Vera - 01.04.1983, Síða 11
KELLING VIÐ STÝRIÐ!
Það hlaut að vera — kelling við stýrið!
Hafið þið heyrt þetta áður?
Hafiði séð allar skrýtlurnar um konurnar,
sem keyra bílskúrinn í klessu, skelfa líftór-
una úr ökukennaranum, púðra á sér nefið á
50 km hraða, drepa á bílnum á rauðu Ijósi
og sitja svo eftir á rauðu? „Baksýnisspegill-
inn — ég hélt að hann væri svo ég gæti lagað
á mér hárið á leiðinni!" Æðislega fyndið!
Kven-bílstjórar eru til að stynja yfir,
skammast út í, hlæja að. Konur hafaekki vit
á bílum, þær kunna ekki að keyra, þær eru
alltaf fyrir. Þeim væri nær að fara aö læra á
umferðina, þeim væri nær að taka karlana
sér til fyrirmyndar! Segja þeir.
Að einu leyti hafa þeir rétt fyrir sér, bless-
aðir. Konur keyra ööru vísi en karlar. En
það er líka allt og sumt. Það er nefnilega
ekki þar með sagt að þær keyri ver. Og viö
ættum ekki að láta neinn þeirra segja okkur
annað! Það vill nefnilega svo til, að konur
valda færri slysum í umferðinni en karl-
mennirnir. Ef það er ekki skynsamlegasti
mælikvarðinn á ökuhæfni, þá er ekki gott að
vita hvaö er!
Samkvæmt þýskri könnun, sem gerð var
fyrir þýska bifreiðaeigendafélagið ADAC,
virðist Ijóst að ekki aðeins valda konur færri
slysum, heldur hafa þær allt önnur viðhorf
til bíla og umferðar en karlmennirnir. Þau
viðhorf virðast vissulega til eftirbreytni
fremur en til að henda gaman að. Ágætt
dæmi um þetta er sú niðurstaða könnunar-
innar að 57% karla reyndust á móti því, að
leyfður hámarkshraði væri lægri í íbúðar- og
skólahverfum en annars staðar. Fjölskyldu-
feður voru nær sama sinnis, 54% þeirra
voru á móti lægri ökuhraða í slíkum hverf-
um. Um niöurstöður þessarar könnunar sjá
annars staðar á síðunni.
Frúarbíllinn
í Þýskalandi — og ellaust hér líka —
eykst fjöldi kvenbíleigcnda ört með hverju
árinu. Þær kaupa sér yfirleitt minni og spar-
neytnari bíla — ellaust er ein megin ástæðan
fyrir því einfaldlega sú, að konur eru yfir-
leitt fátækari en karlar. En önnur ástæða
kemur í Ijós ef grannt er skoðað. Konur gera
allt aðrar kröfur til bílanna sinna en karlarn-
ir. Körlum er gjarnt að skoða bílinn sem
nokkurs konar stöðutákn, að ekki sé nú
talað um kyngetutákn. Það gefur þeim
aukna karlmennskutilfinningu að geta náö
sem mestum hraða á sem stystum tíma, að
geta gefið hressilega í. Bílaauglýsingar spila
ekki hvað síst á þessa tákna-Ieit karlanna,
bílnum er ætlað að vera framhald af þeim
sjálfum og vitnisburður um þann áfanga
sem þeir hafa náö í lífinu. Því hærra settur
og ríkari, því stærri og kraftmeiri þarf bíllinn
að vera.
Konur hins vegar líta á bíl fyrst og fremst
sem farartæki, þægilega aðferð til að komast
af öðrunt stað á annan. Það þarf að vera gott
að leggja honum og hann þarf að vera Iipur í
umferðinni. Kvenforstjóra þætti það full-
komlega eðlilegt að aka um á litlum Fiat, en
karl-forstjóra væri slíkt nær óhugsandi.
Fleiri konum en körlum þykir gaman að
aka bíl, þær kjósa heldur að hafa einhvern
með í bílnum til að rabba við, þær tala frem-
ur við sjálfa sig, syngja jafnvel, yfirhöfuð
njóta þær bílferðarinnar betur en karlar.
Körlum finnst betra að vera einir, flestum
þeirra þykir beinlínis óþægilegt að vera far-
þegi hjá öðrum (konum finnst það alveg í
lagi!) og verst er þó að vera farþegi hjá
ökumanni af kvenkyninu!
Lægri iðgjöldfyrir konurnar!
Þegar þýska kvennablaðið Emma náði í
niðurstöður umræddrar könnunar. voru
þær ekki í neinum vafa um hvernig bæri að
bregðast við þessum upplýsingum. Þær fóru
fram á lægri iðgjöld til tryggingafélaganna
fyrir konur en karla.* Við göngum nú ekki
það langt. Okkur finnst aðeins að karlarnir
ættu að hætta gera grín að kellingum undir
stýri og reyna þess í stað að gera það upp við
sig, hvers vegna konur eru þó hættuminni í
umferðinni. Það gæti þó aldrei verið að við
yrðum þeirra fyrirmynd einn góðan veður-
dag!
* (Raunar ekki aö ósekju, því konur í Þýskalandi
greiða sem stendur hœrri iðgjöld en karlarnir!)
Hlutur karla og kvenna í umferðarslysum í Þýskalandi reiknaður eftir hlutfalli kven- og
karlbílstjóra. Umferöarslysum er skipt niður eftir orsök slysa eða öðrum kringumstæðum og
síðan er skýrt frá því hvort það voru karlareða konur, sem ollu slysinu.
o/
/O
Slysið varð við Konur Karlar
Framúrakstur ....................................................... 9.2 90.8
Svíningu........................................................... 13.8 86.2
Aftanákeyrslu...................................................... 6.1 93.9
Akstur á rangri akrein á tvöfaldri akrein........................... 6.9 93.1
Við akstur út af aðalbraut ......................................... 7.4 92.6
Beygt eða snúið við.............................................. 11.0 89.0
Afturábak-akstur.................................................... 9.3 90.7
Dyr opnaðar ....................................................... 13.8 86.2
Aksturádýr.......................................................... 4.2 95.8
Annað .............................................................. 9.6 90.4
Viöhorf og skoöanir
58% karla vilja ekki að konan sín keyri bílinn á sumarleyfisferðum hjónanna
41 % karla álíta sig halda betur út að aka langan veg en konur
5% karla álíta að konur séu fruntalegir bílstjórar
10% karla líöur beinlínis illa sem farþegum hjá kvenbílstjóra
90% karla telja konur lítið vita um bíla
21 % karla segja að konur keyri ver en þeir
55% karla vilja helst vera einir í bíl
73% kvenna vilja gjarnan skiptast á um að keyra við einhvern á langferðum
68% kvenna segja sig hafa gaman af að aka bíl
44% karl-bíleigenda eru launþegar
24% kven-bíleigenda eru launþegar
40% karla segja að bíllinn sinn sé sitt aðal-áhugamál
9% kvenna segja að bíllinn sé sitt aðal-áhugamál
ii 6