Vera - 01.09.1984, Blaðsíða 26

Vera - 01.09.1984, Blaðsíða 26
Af þeim málum sem hér á undan eru talin, fékk aö- eins eitt afgreiðslu. Það snertir húsfreyjur í sveitum, sem nú hafa öðlast rétt til lífeyris úr lífeyrissjóði bænda. „Allt er mælt á eina vog. . .” Þó ríkissjóður sé svo tómur að í honum megi spegla sig að sögn fjármálaráðherra, fannst stjórn- arflokkunum sjálfsagt að þaðan (af almannafé) væru teknar litlar 500.000 kr. til kynningar á efna- hagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar. Kynningin fólst í ferðalögum og útgáfu slagorðabæklings og hlutu stjórnarflokkarnir harða gagnrýni fyrir þetta fram- ferði. í ræðu um málið kvaðst Kristín Halldórsdóttir ekki sjá nokkra ástæðu til að ríkissjóður greiddi þennan slagorðabækling, sem hvorki væri upplýs- andi né málefnalegur og engin tilraun þar gerð til að útskýra né rökstyðja aðgerðirnar. Fór hún svo með eftirfarandi vísu fyrir þingheim, sem henni kom í hug, þegar hún las umræddan ritling: Allt er mælt á eina vog í því svarta skýi. Helmingurinn öfgar og afgangurinn lygi. (Jón Þorsteinsson) Fjárlög 1984 Mörgum var illilega brugðið á liðnum vetri þegar lögð var fram áætlunin um sameiginlegan heimilisrekstur okkar allra, þ.e. fjárlög fyrir árið 1984. Þar kom í Ijós að þeim málaflokkum sem Kvennalistinn vill sérstaklega standa vörð um er lítill sómi sýndur af þeim sem ráða ferðinni í ríkisbúskapnum. Við blasti grimmdarlegur niðurskurður á flestum sviðum, atlaga að velferð, jafn- ræði, öryggi, menntun, heilbrigðisþjónustu og félags- legri þjónustu og engar raunverulegar tilraunir til upp- byggingar atvinnulífinu voru þar sjáanlegar. Kristín Halldórsdóttir flutti ítarlegar ræður um fjárlög- in, þar sem hún gagnrýndi forgangsrööun stjórnarinnar og benti á aðrar leiðir til sparnaðar og úrbóta. Hún sagði m.a. um samdrátt í heilbrigðismálum ,,300 milljón kr. sparnaður á þessu sviði er að mínum dómi óhugsandi. Þá upphæð hefði hins vegar mátt spara með því t.d. að fella niður uppbætur á útfluttar landbún- aðarafuröir, en til þess liðar eru ætlaðar 280 millj. á næsta ári”. „Óhjákvæmilegar” hækkanir Flestir hafa eflaust furðað sig á verðhækkunum á vöru og þjónustu á sama tíma og laun í landinu svo til standa í stað, en nauðsynjavörur hafa hækkað um allt að 90%. I frv. til laga um verðlagsmál, sem tengist bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar, er notað mjög vafasamt og ónákvæmt orðalag, en þar segir að aðeins skuli leyfa „óhjákvæmilegar” hækkanir. Því miður láð- ist að láta fylgja með lögunum skilgreiningu á hvað flokkast undir „óhjákvæmilegar” hækkanir og hvað það orð yfirleitt felur í sér. Sigríður Dúna gagnrýndi að menn skyldu leyfa sér ónákvæmni sem þessa í jafn mikilvægu máli sem snertir búreikninga hvers einasta heimilis í landinu. Hún sagði ennfremur að að sínu mati hefðu ákvæði laganna þurft að vera miklu strangari og ákveðnari í þá átt að koma í veg fyrir verðhækkanir. Kvennalistakonur hafa ítrekað gagnrýnt á þingi hversu mikið sjálfsforræði peningastofnanirnar í landi þessu hafa, bæði til að afla fjár og eins til að ráðstafa hagnaði að eigin geðþótta. Bankar selja þjónustu sína æ dýrar, á þeirri forsendu auðvitað að það sé „óhjá- kvæmilegt”. En hvernig stendur þá á því að á sama tíma og bankar hækka þjónustugjöld sín, skuli liggja hjá Seðlabankanum 31 umsókn um leyfi til að reisa ný bankaútibú? 't> Af þessu tilefni beindi Guðrún Agnarsdóttir fyrirspurn til viðskiptaráðherra um hvernig verðlagseftirliti með þjónustugjöldum bankanna væri háttað og hvort fyrir- hugaðar væru breytingar þar á. í svari ráðherra kom fram að hann teldi umræddar hækkanir ofur eðlilegar og óhjákvæmilegar. Engra breytinga væri að vænta í þeim efnum. Nú á síðustu vikum hefur hins vegar orðið breyting á, þar sem auk hækkaðra þjónustugjalda hefur bönkunum verið látin í té frjáls vaxtaálagning. Sjálfsforræði peningastofnana 26

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.