Vera - 01.04.1983, Síða 10

Vera - 01.04.1983, Síða 10
hvort bíll er að koma, meta hvort henni sé óhætt að leggja af stað, passa sig að detta ekki, fara beint yfir götuna, og svo framvegis. En dóttir þín kann að skilja orðið á allt annan hátt. Hún notar það e. t. v. í merkingunni að fara hægt, eða passa sig á að fara ekki í pollana, eða, í þessu tilfelli, muna að láta afgreiðslustúlkuna fá miðann og fá til baka. Þú hefur ekki hugmynd um það! Þú bara gengur út frá því að hún skilji orðið eins og þú af því að hún virðist geta notað það í réttu samhengi. Þetta á alveg sérstaklega við um orð sem eru huglæg, orð sem ekki merkja vissa hluti eins og t. d. borð eða stóll. Orð, sem mikið eru notuð um umferð geta haft allt aðra þýðingu fyrir barnið. Hratt, hægt, beint, varlega, til dæmis. Ég segi við lítinn son minn eftir að hafa skammað hann: Fyrirgefðu hvað ég var höstug við þigáðan. Já, mamma mín, segir hann, fyrirgefðu. Þó hefur hann ekkert að fyrir- gefa í þessu tilfelli, ég var bara þreytt og illa upplögð og lét hann fara í taugarnar á mér. En hann skilur orðið aö fyrirgefa á annan hátt. Hann lætur það e. t. v. þýða: Já, mamma mín, við skulum vera vinir — eða jafnvel, þakka þér fyrir að vera góð við mig. Við megum ekki flaska á þessu, ekki halda að þau skilji merkingu orðanna, þó svo þau rati á að nota þau í réttu samhengi. V: Að öllu þessu sögðu, Sigrún, finnsi munni sú ábyrgð sem hvílir á krökkum, þegar maður til hugsar tilþess hve mörg 6 ára börn ganga lunga leið ískóla daglega — og þeim er eiginlega gert að ábyrgjast líf sitt án þess, eins og þú hefur rakið, að vera í stakk búin til þess ... sú ábyrgð vera nokkuð drjúg. Gœti hún jafnvel haft þrúgandi áhrif á barn? S: Hiklaust, ef barnið skilur í rauninni ekki reglurnarsem þvíergert að fara eftir. Það fer að heiman með sama veganestið: Passaðu þig, gættu þín, farðu varlega. Við verðum að muna, að ábyrgðin er alltaf okkar uppalendanna og svo ökumannanna í umferöinni, börnin geta ekki og eiga ekki að bera hana. Og ábyrgðin er líka þeirra sem skipuleggja umferðina. A Sköpum öryggi fyrir börnin Umferð, götur og hverfi, er eiginlega skipulagt fyrir fullfríska fullorðna. menn. Þú þarft ekki annað en líta í kring um þig til að sjá dæmin blasa við. Maður skyldi t. d. ætla að auðvelt sé að skipuleggja nágrenni íbúðarhúsa, raðhúsa og blokka þannig, að börnin þurfi ekki að leika sér á bílastæðunum, en það er nú eitthvað annað! Nei — börnin eru í lífshættu um leið og þau koma út fyrir dyr, bílastæðin eru þar beint fyrir utan í stað þess aö hafa þau, segjum þegar um raöhús er að ræða, við endann á húsinu. Eins og nú er ástatt, er akleið og gönguleið oft og einatt eitt og hið sama. Eða athugum hvernig skólum er niðurkomið. Börnum er gert að ganga yfir margbreiðar umferðargötur. Mér finnst satt aö segja að þeir sem skipuleggja hverfi á þennan hátt hafi sjálfir skerta vits- muni; að geta með engu móti lifað sig inn í aðstæður annarra en sjálfra sín. V: Eg held nú sé aðeins einni spurningu ósvarað: Megum við ekki líka gœta okkar á að ofvernda börn um of? S: Auðvitað segja margir: Börnin verða hvort eð er að læra regl- urnar, við megum ekki passa of stíft upp á þau, annars verða þau bara ósjálfstæðir einstaklingar. Og svo framvegis. En umferöin er & 10 frumskógur og það er alveg út í hött aö ætlast til þess af barni undir sex ára aldri svo ekki sé nú dýpra í árina tekiö — að það geti bjargað sér sjálft í þeim frumskógi. Þau geta ekki boriö þá ábyrgö. Það, að skamma fjögurra ára gamalt barn fyrir að hlaupa út á götu hefur svona jafn mikla þýðinguog aðskammanýfætt barn fyrir að pissa og kúka í buxurnar. Þetta er einfaldlega spurning um líffræðilegan og vitsmunalegan þroska. Sú staðreynd verður að búa að baki öllu umferðarskipulagi og sú hugsun verður að vera efst í huga þeirra, sem veröa, hvort sem þeim líkar betur eða ver að bera ábyrgð á börnum. Uppalendur og skipulagsvöld. Umhverfið verður að bjóða upp á barnhelda staði einmitt til að forða krökkunum frá ofvernd- uninni, sem þú komst að. Leikvellir, leikskólar og leikaðstaða öll þarf að vera þannig úr garöi gerð að krakkarnir geti um frjálst höfuð strokið, leikið sér án eftirlits, boða og banna. Garðar ættu að vera barnheldir — ekki skrautstaðir til dærnis. Umhverfi fjölbýlishúsaen þar býr einmitt barnafólkið í ríkum mæli, þarf að vera öruggt. Girtir garðar meö leiktækjum — ekki bara blóm og hckkir. Með því að skapa öruggar vinjar þar sem krakkarnir geta gleymt fyrirntælunum og leikið lausunt hala áhyggjulaust, þannig er hægt að koma í veg fyrirofverndun. En verndunin úti í sjálfri bílamergðinni, hún verður tæpast of mikil. Ms/SS S.S. er þriggja barna móðir— 14, 10 og4 ára. Hún starfarsem sálfræðingur með börnum undir skólaaldri.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.