Vera - 01.09.1984, Blaðsíða 21

Vera - 01.09.1984, Blaðsíða 21
Seinagangur hjá Jafnréttisnefnd Er reynsla af heimilisstörfum einhvers virði? Tillagan er því enn formlega til umsagnar hjá Jafn- réttisnefnd og hefur veriö þar í tæplega tvö ár. — Þetta er greinilega ekki mál sem Jafnréttisnefnd telur skipta miklu máli, enda er niðurstaða umsagnar hennar, sam- kvæmt því sem Ingibjörg Rafnar segir, sú að 10 ára starfsreynsla við heimilisstörf skuli metin til hæsta launastigs í sambærilegum störfum á vinnumarkaðin- um. Niðurstaða nefndarinnar boðar því sáralitla breytingu frá því sem nú er, en bæði Sókn og Framsókn hafa ákvæði í sínum samningum um að við störf hliðstæð heimilisstörfum sé sú reynsla metin einhvers í launum. Stórhugurinn í Jafnréttisnefnd fyrir bættum kjörum kvenna viröist því miður ekki vera svo ýkja mikill. Tónninn í ræðu Ingibjargar Rafnar var vægast sagt neikvæður. Hún taldi okkar tillögu bæði „botnlausa” og „glórulausa”. Orðrétt sagði hún um þá hugmynd, sem felst í okkar tillögu, að starfsreynsla af heimilis- störfum verði metin til fulls án tillits til hvort um lík störf sé aðræða: „Mérfinnst það óraunhæft að meta störf á heimili til starfsreynslu við hvers konar störf. Það er að mínu mati beinlínis óréttlátt. Það felur raunar í sér ákveðinn forgang kvenna að störfum, ef þær fá slíka forgjöf.” Það vafðist líka fyrir Ingibjörgu hvað væri átt við þeg- ar talað er um heimilisstörf í tillögunni og var helst á henni að skilja að það eitt gæti talist heimili þar sem væru hjón og börn! Við Kvennaframboðskonur teljum að svo sé, er> um það eru allar konur greinilega ekki sam- ^ála. I október 1982 fluttum við tillögu í borgar- s|jórn um að allar þær konur sem hjá borginni Vlr>na fengju reynslu sína af ólaunuðum heimil- 'sstörfum metna sem hverja aðra starfsreynslu Pegar þær hæfu störf hjá borginni. þessari tillögu var vísað til umsagnar Jafn- ['ettisnefndar Reykjavíkur. Ekki hefur umsögn Peirrar ágætu nefndar um þessa tillögu borist enn og höfum við þó reynt að ýta á eftir því að ta hana. hess vegna endurf luttum við tillöguna á borgarstjórn- J' ^ndi í júlí s.l., en enn var borgarstjórnarmeirihlutinn tilbúinn til að samþykkja hana, heldur lagði tals- aöur hans í þessu máli, Ingibjörg Rafnar, til að tillög- nni yrði nú vísaö til launamálanefndar. að blæs sem sagt ekki byrlega fyrir þessu réttlætis- ali frekar en fyrri daginn. Ingibjörg Rafnar tók sem sé sér fyrir hönd meirihlutans að jarða enn einu sinni essa tillögu okkar og var hún eini fulltrúi þeirra sem til als tók um hana. í ræðu hennar á borgarstjórnarfund- UrTi 5. júlí s.l. kom fram að hún hefði snúið sér til for- anns Jafnréttisnefndar, flokkssystur sinnar, Bjargar narsdóttur, og spurst fyrir um hvað umsögn nefndar- Ut^ar llöi. Þá hafi komið í Ijós að nefndin hafði gengið frá tii ,sa9n um fyrri tillögu okkar en dregið að senda hana 1 borgarstjórnar. Að potast ein og ein. . . Einnig setti Ingibjörg fyrir sig að tillagan tók aðeins til kvenna sem vinna heimilisstörf. Fannst henni það mik- ið misrétti að nota ekki fólk í staðinn því „ . . . forgjöf fyrir einn þýðir mismunun fyrir aðra. Við í Sjálfstæð- isflokknum leggjum a.m.k. meiri áherslu á rétt ein- staklings en hóps eða tegundar. . .” Þá höfum við það án umbúða — barátta kvenna samræmist ekki stefnu Sjálfstæðisflokksins, hafi einhver staðið í þeirri trú, alla vega ekki þegar hægt er að skilgreina okkur og baráttumál okkar sem baráttu „tegundar”. Það er allt í lagi að við potumst ein og ein á kostnað annarra. — Það er jafnrétti samkvæmt þessari greinargóðu skilgrein- ingu Ingibjargar Rafnar, borgarfulltrúa. Að lokum klykkti Ingibjörg út með þvi aö lýsa því yfir að hún teldi nýlegar samþykktir bæjarstjórnanna í Kópavogi og á Akureyri, um að meta skuli heimilisstörf til starfsreynslu hjá öllum konum sem hjá þeim vinna, afar óskynsamlega. Hins vegar væri hún hlynnt fyrir- komulaginu á Selfossi þar sem ákveðið er að störf skuli metin til 4ra ára starfsreynslu þegar bærileg störf er að ræða. Lengra eru jafnréttissinninn Ingibjörg Rafnar og borgarfulltrúar meirihlutans ekki til- búnir að ganga. G.J. 21

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.