðar brúður, sem endurtaka innantóma frasa. Þetta undirstrikar vissulega holahljóðið í tjáskiptum þeirra og minnir óneitanlega á flat- neskjulegar partívenjur nútíma- fólks. Mér hefur komið í hug, hvort leikararnir væru í raun óþarfir í þessum hluta verksins. Það hefur vafist töluvert fyrir leikstjóra og öðrum að byggja upp trúverðuga upplausn veislunnar. Það hlýtur einnig að hafa verið vandasamt að skapa mynd af þessum einföldu persónum, sem síðan taka þátt í þeirri gandreið og glundroða, sem á sér stað. Lokaatriðið með börnun- um tveimur (lífsvonin), sem hlaupa yfir líkin og brunarústir helsprengj- unnar var of stutt og náði ekki að þjóna mikilvægum tilgangi sínum. Sýningin var því nokkuð endaslepp. Ást og sálareymd Guðjón Petersen og Jórunn Sig- urðardóttir fara meó hlutverk Adams og Evu yngri og tókst prýði- lega að koma ástinni og yndisleika hennar til skila. Leikur þeirra var sannfærandi og óþvingaður. Dans þeirra í seinni hlutanum var falleg og ástleitin andstæða við geldings- leg samskipti veislugestanna. Kristbjörg Kjeld og Erlingur Gíslason áttu dágóðan samleik á köflum, sérstaklega undir nuddinu og á eftir því. Kristbjörgu tókst að sýna taugaveiklun og sálareymd Evu eldri á fyndinn, en jafnframt sorglegan hátt, en var ekki sannfær- andi þegar hún tældi Adam unga. Raddbeiting Kristbjargar fannst mér líka nokkuð hvimleið á köflum. Erlingur Gíslason var alvanur Adam eldri og tókst vel að lýsa ein- angruninni og örvæntingunni sem bjó að baki karlpungshættinum. Söngur Hauks Morthens ,,Take me tonight" var frumlegt og háðskt atriði og fól í sér þá spennu, sem átti eftir að leysast úr læðingi. Ekki léttmelt Undirtektir áhorfenda á þeim sýningum, sem ég hef verið á, hafa verið með dræmasta móti. Þess- vegna hef ég spurt sjálfa mig: Snýst ádeila verksins á siðleysi upp í and- hverfu sína og verkar sem siðleysi og ruddaskapur á áhorfendur? Er seinni hluti verksins kannski allt of mikill einkaheimur leikaranna, sem áhorfendur hafa engan aðgang að? Getur verið að leikurum takist ekki að ná sambandi við áhorfendur og er það þessvegna sem þeir verða reiðir, hneykslaðir, sármóðgaðir? Eru áhorfendur óþarfir aðskota- hlutir? Eða kemur sýningin í raun við kaunin á þeim og hristir upp í „sálarró" og „vellíðan" þeirra? Garðveisla er ekki léttmelt. í henni fá neytendur ekki allt mat- reitt ofan í sig og tuggið í hæfilegu magni. Þar er ekkert mátulegt og ekkert sem passar. Þegar maður fer á Garðveislu verður maður að hafa hugmyndaflug. Það gildir reyndar um allar garðveislur. Hlín Agnarsdóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.