Vera - 01.09.1984, Page 2

Vera - 01.09.1984, Page 2
Á því eina og hálfa ári sem núverandi ríkisstjórn hefur setið við völd hafa kjör launafólks í landinu far- ið hríðversnandi þrátt fyrir það að afkoma allflestra atvinnugreina hafi sjaldan verið betri. Harðast kemur þó láglaunastefna stjórnvalda nið- urá konum. Á valdatíma núverandi ríkisstjórnar hafa kjör kvenna orðið enn verri en undir flestum ríkis- stjórnum síðari ára. Staðreyndin er sú að konur á vinnumarkaðinum hafa alltaf fyllt lægstu launaflokk- ana en nú er svo komið að algengustu laun kvenna, lágmarkslaun, duga ekki einu sinni til lágmarksfram- færslu enda hafa nauðsynjar og heilbrigðisþjónusta hækkað margfalt á við launin. Það er því ijóst að ein helsta réttlæting ríkisstjórnar og atvinnurekenda fyr- ir kjaraskerðingunni — minnkun verðbólgunnar — hefur ekki haft í för með sér batnandi lífskjör, allra síst fyrir konur. Það er vert að geta þess að hæstu meðallaun kvenna eru ekki hærri en það að þau eru sambærileg við laun karla á aldrinum 15—19 ára og karla á aldrinum 65—69 ára. Það er Ijóst að vinnuframlag kvenna er lægra metið en vinnuframlag karla og að enn er litið svo á að karl- menn séu fyrirvinnur heimilanna en laun kvenna uppbótarlaun. Þetta er þó í ósamræmi við þá stað- reynd að nú geta fæstar fjölskyldur framfleytt sér á launum einnar fyrirvinnu. Einstæðum konum fer þó fjölgandi og eru oft einu fyrirvinnur fjölskyidna. Þeim er ætlað að framfleyta sér og sínum á uppbótar- tekjunum einum saman. Þau viðhorf að karlmaðurinn sé fyrirvinna heim- ilisins en konan fyrst og fremst heimavinnandi hús- móðir og eiginkona, leiðir af sér að vinnuafl kvenna er notað sem varaskeifa. í samræmi við það er konum fyrst sagt upp störfum þegar illa árar, á þeim forsend- um að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst húsmóður- hlutverkið, en á þensluskeiðum aftur á móti eru þær hrifsaðar út af heimilunum á vinnumarkaðinn sem ódýrt vinnuafl. Þessi staða ætti að vera okkur konum hvatning til harðrar baráttu því að efnalegt sjálfstæði er ein meginforsendan fyrir því að, árangur náist í baráttunni gegn kúgun kvenna. Við konur verðum að hætta að líta á okkur sem varavinnuafl með uppbótarlaun og krefjast þess að vinnuframlag okkar verði metið til jafns við karla. Ríkjandi ástandi verður ekki breytt nema með sam- eiginlegu átaki okkar allra. Við verðum að taka barátt- una í okkar eigin hendur. Við hljótum að berjast fyrir öflugri verkalýðshreyfingu og gegn kvenfjandsam- legri láglauna og öfgastefnu ríkisstjórnar atvinnu- rekenda. AÓ/KÓ/Mrún VERA 4/1984 SEPTEMBER Útgefandi: Kvennaframboðiö í Reykjavík og Samtök um Kvennalista símar: 22188, 21500 og 13725 Ritnefnd: Guörún Jónsdóttir Gyöa Gunnarsdóttir Helga Thorberg Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kristín Blöndal Magdalena Schram Margrét Rún Guömundsdóttir Sigríður Sveinsdóttir Temahópur: Aagot Óskarsdóttir Kristín Ólafsdóttir Margrét Rún Guömundsdóttir Starfsmaður VERU: Sonja B. Jónsdóttir Ljósmynd á forsíöu: Þjóðminjasafn, Gunhild Thorsteinsson Útlit: Solla, Malla, Margrét Rún, Gyöa og Kristín Blöndal Ábyrgöarmaður: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Auglýsingar og dreifing: Hólmfríöur Þórhallsdóttir I Setning og filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun: Solnaprent Ath. Greinar I Veru eru birtar á ábyrgö höfuhd3 og eru ekki endilega stefna útgefenda. Áskriftarsímar: 21500, 22188 og 13725

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.