Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 22

Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 22
að láta undir höfuð leggjast að gera deiliskipulageru borgar- yfirvöld í raun og veru að sniðganga rétt íbúanna til að gera athugasemdir við skipulag síns hverfis. Deiliskipulag verður að fá opinbera umfjöllun. Áður en það getur hlotið staðfest- ingu ráðuneytis þarf það að vera til sýnis opinberlega í sex vikur, og þá eiga íbúarnir rétt á að gera athugasemdir við það innan ákveðins frests. — Hvaða pól hefurðu þá tekið í hœðina þegar tillögur að nýbyggingum í gömlu hverfunum hafa komið til kasta skipu- lagsnefndar? — Síðan ég kom í skipulagsnefnd hafa nær allar nýbygg- ingar sem koma hafa til kasta nefndarinnar verið með nýting- arhlutfall um og yfir 1.0. Ég get alls ekki samþykkt slíkar byggingar meðan ekkert deiliskipulag er til. Ég hef þessvegna lagst gegn þeim, og sömu sögu er að segja um fulltrúa okkar í byggingarnefnd. Ég hef hinsvegar lagt áherslu á að vinnunni við deiliskipulagið verði hraðað eins og frekast er kostur. M. a. lagði ég fram tillögu um að deiliskipulagi fyrir Þingholt- in verði að mestu leyti lokið fyrir vorið ’83. Það sem styrkir mig enn frekar í andstöðunni við geðþóttaákvarðanirnar varðandi þessar nýbyggingar er að þær hrinda gjarnan af stað eins konar keðjuverkunum. Eitt hátt hús í miðri götumynd verður til að styrkja umsókn lóðareigandans við hliðina um álíka hús, og þannig koll af kolli. Einmitt núna er verið að afgreiða fjölmörg mál í skipulagsnefnd sem eru talandi dæmi um þetta. Reglur um nýbyggingar — Hvað er þá til ráða? — Það liggur náttúrlega í augum uppi að eina raunhæfa lausnin er deiliskipulag sem allra fýrst. Það eitt getur t. d. tryggt að séð verði fyrir fullnægjandi leiksvæöum og bíla- stæðum, og að hætt verði að ganga endalaust á lóðir og græn svæði. — Hvernig björgum við þá helst í horn meðan ekkert er deiliskipulagið? — Stífari reglur um það hvernig eigi að standa að fram- kvæmdum gætu hjálpað til. Starfshópur á vegum skipulags- nefndar hefur að undanförnu unnið að slíkum reglum í fram- haldi af tillögu Kvennaframboðsins þar að lútandi. Þessi starfshópur hefur nýlega komið sér saman um að þegar sótt er um byggingarleyfi, verði umsækjandi að gera glögga grein fyrir götumyndinni sem hann ætlar að fella húsið inn í. Hann verður að geta sýnt á afstöðumynd nærliggjandi hús, þar með talin hús handan götu. Með þessu móti sést hvort nýbygging- in skyggir á önnur hús. Jafnframt þarf að fylgja skuggateikn- ing, en hún á að sýna hversu löngum skugga húsið varpar til norðurs. Það á m. ö. o. að vera á hreinu hvort það skyggir á suðurglugga í næsta húsi. Það sem að mínu mati vegur þyngst í þessum reglum er þó að gert er ráð fyrir að sett verði upp skilti á framkvæmdastað, þar sem er auglýst hvaða fram- kvæmdir er verið að sækja um á lóðinni. Á þessu skilti verða teikningar af fyrirhugaðri nýbyggingu, og jafnframt er íbúum bent á að koma athugasemdum á framfæri, ef þeir hafa eitthvað við bygginguna að athuga. — Attu von á að þessar tillögur verði samþykktar í Borgar- stjórn? — Frekar á ég von á því, já. Auk mín sátu í starfshópnum sem þær samdi Guðrún Jónsdóttir, forstöðumaður Borgar- skipulags, og Ingimundur Sveinsson, fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í skipulagsnefnd. Ég hlýt að reikna með því að hann hafi eitthvert umboð til að samþykkja þessar reglur fyrir sitt leyti. — En samt sem áður: þessar reglur eru nauðvörn meðan deiliskipulagið er ekki til? — Absolútt, og ég vil brýna fyrir fólki að vera vel á verði og hlífast ekki við að koma athugasemdum á framfæri. Okkur kemur öllum við hvernig umhverfi okkar er, ekki eingöngu hvað verið er að framkvæma á næstu lóð, heldur ekki síður hvort verið er að breyta svipmóti þess hverfis sem við búum í. HS $22

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.