Vera - 01.09.1984, Side 25

Vera - 01.09.1984, Side 25
um”, frv. sem er aö ýmsu leyti undarlega úr garöi gert. Sú spurning vaknar hverra lífskjör eigi í raun að vernda. Sem dæmi má nefna að frumvarpið kveður á um aukinn persónuafslátt frá skatti á þann veg að þeim sem lægst- ar tekjurnar hafa og því mesta þörf á verndun lifskjara kemur þessi afsláttur ekki til góða. Guðrún Agnarsdóttir benti á, í ræðu um þettafrv., að síðan ríkisstjórnin greip til efnahagsráðstafana sinna hafi tíminn leitt í Ijós að einmitt þeirsem þyngst framfæri hafaeru nú verst settir og að allar skerðingar hafa bitnað mest á þeim. í frv. er kveðið á um sérstakar barnabætur fyrir börn yngri en 7 ára. Sigríður Dúna gerði athugasemdir við þetta aldursákvæði og eins þá furðu að barnabætur skuli lækka eftir því sem börnin verða fleiri, því eftir því sem börnin verða fleiri því þyngra verður framfærið og því meiri þörfin á aðstoð. Hún taldi sýndarmennsku þá sem einkennir þetta frumvarp koma einna best í Ijós Þegar litið væri á hækkun mæðralaunanna, hækkun sem skiptir sama og engu máli fyrir þá sem í hlut eiga. Talað væri um 100% hækkun mæðralauna, en sú hækkun nemur innan við 300 kr. og síðan tæpum 100 kr. í viöbót fyrir hvert barn sem foreldri á umfram fyrsta barn. Sigríður Dúna sagði að það sem að þessu frum- varpi væri þegará heildinaværi litið, væri að það missti marks. Það næði ekki til þeirrasem raunverulega þyrfti að aðstoða. Húsnæðismál í stefnuskrá Kvennalistans segir um húsnæðismál: Við viljum breyta stefnu í húsnæðismálum. Við viljum stórauka byggingu leiguhúsnæðis annaðhvort á vegum hins opinbera eða á vegum félagasamtaka. Endur- skoða verður lánakjör þeirra sem eignast vilja húsnæði til eigin afnota. Við viljum að fólk geti I reynd valið um Það hvort það býr í leiguhúsnæði, byggir sjálft eðafestir kaup á öðru húsnæði. Á liðnum vetri fluttu Bandalag jafnaðarmanna, Al- þýðuflokkurinn og Kvennalistinn þál.till., um húsnæðis- samvinnufélög. Helsta ástæöan fyrir flutningi þessarar tillögu var, eins og segir í greinargerð með tillögunni, að bfremdarástand ríkir í húsnæðismálum þjóöarinnar og brýn þörf er nýrra úrræða. Sem stendur bjóðast aðeins tveir kostir, annars vegar leigumarkaður og hins vegar séreignarform. Leigumarkaðurinn er þröngur og öryggi leigjenda lítið, en séreignarformið krefst meiri fjárfest- inga en flestir ráða viö. Húsnæðissamvinnufélög hafa marga augljósa kosti og hafa það markmið að gefa fólki kost á góðu og öruggu húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Þetta íbúð- arform er í dag einna algengast á Norðurlöndum, í Þýskalandi og á Niðurlöndum, en auk þess eru starf- andi húsnæðissamvinnufélög mjög víða um heim. Tillagan fékkst ekki afgreidd. Lífeyrisréttindi húsmæðra Á liðnum vetri voru flutt þrjú mál á þingi sem miða að því að bæta lífeyrisstöðu heimavinnandi. Hér er um að ræða breytingar á lögum um lífeyrissjóð bænda, sem er stjórnarfrv., mál Jóhönnu Sigurðardóttur um gagn- kvæman makalífeyri og loks þál.till. Páls Péturssonar. í till. Páls Péturssonar er gert ráð fyrir að heimavinn- andi húsmæður greiði sjálfar iðgjöld til sjóðsins, en að mati Kvennalistans nær það ekki nokkurri einustu átt, þar eð sá útivinnandi, sem í flestum tilfellum er eigin- maðurinn, er þá kominn í sömu stöðu og atvinnurek- andi sem greiðir launatengd gjöld, í þessu tilfelli lífeyris- sjóðsiðgjöld annars ólaunaðs starfsmanns. Auk þess, benti Sigríður Dúna á, er með öllu óverjandi að ætlast til þess að launalaust fólk greiði launatengd gjöld. Tillaga Alþýðuflokksins felur í sér að sjálfstæð aðild beggja hjóna eða sambúöaraðila til lífeyrisréttinda er tryggð á þann veg að áunnin stig þeirra verði lögð sam- an og skipt á sérreikninga þeirra fyrir þann tíma sem sambúð varir. Gallinn er hins vegar sá við þessa tillögu að hún miðast að öllu leyti við vinnu úti á vinnumarkaðin- um og metur því í raun ekki til fjár þau störf sem unnin eru inn á heimilunum. Frv. um breytingar á lífeyrissjóði bænda tryggir sjálfstæða makaaðild að lífeyrissjóðs- réttindum á sama hátt og gert er í tillögum Alþýðuflokks- ins, en á báðum stöðum er heimavinnan ekki metin til fjár, heldur réttindunum aðeins dreift. Sigríöur Dúna benti á að hægt væri að gera tillögur þessar aðgengilegri með því að kveða svo á að þegar og ef heimavinnandi fara út á vinnumarkaðinn eftir ein- hvern ákveðinn árafjölda við heimilisstörf, þá sé heima- vinnutíminn metinn sem starfsreynsla og heimavinn- andi gefinn kostur á að kaupa sér, á sérstökum vildar- kjörum, lífeyrisréttindi í samræmi við það. ,,Er nokkurt réttlæti í því að þær sem eingöngu eru heimavinnandi njóti ákveðinna réttinda fram yfir þær sem eru bæöi útivinnandi og heimavinnandi og vinna oft á tíðum tvöfaldan vinnudag? Varla getur það talist réttlátt. Því er það meginmál að finna út hvernig hægt er að meta til réttinda heimavinnu útivinnandi kvenna. Slík lausn erekki hrist fram úr erminni í einu vetfangi.” Flugstöð og Seðlabanki Málefni Seölabankans voru talsvert til umraeöu á liðnum vetri og mátti heyra óánægjuraddir, ekki sist vegna byggingar þeirrar sem hýsa á peninga sem ekki eru til. Kvennalistakon- ur telja byggingu Seöla- bankahallar með öllu óafsakanlega framkvæmd, eins og nú háttar í efnahags- málum þjóðarinnar, og lögðu til strax á haustdögum aö sú framkvæmd yrði stöðvuð. Sama gildir um byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavikurflugvelli, að mati Kvennalistans er langt frá þvi að vera meðal forgangs- verkefna. 25

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.