Vera - 01.04.1983, Síða 7

Vera - 01.04.1983, Síða 7
... EÐA HVAÐ? Kostnaður samfélagsins vegna umferðarslysa er það mikill, að eftir að hafa séð hann svartan á hvítu, er ekki lengur hægt að sætta sig við þau svör að aðgerðir til að draga úrþeim slysum séu ofdýrar. Samkvæmt útreikningum forstjóra Ríkisspítalanna, Davíðs A. Gunnarssonar, var kostnaður vegna umferð- arslysa árið 1982 krónur 497.3 milljónir. V QT n pl O 1 u r l Á Fjögurhundruðníutíu og sjö komma þrjár milljónir A síðasta ári lctust 24 íslendingar í eða eftir umferðarslys. Mikið slasaöir voru 370 og þeir, sem hlutu minni háttar sár voru 405. Þessar tölur eru fengnar úr skýrslum lögreglunnarogljóst er talið að tölur um minni háttar slys séu töluvert of lágar þar eð ekki nrerri öll óhöpp í umferðinni eru á skýrslum lögreglunnar. Þegar Davíð Á. Gunnarsson gerði sína kostnaðarútreikninga, tók hann inn í dæmið kostnað vegna sjúkrahúss- og stofnanavistunar, tekjutap viðkom- andi og tjón á niunum. Það er kaldranalegt að meta mannslíf til fjár, en til að vega og meta hvort ekki borgi sig nú að beina fjármunum til fyrirbyggjandi aðgerða, hefur það verið gert. Til grundvallar eru þá lagðar tekjur viðkomandi einstaklinga og reiknað með 53.000 kr. tekjum á árinu 1980 en sú upphæð er færð til núvirðis miðað við 4% vexti. Kostnaður vegna slasaðra miðast við nteðaldaggjöld á sjúkrahús- um árið 1980. í kostnaðarútreikningi er ekki gert ráð fyrir tekju- missi. I samtali við Davíö kom fram. að niðurstöðutalan er að öllum líkindum þó nokkuð of lág, þ. e. tæplega 500 milljónir er algjör lágmarkskostnaður vegna umferðarslysa á síðasta ári. Fivað sparaði kostnaðurinn? Og lítum enn til útreikninga Davíðs Á. Gunnarssonar: Hann gengur út frá að aukin fræðsla árið 1968 hafi bjargaö 14 mannslífum (miðað við árið á undan). Með því að meta þau mannslíf til fjár (á sama hátt og greint var frá hér að ofan) samsvarar það 25.2 milljón- um. (Verölag síðasta árs.) Með athugun á tölum yfir slasaða árið 1968, þe. hversu mikið færri þeir voru, bætast 40.8 milljónir þar við. Þ. e. a. s., umferðarbreytingin árið 1968 sparaði okkur í beinhörð- um peningum 66 milljónir króna. Og til að halda áfram mcð smjörið: Kostnaður vegnaminni háttar slyss gæti hafa borgað helming þess, sem það kostar að setja upp hálft umferðarljós. Kostnaður vegna dauðsfalls hefði nægt fyrir þremur umferðarljósum. Kostnaður vegna tveggja dauðsfalla hefði nægt til að láta gera undirgöng undir götu. Varanleg sjúkrahúsvist- un vegna örkumla kostar það sama og þrjú einbýlishús. Já, það er kaldranalegt að halda svona áfram. En er ckki allt metið til fjár? Er ekki verið að meta líf og heilsu til fjár með því að bera því við að það kosti of mikið að gera undirgöng — koma fyrir ljósum — þrengja götuna? Undirgöng kosta kannski tvö mannslíf, en þau geta bjargað miklu fleirum. Þínu líka. Lítum um öxl Árið 1968 var umferð á íslandi breytt til hægri handar. Það var gott ár í umferðinni. Slagorð ársins var „Brosið í umferðinni" og þeir, sem þá óku um götur minnast ettaust enn þá þeirrar tillitssemi, sem ríkti. Gífurlegur áróður var rekinn fyrir þeirri tillitssemi og yfirhöfuð fyrir því að allir sýndu aðgát og athygli, enda var það stórt skref að stíga, að fara af vinstri kanti á þann hægri. Kostnaðurinn var orðlagður. Á verölagi síöasta árs (í ágúst) nam hann enda 39 milljónum króna. 3 1 milljón fór í breytingar á vegakerfi og bifreið- um, átta í fræðslu. En að þær milljónir borguðu sig, dregur enginn í efa. Lítum á dauðaslys í umferðinni árin áður, árið 1968 og næstu ár á eftir: 1966 19 danir 1967 20 - 1968 6 - 1969 12 (fræðslan situr enn í fólki) 1970 20 — Síðan fjölgar dauðaslysum fram til 1975. Það ár létust 33 í um- ferðarslysum. 1976: 19, 1977: 37, 1978: 27, 27 aftur næsta ár, 25 1980. Á síðasta ári voru það 24. Af öllum drengjum, sem deyja á aldrinum 1—14 ára, deyja 14.3% í slysinn af völdum vélknúinna ökutækja. Heildarkostnaöur vegna umferðarslysa árið 1982 er metinn vera 497.3 milljónir króna. Það er samdóma álit fróðra manna að það mat sé of lágt. Umferðarslys voru sjöundu í röðinni sem dánarorsök karla og sextándu sem dánarorsök kvenna á árinu 1980. Borið saman við önnur Norðurlönd er ís- land í meðallagi hvað varðar dauðsföll í um- ferðarslysum. En á sama tíma og öðrum Norðurlandaþjóðum tekst að lækka tíðni um- ferðarslysa nokkuð, eykst tíðni umferðarslysa hér.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.