Vera - 01.09.1984, Síða 17

Vera - 01.09.1984, Síða 17
ia kve'inft mvóU"11 Ur- Enskar og bandarískar kannanir benda ! Þeirrar niðurstöðu, og hér á landi er astandið varla betra. Um það eru að sjálf- ^°9ðu engar skráðar heimildir, en munn- e9ar margvíslegar, og má mikið vera ef esendur kannast ekki flestir við slík tilvik. Staðreyndin er því miður sú, að fórnar- 0rnb nauðgara eiga ekki vísa samúð allra. Alltof margir hafa hugsunarháttinn: Henni ar nær/ Hún bauð upp á þetta/ Hún var rukkin/ Hún var ögrandi klædd/ Hvað var Un svo sem að flækjast á þessum tíma So|arhringsins? ^etta vita allar konur, og þessi viðhorf æ a margar frá því að leita réttar síns, ef Un9umstæður eru eitthvað líkar því sem ofan er lýst. Oft þekkja þær líka afbrota- anninn eða aðstandendur hans og vilja ' a þeim. Og margar konur hafa þá sögu Se9ja, að þeim hafi verið ráðið frá því að ra nauðgun. Þar eru að verki ættingjar a kunningjar, en einnig lögreglan. Vafa- Ust eru slík ráð vel meint, enda margra ynsla, að kæra og rannsókn nauðgunar- a s auki aðeins á niðurlægingu þolanda. ugljóst er, að mikillar hugarfarsbreyt- Vo9ar er þörf hjá þorra manna. Það hefst nandi með umfjöllun og áminningum, enær sem ástæða er til. Tillaga Kvennalistans Aðstaða brotaþola í nauðgunarmálum er algerlega óviðunandi og brýnt að bæta þar um. í því skyni lögðum við þingmenn Kvennalista fram eftirfarandi tillögu til þingsályktunar á síðasta þingi: „Alþingi ályktar að fela dómsmálaráð- herra að skipa fimm manna nefnd, er kanni, hvernig háttað er rannsókn og með- ferð nauðgunarmála og geri tillögur til úr- bóta í þeim efnum.” í greinargerð með tillögunni sagði m.a.: ,,Lagt ertil, að í nefndinni eigi sæti full- trúi Kvennaathvarfs, lögfræðingur, rann- sóknarlögreglumaður, læknir (sérfræð- ingur í kvensjúkdómum) og félagsráðgjafi eða sálfræðingur. Eðlilegt og sjálfsagt er, að nefndin sé að meirihlutaskipuð konum. Meðal úrbóta, sem til greina koma, má nefna eftirfarandi: — Lögreglu sé skylt að benda brotaþola á aðstoð Kvennaathvarfs eða einhvers sambærilegs aðila þegar á fyrsta stigi kærumálsins. — Brotaþola sé tryggð lögfræðiaðstoð og aðstoð geðlæknis, félagsráðgjafa eða sálfræðings, þegar á fyrsta stigi rann- sóknar. — Læknirinn, sem skoðar brotaþola, sé kona. — Rannsóknarlögreglumaðurinn, sem yf- irheyrir brotaþola, sé kona. — Haldin verði námskeið fyrir þá, sem að- stoða brotaþola, og þá, sem annast lögreglurannsókn vegna nauðgunar- mála. Loks má benda á, að mörgum þykir sönnunarbyrði brotaþola í nauðgunarmál- um ankannaleg og að atferli þeirra, bæði fyrir og eftir brotið og á meðan á því stóð, sé dregið fram í dagsljósið í ríkara mæli en við rannsókn annarra mála. Ennfremur kynni að vera fróðlegt fyrir nefndina að athuga og bera saman dóma fyrir nauðg- unarbrot og forsendur þeirra dóma, t.d. s.l. 20 ár. Æskilegt er, aö nefndin hraði störfum sínum og skili áliti á þessu ári.” Hverfisgötumálið vakti þingheim Við Guðrún og Sigríður Dúna stóðum einar að þessari tillögu. Við buðum nokkr- um öðrum þingmönnum aðild að tillög- unni, en þeir afþökkuðu, okkur til tals- verðrar undrunar, og báru ýmsu við. Vegna þessara viðbragðaannarra þing- manna, svo og vegna þess að tillagan fór ekki í nefnd fyrr en í apríl (sjá ræðu í Alþing- istíðindum, 24. hefti, 4961), vorum viö von- daufar um að hún fengist afgreidd fyrir vor- ið, þrátt fyrir allan þann eftirrekstur, sem viö töldum hæfilegan. En tillagan fékkst reyndar samþykkt, og var það vafalaust fyrst og fremst vegna Hverfisgötumálsins, sem vakti marga af værum svefni. Er hart til þess að vita, að slíka óhugnaðaratburði þurfi til að opna augu manna fyrir því ófremdarástandi, sem rikir á þessu sviði. Því miður verður stundum lítið og seint úr framkvæmdum hinna ýmsu ályktana, sem samþykktar eru á hverju þingi. Þeim mun meiri ástæða er til að fagna skjótum viðbrögðum dómsmálaráðherra, sem þegar í júlí hafði skipað í nefndina eftir- talda aðila: Jónatan Þórmundsson, prófessor, sem er formaður nefndarinnar, Sigrúnu Júliusdóttur, félagsráðgjafa, Hildigunni Ólafsdóttur, afbrotafræðing, Ásdísi J. Rafnar lögfræðing og Guðrúnu okkar Agnarsdóttur, lækni og alþm. Viö bindum miklar vonir við störf þessar- ar nefndar, sem hefur nú í höndum sínum fyrsta málið, sem Kvennalistinn fékk sam- þykkt á Alþingi. Við vonum allar, að þau leiði til bættrar aðstöðu þeirra, sem verða að þola nauðg- un, þessa óhugnanlegu birtingu mann- vonsku, kvenfyrirlitningar og algjörs tillits- leysis gagnvart tilfinningum, sæmd og reisn manneskjunnar. Kristín Halldórsdóttir. 17

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.