Vera - 01.04.1983, Qupperneq 16

Vera - 01.04.1983, Qupperneq 16
Og þá vaknar önnur spurning: Er ég að gera út af við líf eða einstakling? Segjum við ekki, við sem berjumst fyrir frjálsum fóstur- eyðingum, að fóstureyðing sé ekki eyðing á lífi? Er ég að svíkja þann málstað með þessum vangaveltum? Nei. Tólf vikna fóstur er ekki líf. Er það ekki einmitt þar, sem læknavísindin setja mörkin — þegar miðtaugakerfið verður til. Sömu mörk og skilja líf frá dauða, sama skilgreining. Fram að þeim tíma verður umráðaréttur konunnar yfir eigin líkama að gilda. Já. Svona hugsa ég þetta, dag eftirdag, nótt eftir nótt. Fram og til baka og fram aftur. Eg geri ráð fyrir að ég fari í þetta helvítis legvatnspróf. Læknirinn mun skoða í sónarnum hvernig fóstrið liggur, hversu mikið legvatn- ið er. Svo merkir hann á magann á mér með blýanti eða tússpenna og stingur nál á kaf inn í kviðinn á mér, dregur sýnið upp í sprautuna og það er yfirstaðið. Nema hvað ég þarf að bíða í tvær vikur eftir svarinu. Og þá getur engin tekið ákvörðun nema ég. Kannski geri ég mér óþarflega erfitt fyrir. Kannski ætti ég bara að láta nægja að þakka réttinn til að mega taka ákvörðunina. Réttinn til að segja já eða nei. Ég hef hann þó. Stundum fáum við svo sannarlega að bera ábyrgð! Mamma.

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.