Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 19

Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 19
ÞEIR YNGSTU OG ÞEIR ELSTU EFSTÁ BLAÐI í síðasta tölublaði Vcru var m. a. sagt frá tillögum fulltrúa Kvennaframboðsins hvað varðar húsnæðismál. f>á sagði „Ekkert er vitað hve margir eru í húsnæðishraki nú. Aðeins liggja fyrir tölur frá húsnæðisdeild Fclagsmálastofnunar en þar eru um 800 manns á biðlista. Hjá Leigjendasamtökunum eru 130 manns á skrá.“ (Þegar Vera 2 er skrifuð, eru rúml. 1000 hjá Félagsmálast.) Tillögur fulltrúa Kvennaframboðsins sem miða að lausn þessa vanda eru þessar: Að borgin hafi frumkvæði að við- ræðum við Leigjendasamtökin og Húseigendafélagið um skráningu þeirra, sem eru að leita að húsnæði og hafi milli- göngu um útvegun þess. Þessi tillaga hefur nú fengið umfjöll- un í félagsmálaráði. Viðbrögð ráðsins voru neikvæð. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur, var þar lögð áhcrsla á að borgin eigi ekki að blanda sér í þessi mál! Og tillagan bíður enn umsagn- ar húsaleigunefndar. Önnur tillaga Kvennaframboðsins var þess efnis að borgin beiti sér fyrir endurskoðun laga um Húsnæðismálastofnun ríkisins, þeim þætti laganna, sem fjallar um byggingu leigu- húsnæðis. Málum er þannig háttað núna að húsnæðisstjórn- arlán til byggingar leiguhúsnæðis eru mjög óhagstæð. Tillag- an fól í sér að þau lán yrðu gerð jafnhagstæð og lán til byggingar verkamannabústaða. Þessi tillaga okkar var sam- þykkt í borgarráði og tilmælunum um að lánakjörunum verði breytt hefur verið beint til félagsmálaráðherra og formanna flokkanna. Eins og komið hefur fram, hafa fulltrúar Kvennafram- boðsins í nefndum og ráðum borgarinnar dygga hópa að baki sér. Einn þessara bakhópa er félagsmálahópurinn. Hann hefur í haust unnið að tillögum og er um þessar mundir að ganga frá þeim, sem lagðar verða fram við gerð fjárhagsáætl- unar borgarinnar fyrir næsta ár. Mörgu er ábótavant í félags- málum borgarbúa eins og flestir vita. Hér má minna á skýrslu Jafnréttisráðs, sem út kom í október, en hún staðfesti svo ekki verður um villst margt af því sem Kvennaframboðið tók sérstaklega tillit til í stefnuskrá sinni. Til dæmis að taka er sú staðreynd að þriðjungur allra reykvískra barna á aldrinum 7-12 ára er einn á báti lungann úr deginum. I þessu sambandi má ekki láta duga að skírskota til samviskubits mæðra. Frelsi kvenna til jafnstöðu á vinnumarkaði, frelsi og réttur kvenna til að velja sér þann starfa, sem þær kjósa sér sjálfar, jöfn ábyrgð foreldra og réttur barna til viðunandi lífs — allt þetta verður að tryggja og án þeirrar tryggingar er allt tal um lýðfrjálst samfélag skelfing lítils virði. Börnin hafi forgang Með þetta í huga er það því ekki að ósekju að dagvistun barna er efst á blaði hjá félagsmálahópi Kvennaframboðsins. Við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs leggur Kvennaframboð- ið fram tillögu um að dagvistunarmál fái algjöran forgang. í stefnuskrá okkar kemur fram sú krafa, að öll börn hafi að- gang að dagvistun sex klukkustundir á dag og að skóladag- heimili verði sjálfsagður hluti skólakerfisins. Tillaga félags- málahópsins er stórt skref í átt til þessa markmiðs. Enn fremur hefur félagsmálahópurinn gert það að tillögu sinni að leitað verði eftir því við fræðsluráð að skólatími 6, 7 og 8 ára barna verði ekki skemri en 4 klukkustundir á dag þegar á næsta skólaári. Einnig að skólatími allra barna í grunnskólum verði samfelldur. Hvort tveggja er þetta í samræmi við yfir- lýsta stefnu Kvennaframboðsins. Aldraðir og sjúkir Önnur tillaga varðar aukna heimilishjálp fyrir gamla og veika. Sem stendur er heimilishjálp fyrir hendi frá kl. 8 til kl. 17 en í tillögunni er gert ráð fyrir að þessi aðstoð verði líka fáanleg um helgar og helgidaga. Þá er í tillögunni einnig gert Hefur þú lesiö BAGBIABIB i dag ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi heimilishjálparinnar í þá átt að starfsfólkið (nær eingöngu konur) skipti með sér borg- inni í hverfi, samræmi vinnu sína og skipti með sér verkefn- um. Þessi breyting er hugsuð til að rjúfa þá einangrun sem starfsfólk heimilishjálparinnar býr við núna. í tillögunni er einnig gert ráð fyrir námskeiðum fyrir starfsfólkið. Þá má nefna tillögu um ráðningu starfsfólks að húsnæði aldraðra í Norðurbún 1. Kvennaframboðið hefur þegar vak- ið athygli á lélegri nýtingu setustofunnar þar (sjá síðustu Veru) og vill ráða bót á þessu. Við athugun kom í ljós að 19 Ljósm. Rut

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.