Vera - 01.04.1983, Qupperneq 25

Vera - 01.04.1983, Qupperneq 25
Maskúlinistar allra landa — sameinist! Kallar Hugh nokkur de Garis, fæddur og uppalinn í Ástralíu, nú með breskan passa en búsettur í Brussel. Hann ætlar sér að verða Germain Greer maskúlinistanna og virðist vel á veg kominn með að ná því marki, ef dæma má af hans eigin orðum. Þessi áratugur ætti að verða áratugur karls- >ns — nú er okkar tími að koma, segir Hugh. 1 Bandaríkjunum spretta meðvitundar- vakningarhópar karla upp úr fásinninu eins og gorkúlur, sömuleiðis í Danmörku, Hol- landi og Englandi. Maskúlinistahreyfing Evrópu mun halda þing sitt, það þriðja í röðinni, í Gent í sumar sem kemur. Það cr margt, sem þarf að gera fyrir karla, segir Hugh. T .d. er meðalaldur þeirra átta árum styttri en kvenna. Kannanir gerðar í klaustrum bera þess vitni að meðalaldur munka og nunna er sá hinn sami og aðrar kannanir sýna, að konur á framabraut deyja þremur árum fyrr að meðaltali en húsmæð- ur. Þetta gefur þó nokkuð til kynna, svo sem að karlar hrynja niður löngu áður en það er í rauninni tímabært. Ástæðan? Of mikið vinnuálag. Hugh nefnir Iíka tilfinningalega fátækt karla. ,,Konum er kennt að vera hlýjar og opnar, körlum er bannað slíkt alveg frá bernsku. Við vöxum úr grasi eins og vél- menni, óhæfir til tjáskipta." Þetta ljós fór að renna upp fyrir Hugh þegar hann las The Female Eunoch eftir Greer. Hann fór að velta fyrir sér líkamlegri og félagslegri kyn- greiningu út frá sjónarmiði karla. Strákar Itera sitt kynhlutverk engu síður en stelpur, þetta þarf hvoru tveggja að stokka upp. Eyrsta skref maskúlinistahreyfingarinnar, að mati Hughs, þarf að vera krafa um sveigj- anlegan vinnutíma og aukin hlutastörf. í fyrirmyndarþjóðfélaginu verður hlutur kynjanna jafn á vinnumarkaðnum og á heimilunum. Við viljum líka fá tíma til að kynnast og elska börnin okkar. Lagalegt misrétti gagnvart körlum er alls staðar, heldur hann áfram: T. d. herskylda, konur eru undanskildar henni og því alveg lausar viö að berjast og deyja á vígvellinum, nú eða þá eftirlaunaaldur, en víða erlendis fara konur fyrr á eftirlaun en karlar. Hvers vegna, fyrst konur lifa lengur en við? Hann vill einnig að réttur feðra yfir ófæddum hörnurn verði jafn rétti móðurinnar, þannig að faðirinn eigi jafnan ákvörðunarrétt um fóstureyðingu og konan. Markmið Maskú- linista, að sögn Hughs þessa, líkjast mjög markmiðum feminista. „Karlar munu einn góðan veðurdag verða hlýjir og tilfinninga- næmir án þess að þurfa að skammast sín fyrir það. Núna erum við varla annað en gangandi bankareikningar." Ný jafnréttislög hafa verið sett í Frakk- landi. Lögin eru kennd við jafnréttisráð- herrann, Yvette Roudy, og voru samþykkt af franska þinginu með 327 atkvæðum en stjórnarandstaðan sat hjá. Með Roudy-lögunum hafa þau gömlu verið rnikið endurbætt. Þau fjalla um menntun, vinnumál s.s. vinnuvernd og að- stöðu. stöðuveitingar, uppsagnir og at- vinnuleysi. Nokkur verkalýðsfélög og kven- réttindakonur hafa að vísu lýst því yfir að lögin gangi ekki nógu langt eða að þau séu ekki nógu afdráttarlaus. Þó munu flestir sammála um að mikils sé af þeim að vænta, því þau gömlu hafi ekki haft tilætluð áhrif. Allar greinar, sem gera upp á milli kynja hafa verið numdar brott (nema þær sem fjalla um réttindi mæðra og barnshafandi kvenna). Lögin gefa þó svigrúm, í fyrsta sinn í frönskum lögum, til jákvæðrar mis- mununar: „Skammtíma aðgerðir má gera í því augnamiði að rétta hlut kvenna aðeins. Markmið aðgerðanna verði að örva jafna möguleika karla og kvenna." Tíðinda er að vænta af breskum konum í maí n. k. Þar í landi er nú verið að skipu- leggja viku-herferð gegn klámi, sem á að hefjast 14. maí. „Klám er ofbeldi gegn kon- um" segja konurnar og ætla nú enn að láta til skarar skríða gegn síaukinni sölu á klám- blöðum, ofbeldi í kvikmyndum, auglýsing- um, og fjölmiðlunum. í hverju einasta krummaskuði í Bretlandi er að finna a.m.k. eina klám-vörubúð, video-væðingin veldur 'jafn miklum áhyggjum þar eins og hér og fjölmiðlarnir hika ekki við að selja sig og vörur sínar með berum stelpum. „Violence sells — who pays?" er spurt. Herferðin hefst eins og fyrr sagði þ. 14. maí. Þann dag munu konar gera aðför að klám- og videobúðum, hver í sínu bæjarfé- lagi. Þ. 15 verða vökur til minningar um þær konur, sem hafa þjáðst vegna ofbeldis frá hendi karlmanna. Vökurnar verða haldnar á aðaltorgum borga og bæja. Vikunni lýkur þ. 21. maí með fjöldagöngu um Soho hverfi Lundúna, en Soho er n.k. nafli klám-iðnað- arins í Bretlandi. í auglýsingum frá skipu- leggjendum segir m.a.: „Við biðjum allar konur, sem þrá frið, allar konur sem vilja ráða yfir eigin líkama, að vera með í háværu nei-i, í mótmælum gegn því sem verið er að gera okkur með klámi. Það voru 30.000 konur á Greenham Common — hittumst allar aftur í Soho." Á miðjum jólamánuði síðasta árs hittust hvorki meira né minna en 30 þúsund konur á einum stað í Bretlandi til að mótmæla kjarnorkuvopnum og stríði. Staðurinn var Greenham Common, í Suður-Englandi (Berkshire) en þar er eitt kjarnorkuvera Bretlands. Fjöldafundir til að mótmæla víg- búnaði gerast æ algengari og fjölmennari sem von er. Greenham Common samkom- an vakti þó meiri athygli en aðrar í Bretlandi og það fyrir ýmsar sakir. Og síðan hefur staðarheitið Greenham Common orðið nokkurs konar tákn fyrir friðarbaráttu kvenna, tákn sem tlestir þekkja. Hér var þessum fjöldafundi lítið sinnt í fjölmiðlum, þótti víst varla fréttnæmt. Sjónvarpið birti myndir af löggunni við að hirða bandóðar kvenréttindakellingar sem uppi höfðu óspektir — aðrir létu sér fátt um finnast. En í breskum blöðum, að ekki sé nú talað um róttæk kvennablöð, kemur fram að Green- ham Common hefur verið stórkostlegt ævintýr sem allir, sem þar komu saman munu minnast um langan aldur. Og okkur þykir rétt að segja dálítið nánar frá þessum viðburði. Takið með ykkur persónulega muni... Snemma á síðasta hausti tóku að birtast auglýsingar. Ein hljóðaði svona: „Konur vilja líf á jörðu. Þ. 12. desember safnast konur saman við kjarnorkuverið á Greenham Common. Hittumst við hliðin sjö, tökum með okkur persónulega muni til að hengja á girðinguna umhverfis verið, skrýðum það mótmælum og skilaboðum um ógnunina sem stafar af kjarnorku. Um há- degisbil verður myndaður hringur kvenna allt umhverfis verið og um kvöldið verða 25 JQ

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.