Vera - 01.04.1983, Page 9

Vera - 01.04.1983, Page 9
einhvern tímann lieyrt sögu um fljúgandi bíla, kannski datt því supermann í hug, þaö getur margt komið til. En barniö hélt í raun og veru aö bíllinn myndi fljúga yfir sig! í rauninni erum viö, fullorðna fólkið, mcð skerta vitsmuni — aö geta ekki skynjað þessa hlið á börnunum. Það er ekki fyrirtekt, óhlýðni, óþekkt eða það að þau þekki ekki reglurnar, sem veldur því að þau taka upp á því að hlaupa út á götu — heldur einfaldlega starfar þeirra hugarheimur öðru vísi en okkar. Þetta ættu allir ökumenn að hafa í liuga, alltaf. Barnið í fullum rétti, við verðum einfaldlega að taka tillit til þeirrar staðreyndar. Eina reglan sem blífur er að vera viðbúinn hvcrju sem er af börnunum og ætla þeinr það ekki að fara að reglunum. Hvað þýða orðin? í fjórða lagi: Málskilningur barnanna (4-6 ára) er oft annar en okkar. Þau hafa orðaforða, þau fara málfræðilega rétt með, þau valda flestum hljóðum. Og þarna er það sem við sláum ryki í augun á okkur, við höldunr að þar sem barnið getur talað hugsi það eins og við, skilji orðin eins og við. Hugsum okkur að þú sendir dóttur þína 5 ára út í búð með miða, hún þarf að fara yfir götu á leiðinni og þú segir: Mundu svo að fara varlega. Já, mamma, ég skal fara varlega. En hvað átt þú við þegar þú notar orðið „varlega"? Þú meinar að hún eigi að stoppa við götubrúnina, gá til hægri og vinstri, athuga 9P

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.