Vera - 01.09.1984, Side 12

Vera - 01.09.1984, Side 12
kvennanna og 35% karlanna sig þjást af streitu í vinnunni. (Ef teknir eru allir þeir sem töldu sig þjást af streitu bæöi utan vinnu sem innan er hlutfallið mun hærra). Fólkið gefur upp mismunandi ástæður fyr- ir streitunni og oft á tíðum vega ástæðurn- ar jafn þungt hjá báðum kynjum. Það vek- ur engu að síður athygli að fleiri konur en karlar telja launakerfið og persónulegar aðstæður vera orsök streitunnar. Hins vegar telja fleiri karlar en konur vinnuálag vera orsök sem tengist líklega því að þeir eru lengur á vinnustað. Bæði meðal karla og kvenna er stress algengast á aldrinum 20—40 ára og er toppurinn í kringum 20—29 ára aldurinn en þá telur um helm- ingur af báðum kynjum sig þjást af streitu í vinnunni. Stressið minnkar síðan með aldrinum og er komið niður í 30% meðal kvenna yfir fertugt. Það vekur hins vegar athygli að streita hjá körlum minnkar ekki fyrr en um fimmtugt en þá fer hún líka nið- ur í 12% svo það er til einhvers að vinna. Ef streitan er skoðuð í samhengi við launakerfi eins og sjúkdómarnir hér á und- an, þá kemur í Ijós að stressið er mest í ein- staklingsbónus en þar eru 45% kvenn- anna stressaðar á móti 29% kvenna í hóp- bónus og 22% kvenna sem vinna á tíma- kaupi. Þess má jafnframt geta að af þeim sem gefa launakerfið upp sem ástæöu fyr- ir streitu eru hlutfallslega mun fleiri í ein- staklingsbónus en t.d. á tímakaupi. Meirihlutinn vill breytingar Af því sem hér hefur verið sagt um sjúk- dóma og streitu má Ijóst vera að launakerfi hafa áhrif á heilbrigði fólks. Könnunin í heild rennir fleiri stoðum, en hér hafa verið taldar fram, undir það að ákveðin tengsl séu á milli einhæfni og vinnuhraða annars vegar og sjúkdóma og streitu hins vegar. Mörgum konum i fiskvinnu hafa lengi verið Ijós þessi tengsl en jafnframt að það er ekki hægt að láta bónusinn lönd og leið og hverfa aftur að óbreyttu tímakaupi. Enginn lifir á tímakaupinu einu saman. Könnunin leiðir t.d. í Ijós að aðeins 40% þeirra kvenna sem vinna í einstaklingsbónus vilja halda óbreyttu ástandi og telja sig hafa það ágætt við núverandi launakerfi. 37% þeirra vilja halda áfram í einstaklings- bónus vegna launanna og 22% vilja gjarn- an skipta um launakerfi vegna þess að þær telja vinnuna ýmist of erfiða eða of mikið stress. Meirihluti kvennanna virðist því hallur undir breytingar gegn því að hægt sé að ná samningum sem tryggi fiskverk- unarfólki mannsæmandi laun. Samningar undanfarinna ára virðast hins vegar fyrst og fremst hafa tekið mið af bónusgreiðslunum og er eins og gengið hafi verið út frá því að þær héldu lífinu í konunum rétt eins og ætlast var til að smyglið héldi lífinu í sjómönnunum á sín- um tíma. Fastakaup var og er enn auka- atriði. Meðan sá þankagangur ræður ríkj- um situr timakaupið eftir og bónusinn verður áfram ill nauðsyn sem konur verða að greiða fyrir með heilbrigði sínu. — isg. P.s. Þess má geta að samsvarandi könnun var gerð í fata- og vefjariðnaðinum og hafa Verkamannasambandið og Iðja ákveðið að sty rkja hana fjárhagslega og gefa út að- gengilega bæklinga til aö dreifa meðal verkafólks. Endar ná aldrei saman Hjálpum ekki skussunum sagði Albert, eftir fund með Halldórí í i „Það v«! nar að h)áipa möoman máhun. „Viö megum ekki hlaupa bUnt i gera dtthvert gagn en eln- á eftlr krtifum þrýatlhópa og setja hverjum akumum." sagðt Albert þannig þjóófélagiö endanlega á haua- nunrtaaon (jármálaráðberra I °Gt/4ÚkIE7 Reyndu hjí félagi einstæðra, góðit! Um könnun á kjörum og fé- lagslegri stöðu einstæðra for- eldra í landinu. Áriö 1982 var skipuð nefnd á veg- um félagsmálaráðuneytisins sem kanna skyldi kjör og félagslega stöðu einstæðra foreldra í landinu. Nefndin ákvað m.a. að gera könnun meðal einstæöra foreldra þar sem eftirtal- in atriði skyldu höfð til hliðsjónar: Hagir barna, húsnæöismál, menntun og skóla- ganga, atvinna og störf — einkum með til- liti til vinnutíma, launakerfis og veikinda barna, tekjur og framfærsla, og i síðasta lagi var höfö ein opin spurning þar sem óskað var eftir almennri frásögn um hvað viðkomandi teldi hafa valdið mestum breytingum á lífsháttum við það að verða einstætt foreldri. Um framkvæmd og úrvinnslu könnunar- innar sáu Þorbjörn Broddason, dósent við félagsvisindadeild og Hellen Magnea Gunnarsdóttir, B.A. Það er e.t.v rétt að taka það strax fram að það er rangnefni að tala um kjör ein- stæðra foreldra í þessu sambandi vegna þess aö yfirgnæfandi meirihluti þeirra eru konur, eða 94%, og þarf það ekki að koma neinum á óvart. Karlmenn eru því hreinar undantekningar i hópi einstæðra foreldra- Þegar litið er á helstu niðurstöður þess- arar könnunar kemur i Ijós að tryggt hús- næði er eitt brýnasta mál einstæðra mæðra og virðast húsnæðisörðugleikar skyggja á allan annan vanda. U.þ.b. 40% 12

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.