Vera - 01.09.1984, Side 16

Vera - 01.09.1984, Side 16
Þegar kjör okkar þriggja af Kvennalista til Alþingis var oröin staðreynd, stóöum viö frammi fyrir því erfiða vali, hver ættu aö njóta forgangs af þeim mörgu réttlætismálum, sem viö vildum vinna aö. Eitt þeirra varöaöi úrbæt- ur í málefnum þeirra, sem veröa fyrir ofbeldi, og þá sérstaklega nauögun- um. Ótrúlegt virtist, aö aörir yröu til aö beita sér í slíku máli. Þaö kom í hlut undirritaðrar að vinna að því. Heimildir Viö athugun kom í Ijós, aö um þetta efni fannst ekki stafkrókur í þingskjölum, þótt leitaö væri langt aftur i tímann. Lesefni var aö ööru leyti einnig af skornum skammti. í tímaritinu Úlfljóti, 1.—2. tbl. 1980, er próf- ritgerð Ásdísar J. Rafnar lögfræðings um afbrotiö nauögun. í sama blaði fjalla þær Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræöingur og Þorgeröur Benediktsdóttir lögfræðing- ur um þau atriöi, sem skýra viðhorf til nauðgana og viðbrögð viö þeim, og loks er þar grein byggö á samtali viö Arnþrúði Karlsdóttur, þáverandi rannsóknarlög- reglumann, sem í starfi sínu fékkst talsvert viö rannsókn nauðgunarmála. í tímaritinu Geövernd, 1982, er fjallað um ofbeldi gegn konum í heimahúsum, og í nóvemberhefti Veru 1982 er fjallað um nauögun í nokkrum greinum. Loks ber aö nefna námsefni lögfræðinema, kennslurit- iö Skirlífisbrot eftir Jónatan Þórmundsson, útgefiö árið 1981, sem ég kynnti mér, auk þess sem ég leitaði beint til hans um vitneskju og ráðleggingar. Svo var raunar um fleiri, og vil ég sérstaklega geta þeirra Önnu Magneu Hreinsdóttur hjá Kvennaat- hvarfinu í Reykjavík og Hildigunnar Ólafs- dóttur afbrotafræöings, sem veittu mér bæði upplýsingar og góö ráð. Þung viðurlög — vægir dómar í núgildandi hegningarlögum segir svo í 194. grein: ,,Ef kvenmanni er þröngvaö til holdlegs samræöis meö ofbeldi eða frels- issviptingu, eöa meö því aö vekja henni ótta um líf, heilbrigði eöa velferð hennar sjálfrar eöa náinna vandamanna hennar þá varðar það fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt aö 16 árum eöa ævilangt. Sömu refsingu skal sá sæta, sem kemst yfir kvenmann meö þvi aö svipta hana sjálf- ræöi sínu.” Samkvæmt þessum lögum, sem eru frá 1940, er nauðgun ofbeldi af alvarlegasta tagi, sem varöar þyngstu refsingu og ekki ástæöa til aö æskja breytinga á þeim. Þaö er svo aftur annað mál, aö lítið samræmi er á milli laganna og framkvæmda í þeim efn- um. í svari dómsmálaráðherra viö fyrirspurn undirritaðrar (sem nánar verður sagt frá á þingmálasíðum), í Sameinuöu þingi 6. mars s.l. komu m.a. fram eftirfarandi upp- lýsingar: Frá 1. júli 1977, en þá tók Rann- sóknarlögregla ríkisins til starfa, til 31- des. 1983 skráði Rannsóknarlögreglan alls 126 kærur um nauðgun. Af þeim kær- um voru 82 sendar ríkissaksóknara til frek- ari meöferðar. 58 kærur leiddu til ákæru, og 44 þessara ákæra höföu á þessum tíma þegar leitt til dóms. Algengasta refsing var fangelsi í 12—18 mánuði, en i einu tilviki var dæmt í 3 ára fangelsi. Viðhorf samfélagsins 126 kærur á sex og hálfu ári er há tala, ekki síst þegar haft er í huga, aö mikill meirihluti nauögunarbrota er aldrei kærð- 16

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.