Vera - 01.04.1983, Side 2
í sveitarstjórnarkosningunum í vor sem var, vöktu
Kvennaframboðskonur máls á úreltum vinnubrögðum
stjórnmálaflokkanna og skeytingarleysi þeirra um
breyttar aðstæður. Þetta, sögöu Kvennaframboöskonur,
er ein skýringin á rýrum lilut kvenna í stjórnsýslunni. Því
var látið til tjkarar skríða gegn karlaveldi flokkanna.
Konur ýttu úr vör allt annars konar fleyi með þá — aö
mörgum fannst — nýstárlegu kjölfestu, að konur væru
gæddar öðrum viðhorfum og annarri reynslu, sem krefð-
ust annars konar aðferða. Þau viðhorf og sú rcynsla á sér
rétt til jafns við þau ríkjandi viðhorf karla, sem þó setja
nú nær allan svip á samfélagið.
Sá skoðanamismunur, sem upp kom innan Kvenna-
framboðsins í Reykjavík um það hvort samtökin skyldu
bjóða fram til þings eða ekki, var ekki um réttmæti
kvennalista yfirleitt. Það er af og frá. Hins vegar var
ágreiningur um þær leiðir, sem Kvennaframboðiö ætti
aö velja sér í baráttunni fyrir frelsi og jafnrétti. Stór hluti
Kvennaframboðsins vildi fara þá leið að „leitast við að
sameina konur um allt land til baráttu fyrir brýnustu
hagsmunamálum kvenna og barna án tillits tii afstöðu
þeirra í landsmálum og öðrum.“ Annar stór hópur innan
Kvennaframboðsins tók undir þetta en taldi framboð til
Alþingis nú, tækifæri til að eignast málsvara kvenna á
þingi — málsvara, sem konur gætu ekki án verið. Niður-
staða þessarar umræðu varð sú, að síðasttaldi hópurinn
gekkst fyrir stofunun Kvennalista í Reykjavík. Kvenna-
Iistar eru einnig í framboði í Reykjaneskjördæmi og í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Kvennalistar hljóta að eiga vísan stuðning þeirra, sem
trúa á kvenfrelsi og nauðsyn á reynslu kvenna í valda-
stofnunum. Frambjóðendur þeirra bjóða eina nýja val-
kostinn í þessum kosningum; ferska stefnu og nútímaleg
viðhorf í anda jafnstöðu. Kjörnir fulltrúar Kvennalist-
anna munu freista þess inni á Alþingi að láta reyna á
samstöðu annarra þingkvenna og afstööu karlanna þar
til hagsmunamál okkar allra. Þær sigla undir merkjum
kvenna. Þær ættu að fá góðan byr.
Ms
VERA
2/1983 APRÍL
Útgefandi:
Kvennaframboðið í Reykjavík
Hótel Vík
Sími 22188 og 21500
Ritnefnd:
Elísabet Guðbjörnsdóttir
Hlín Agnarsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Kristín Sigurðardóttir
Magdalena Sehram
Sigurrós Erlingsdóttir
Otlit:
Hildigunnur Gunnarsdóttir
K. Börhammer
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Þóra Sigurðardóttir
Forsíða:
Aðalheiður Valgeirsdóttir
Auglýsing og dreifing:
Guðrún Alfreðsdóttir
Setning og prentun:
Hólar h.f.
Ábyrgðarmaður:
Magdalena Schram
Ath. Greinar í Veru eru birtar á ábyrgð
höfunda sinna og eru ekki endilega stefna
Kvennaframboðsins í Reykjavík.
Vera kostar kr. 40 í áskrift
en kr. 50 í lausasölu.