Vera - 01.09.1984, Side 24

Vera - 01.09.1984, Side 24
ur fram þál.till. um rannsókn og meðferð nauðgunar- mála, sem náöi fram að ganga á síðasta degi þings — hið eina af málum Kvennalista á liðnum vetri. Hinum málunum, þeim sem ekki tókst að fá afgreidd verður að sjálfsögðu fylgt eftir á komandi vetri. Kristín Halldórs- dóttirfjallar ítarlega um rannsókn og meðferð nauðgun- armála í grein sem er að finna annars staðar í blaðinu. Fræösla um kynlíf og barneignir Þann 8. nóv. gerði Kristín Halldórsdóttir að umtals- efni lög sem afgreidd voru frá Alþingi í maí 1974 um ráð- gjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir. Hún benti á að nú rúmum áttaárum eftir gildistöku laganna skortir verulega á að sú fræðsla sem þau kveða á um sé fram- kvæmd, með þeim afleiðingum m.a. að fjöldi þungana meðal stúlkna á aldrinum 15—19 ára er miklu meiri hér á landi en meðal jafnaldra þeirra á Norðurlöndunum, en þar hafa stjórnvöld unniö markvisst að fræðslustörfum um þessi efni. Beindi Kristín eftirfarandi fyrirspurn til heilbrigðisráðherra og til menntamálaráðherra: 1. Hvað líður framkvæmd 1. kafla laga nr. 25 frá 1975 1—7 gr., um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barn- eignir? 2. Hyggjast ráðherrar notfæra sér tillögur um fræðsluherferð í skólum og meðal almennings, sem samstarfshópur 57 kvenna úr öllum stjórnmálaflokkum og mörgum starfsstéttum vann að og afhenti viðkom- andi ráðherrum í júlí s.l.? Tillögur kvennanna 57 um hvernig að slíkri fræðslu- herferð mætti standa eru í örstuttu máli á þessa leiö: Að gerð yrði fræðsluþáttaröð um kynlíf og barneignir til notkunar í sjónvarpi, í skólum og víðar, að aðgangur unglinga aö getnaðarvörnum yrði auðveldaður og ung- lingar markvisst hvattir til þess að nýta sér starfsemi kynfræðsludeilda. í svörum sínum lögðu báðir ráðherrarnir áherslu á, að fræðslustarfsemi varðandi kynlíf og barneignir hefði farið vaxandi á undanförnum árum og töldu fram- kvæmdaleysi stjórnvalda orðum aukið. Heilbrigðisráð- herra sagði að ekki væri mögulegt að auka kynfræðslu- starfsemina, nema fjárveitingar til þess hækkuðu. Menntamálaráðherra sagði helstu þröskulda í vegi slíkrar fræöslu vera skiptar skoðanir á því hvernig að fræðslunni skyldi staðið, á hvað ætti að leggja áherslu, og svo hins vegar væri um að ræða ókunnugleika á nýju efni. Málefni barna og unglinga Guðrún Agnarsdóttir beindi í febrúarmánuði tveimur fyrirspurnum, er báðar snerta hag barna og unglinga, til heilbr. og tryggingamálaráðherra. Sú fyrri hljóðaði svo: „Hverjareru aðstæður hér á landi til að veita athvarf og heilbrigðisþjónustu þeim börnum og unglingum sem eru illa haldin andlega og líkamlega um styttri eða lengri tírna vegna fíkniefnaneyslu.” Ástæðan fyrir fyrirspurn Guðrúnar er sú að sá hópur barna og unglinga sem neytir fíkniefna fer sífellt stækk- andi og hafa mörg þessara barna þegar beðið varanlegt tjón á heilsu sinni og önnureru í mikilli hættu. Sum eru illa haldin eöa ósjálfbjarga og eiga ekki í neitt hús að venda, vegna heilsufarslegra eða félagslegra vand- ræða. Brýnt er að bregðast við þessu vandamáli, þó það sé á byrjunarstigi, en í máli ráðherra kom fram að ekkert hefur verið gert til að koma til móts við þennan hóp þjóðfélagsþegna. Síðari fyrirspurnin var nátengd þeirri fyrri og hljóðaði svo: „Hverjar eru aðstæður í heilbrigðiskerfinu til að sinna geðrænum vandamálum barna og unglinga?” í svari rh. kom fram að á undanförnum árum hefur verið gert mikið átak í þessum efnum, þó þörfin sé meiri en svo að unnt sé að anna henni að því er virðist. Einnig kom í Ijós að aðhalds og sparnaðaraðgerðir ríkisstjórn- arinnar munu bitna á þessum þætti sem öðrum innan heilbrigðiskerfisins. > Guðrún vakti athygli á að af 51 karlkyns þingmanni fylgdust aðeins 5 auk ráðherra meö þessum umræðum, en 5 konur af 9. Heilbr.- og tryggingamálarh., Matthías Bjarnason, tók undir orð Guðrúnar og sagði það vera til skammar fyrir karlkyns þingmenn, hvaö illa væri mætt við þessar umræður. Undir það getum við allar tekið, en hver skyldi vera ástæðan? Táknmálskennsla í grunnskólum Aö loknu jólaleyfi þingmanna beindi Sigríður Dúna fyrirspurn til menntamálarh. um það hvort hann/hún hyggðist beita sér fyrir því að tekin verði upp kennsla í táknmáli í grunnskólum landsins. Sigríður Dúna benti á að hér á landi telst það sjálfsagt réttindamál og á að vera tryggt í stjórnarskrá lýðveldisins að allir hafi rétt á að tjá hugsanir sínar, hafi málf relsi eins og það heitir, en nokkur hópur manna hefur litla möguleika til að nýta sér þessi réttindi vegna líkamlegrar fötlunar sinnar. Hún sagðist telja það sjálfsagt réttlætismál að koma til móts við þá einstaklinga sem í hlut eiga og tryggja þeim rétt og frelsi til að tjá hugsanir sínar jafnt og öðrum lands- mönnum. Almenn kennsla í táknmáli væri greið leiö til að leiðrétta þetta misrétti og rjúfa einangrun þeirra sem mállausir eru, auk þess almenna menntunargildis sem felst í slíkri kennslu. Af orðum ráðherra mátti ráða að ýmislegt er í vegin- um fyrir táknmálskennslu í grunnskólum landsins. Lífskjör hverra? Á liðnum vetri lögðu stjórnarflokkarnir fram 5 frum- vörp til staðfestingar á bráðabirgðalögum þeim sem sett voru í maí 1983. Öll voru þau meingölluð frá sjónar- hóli Kvennalistakvenna og lögðu þær fram margar breytingatillögur þar aö lútandi. Eitt þessara frv. bar yf- irskriftina „fjármálaráðstafanir til verndar lífskjör- 24

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.