Vera - 01.04.1983, Page 32

Vera - 01.04.1983, Page 32
HVERSVEGNA HÆTTA STELPURNAR? í framhaldi af skrifum okkar um íþróttir í síöustu VERU, birtist hér viðtal við fjórar íþróttakonur. Tvær þeirra, Ástbjörg Gunn- arsdóttir og Svana Jörgensdóttir, áttu sæti í Kvennanefnd ISI og unnu m. a. að skýrsl- unni sem við sögðum frá í síðasta blaði. Tvær viðmælenda okkar eru Katrín Dani- valsdóttir og Oddný Sigsteinsdóttir, en þær eru báðar í íslenska landsliðinu í handbolta. Vera byrjaði á því að spyrja þær Ást- björgu og Svönu hvað hefði komiö þeim mest á óvart við gerð könnunarinnar. Svana: Það sem kom mér mest á óvart var hversu gífurleg nýting er á öllu íþróttahús- næði sem við könnuðum. Þessi hús eru full- bókuð frá því eldsnemma á morgnana fram til miðnættis og þá eru helgarnar ekki und- anskildar. Vera: Hvað með þá skoðun, að konur fái „verri“ tíma en karlar? Ástbjörg: Það er eiginlega ekkert sem stað- festir það. Tímum fyrir hinar ýmsu greinar er úthlutað árlega og sum ár fá konur verri tíma, sum árin betri, en í heild er ég alls ekki viss um að munur sé þar á. Vera: Hvað segið þið um þetta, Katrín og Oddný? Katrín: Handboltinn hefur jafnan verið nokkurs konar aðalsmerki míns félags, FH, og ég held að þar sé strákum og stelpum gert jafnhátt undir höfði. Aftur á móti er Ijóst að hvað varðar mótin eru kvennadeildirnar á verri tímum. Oddný: Já, ég tek undir það. Það breytir miklu hvort konur eru með í stjórn eða ekki. Hjá okkur í Fram hafa alltaf verið konur í stjórn handboltadeildarinnar og það hefur skipt okkur miklu. Aftur á móti eru karl- mennirnir allsráðandi í knattspyrnudeild- inni. Eitt sumarið vorum við eitthvað fyrir þeim og þá var kvennaknattspyrnan lögð niður hjá félaginu, en eftir stóðu 20 áhuga- samar stelpur félagslausar. Afhverju hætta stelpurnar? Vera: Það kemur fram í könnuninni að stelpurnar vilji hætta í íþróttum á aldrinum 15-16 ára. Ástbjörg: Já, greinilega. Þó má koma fram, að margir piltar hætta einmitt þá líka. Aftur á móti byrja þeir oftar fyrr á nýjan leik en stúlkur. Svana: Þegar ég var í handboltanum um 1950, varð ég oft vör við að fólk furðaði sig á því að við skyldum nenna þessu. Viðhorfin voru þannig þá, þessi skoðun hefur þó breyst til batnaðar, en e. t. v. eimir eftir af þessu enn. Vera: Getur verið að stelpur séu óbeint lattar til að stunda íþróttir vegna þess að það þyki ókvenlegt? Nú ersá aldursem um ræð- ir, kynþroskaaldurinn, einmitt sá tími þegar stelpur reyna að falla inn í sitt kynhlutverk. Ástbjörg: Það er að minnsta kosti misskiln- ingur, að þær, sem leggja stund á íþróttir, verði eitthvað ókvenlegri fyrir vikið. Ef svo fer, þá er um ranga þjálfun að ræða. Þjálfun verður að höfða til beggja kynja. Katrín: Það er náttúrlega um ákveöin tíma- mót að ræða á þessum aldri í sjálfum íþrótt- unum, stelpur ganga upp í meistaraflokk til dæmis. Annars var það þannig þegar ég var 16 ára, að það voru sagöar vera strákastelp- ur sem voru í íþróttum, en nú þykir það töff að vera hraustur og taka þátt í þeim. Oddný: Líklega hefur einnig áhrif sú upp- skipting á félagsskap, sem krakkar ganga í gegnum á þessum aldri — sumir lenda ein- faldlega í íþróttagrúppunni, aðrir í ein- hverju öðru. Aðlaðandi í íþróttum? Vera: Forseti ISI sagði m. a. í ræðu sinni á ráðstefnunni síðast liðið vor: „Veitum kvenþjóðinni athygli og styðjum þær og örvum á íþróttasviðinu. Við skulum láta þær finna og sjá, að þær eru jafnaðlaðandi í íþróttum og annars staðar." Finnst ykkur þetta bera vott um að hann og karlarnir geri fyrst og fremst þá kröfu til kvenna að þær séu aðlaðandi? Svana: Eg tók þessu nú ekki á neikvæðan hátt. Ástbjörg: Líkamsrækt af öllu tagi hlýtur að gefa öryggi og sjálfstraust í framkomu. Að- laðandi kona er ánægð. Katrín: Myndu slík orð sem þessi vera sögð um karlmann? Þessi orð segja okkur mikið um þau viðhorf sem karlmenn hafa gagn- vart konum sem stunda íþróttir. Oddný: Við sjáum þetta nú svart á hvítu í vali á efni í íþróttaþáttum sjónvarpsins. Þar er megináherslan í kvennaíþróttum á þær greinar sem „fínlegri" þykja, svo sem á fim- leika. Vera: Hvað um keppnisskapið — er því eitthvað ólíkt farið hjá stelpum og strákum? Er það kannski minna hjá stelpum og þar sé komin ein skýring þess hvers vegna þær hætta fremur? Svana: Ég er viss um að bæði kynin búa yfir jafn miklu keppnisskapi. Aftur á móti er ekki laust við að viðhorf kvenna til keppnis- íþrótta breytist er þær komast á giftingar- aldurinn og sigrar verði þeim minna virði en körlunum. Katrín: Þetta mcð keppnisskapiöer kannski spurning um þroska, sigurinn verður ekki minna virði, en maður tekur ósigrunum á annan hátt. Ástbjörg: Það er svo margt sem hefur áhrif. Mcr dettur í hug sú breyting sem orðið hefur — því vissulega hefur þátttaka kvenna auk- ist og ein ástæðan fyrir því er að vísindaleg þekking á líkamanum hefur breyst. Áður fyrr þótti ekki aðeins ókvenlegt að vera í sporti, það var álitið að kvenlíkaminn þyldi minna álag en hann gerir og að það væri beinlínis óhollt. Heilsunnar vegna þótti ekki ráðlegt að hlaupa eða synda á meðan á blæðingum stóð — nú er þetta litið öðrum augum. Vera: Höldum áfram við þá staðreynd að stúlkur á kynþroskaaldri hætta í íþróttum — það tengist e. t. v. því sem þú sagöir núna, Ásfbjörg. Við vitum að þegar stelpur fara að breytast líkamlega, fá brjóst, hafa tíðir o. s. frv., þá er það oft mikið feimnismál. Kröf- urnar, sem gerðar eru til líkamlegs útlits, eru harðar — getur verið að stelpur blygðist sín, fari fremur í felur með líkama sinn en strák- arnir, og veigri sér við að berhátta sig, fara í sturtu . ..? Ástbjörg: Já, ef til vill. Ég varð oft vör við það, fyrstu árin mín í kennslu, að erfitt var að fá stúlkurnar til að fara í bað á eítir leikfimi. Þá var ég vön að ræða við þær, fræða þær um Iíkama sinn. Það er auðvitaö alveg nauðsynlegt að þjálfarinn hafi skilning á svona hlutum og nægilegan þroska. En þaö vill vera þannig, að sumir þjálfarar eru ósköp ungir og reynslulitlir. Utan eða innan félaganna? Vera: Nú liggur ljóst fyrir að konur stunda sína líkamsrækt að mestu leyti utan íþrótta- félaganna. Við höfunt verið að leita skýr- inga á þessu og höfum rætt við ýmsa, til dæmis við Báru Magnúsdóttur, sem rekur líkamsrækt J.S.B. Hún lét sér detta í hug að konur vildu hafa næði til að vera saman, aö þær fyndu ekki fyrir þeirri klúbbstemmn- ingu í félögunum, sem þær finna í leikfim- inni. Hvað haldið þið um þetta? Ástbjörg: Þetta gæti verið rétt að vissu marki. Svana: Nei, ég er ekki sammála þessu. Svona stemningu er líka hægt að skapa inn- an félaganna. Oddný: Kannski er erfitt að koma inn í hóp, sem þekkist fyrir, eða inn í hópandann, sem ríkir í húsnæði félaganna. Svo er þetta áreiðanlcga líka hreinlega spurning um tíma

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.