Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 39
radda söng. Litli sótarinn, Gísli
Guðmundsson virtist hafa gott vald
á leiknum og átti auðvelt með að
lifa sig inn í hlutverk Bjarts. Sólveig
Arnarsdóttir var áberandi frjálsleg
og opinská í leik sínum og féll Hall-
dór Olafsson í hlutverki hins tvíbur-
ans í skuggann. Heildarmynd sýn-
ingarinnar var að öllu leyti mikið
skýrari og skilmerkilegri á öllum
sviðum leiks og söngs.
Guðný Helgadóttir var röggsöm
og skýr í hlutverki leikstjórans og
Jón Stefánsson þjálfaði áhorfenda-
kórinn af einstakri þolinmæði, hlýju
og festu. Hljómsveitin þótt lítil væri
skilaði hlutverki sínu yfirleitt vel
þótt hún á köflum yfirgnæfði yngri
söngvarana.
Leikmynd og búningar voru
smekklega gerð, stílhrein og áferð-
arfalleg, en dálítið hlutlaus og
ófrumleg. Það má kannski rekja til
þess hve pyngja íslensku óperunnar
er létt.
I raun er þetta framtak Islensku
óperunnar góð viðleitni til þess að
hugsa fyrir þörfum yngstu kynslóð-
arinnar og sem væntanlega á cftir að
skila góðum árangri í framtíðinni.
Hlín Agnarsdóttir og
Jóhanna Pórhallsdóttir
Skáldsagan No Mama No er
fyrsta bók Verity Bargate. Verity er
kynnt sent leikstjóri í London og
tekið er fram að hún sé móðir
tveggja smábarna. Annað veit ég
ekki um höfundinn. En á bókar-
kápu kemur fram að sjónvarpsstöð í
Bretlandi hefur gert mynd eftir sög-
unni. Gaman væri ef íslenska sjón-
varpið gæti fengið hana til sýningar.
Eintakið sem ég hef af sögunni er
125 síður í vasabókarbroti. Það er
útgefið af Fontana útgáfufyrirtæk-
inu árið 1979, en bókin kom fyrst út
1978. Þessi bók er ófáanleg í ís-
lenskum bókaverslunum en hægt er
að panta bækur erlendis frá, m. a.
hjá Bóksölu stúdenta.
í sögunni segir ung kona, Jodie,
frá lífi sínu. Hún er gift og á 3ja ára
son en sagan hefst með lýsingu á
fæðingu annars sonar hennar. Fæð-
ing hans olli Jodie miklum vonbrigð-
um því hún þráði að eignast dóttur.
Henni fannst að hún hefði svo
margt að segja og gefa dóttur, ýmis-
legt sem synir hefðu enga þörf fyrir.
Jodie er heima með syni sína all-
an daginn og hittir sjaldan fullorðið
fólk. Davíð eiginmaður hennar er
lítið heima, en eftir að Jodie kynnt-
ist honum slitnaði samband hennar
við fyrri félaga. Jodie og Davíð eiga
ekkert sameiginlegt og ást þeirra er
horfin. Sagan lýsir því hvernig ein-
angrun Jodie eykst sífellt og hún er
að örvinglast þegar gömul vinkona
hennar endurvekur samband
þeirra. Eftir það heimsótti Jodie
vinkonu sína reglulega og voru það
einu ljósu punktarnir í lífi hennar.
Hún tók syni sína með en klæddi þá
í stelpuföt og kallaði þá stelpunöfn-
um.
Davíð umgekkst Jodie sem eign
sína. Hún átti að gegna skyldum
sínum við hann sem hjásvæfa og
gæta sona hans. En hann gat á eng-
an hátt skilið hana né tilfinningar
hennar og reyndi Iítið tii þess. Hann
fékk þá grillu í höfuðið að hún þyrfti
að fara til sálfræðings og til að
þóknast honum fór hún einu sinni.
Síðar þegar hann komst að því að
hún klæddi drengina í stelpulöt lét
hann loka hana inni. Ekkert var
rætt við hana. Það eitt að Davíð
krafðist þess að hún yrði lokuð inni,
þar sem hún væri geðveik, var látið
nægja.
Jodie var nokkra mánuði á geð-
veikrahæli án þess að nokkur kæmi
til hennar. En þegar loksins einhver
kom til hennar var það maður að
nafni Jack, kunningi sem hún hafði
aðeins hitt örsjaldan. Hann kom til
hennar og stóð með henni. Sögunni
lýkur á því að Jodie hefur reynt að
skera sig á púls með skærum og
Jack er hjá henni. Þá segir hann við
hana: „Mundu Jodie að enginn hef-
ur nokkurn tíma dáið af sársauka.
Þegar þú ert tilbúin þá segirðu mér
frá öllu". Jodie samsinnti því.
Sagan kemur inn á ýmislegt sem
ekki er tíundað hér, m. a. samband
móður við ungabarn. Einnig á þessi
bók margt sameiginlegt með verk-
um annarra kvenrithöfunda, t. d. er
hér lýst kvennaheimi og Jodie segir
frá sínunt tilfinningum og hugsun-
um. Þessi saga er virkilega góð, sér-
staklega fyrir þá sem hafa áhuga á
stöðu kvenna og kvennabókmennt-
um.
5. E.
Ertþúí
Bréfaskólanum?
Hundruð manna hefja árlega nám í Bréfa-
skólanum og afla sér menntunar til undir-
búnings framhaldsnámi, vegna nýrrar
atvinnu eða af einskærum námsáhuga.
Á mörgum sviðum er námsefni Bréfa-
skólans sambœrilegt námsefni grunn- og
framhaldsskólanna.
Kynningarrit Bréfaskólans og starfslið
hans geta veitt þér nánari upplýsingar um
skólann, námsgreinar og námsfyrir-
komulag.
BRÉFASKÓLIN
Suðurlandsbraut 32 sími: 91-81255
LJÓSMYND S. ÞORGEIRSSON EFFECT
39