Vera - 01.10.1998, Blaðsíða 13
£MÆLKi
*
ferð, framlag einstaklingsins skiptir engu máli. Ég hef aldrei fundið
fyrir því að stjórnendur stofnunarinnar hafi metið mín störf. Það er allt
öðru vísi að vinna á minni stofnun, t.d. Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. I
sumar vann ég í fjármálafyrirtæki með 20 starfsmönnum og fann mik-
inn mun á því hvað hver einstaklingur er þar meira metinn.“
Þegar Þórgunnur hugsar um framtíðarstarfið sér hún helst fyrir sér
að hún eigi eftir að vinna með fólki, í ekki mjög stóru fyrirtæki þar sem
vinna bæði karlar og konur, að sjálfsögðu í dagvinnu og þar sem frí-
dagar eru í takt við aðra í þjóðfélaginu.
„Ég gæti hugsað mér að vinna í starfsmannahaldi eða einhverju
slíku, fremur en við hreina fjármálastarfsemi," segir hún en bætir við
að þó muni hún vilja það frekar en að fara aftur til vinnu á Ríkisspít-
ölum.
„Viðvarandi óánægja með launakjör er óskaplega slítandi," segir
hún. „Við hjúkrunarfræðingar sjáum hvernig öðrum stéttum er umb-
unað. Bróðir minn fór t.d. sem nýútskrifaður viðskiptafræðingur að
\ vinna hjá Skattrannsóknastjóra og fékk strax fasta yfirvinnu sem
munaði verulega um. Við ræddum af hverju ég fengi þetta ekki líka en
honum fannst alveg eðlilegt að það væri ekki hægt þar sem við vær-
um svo margar. Hjúkrunarstéttin er að sönnu fjölmenn en það er ó-
þolandi að bág staða hennar skuli alltaf réttlætt með þeirri staðreynd.
I nýja launakerfinu er möguleiki fyrir hverja og eina að semja um laun
sín en ég hef ákveðnar efasemdir um það fyrirkomulag. Þá talar fólk
ekki um launin við vinnufélaga sína. Það er þekkt leið til að halda
launum niðri að gera þau að leyndarmáli. Fólk verður feimið við að
viðurkenna að það hafi lægri laun en næsti maður, það býður ýmsum
hættum heim,“ segir Þórgunnur. ■
Áfram amma!
Fyrir skömmu var gerö könnun á því í Þýskalandi hversu hátt hlut-
fall kvenna ækju um á mótorhjólum miöaö viö karlpeninginn þar f
landi. í Ijós kom aö um 10% þeirra sem aka um á mótorhjóli eru
konur... nema í aldurshópnum 80 ára og eldri...þar er hlutur
kvenna 20%!
Ný bók eftir Gordimer
Suöur-afríska skáldkonan og Nóbelsverðlaunahafinn Nadine Gor-
dimer er hálfáttræö en lætur ekki deigan síga. Hún er enn á fullu
viö skriftir og nýlega kom út skáldsaga eftir hana, The House
Gun. Gordimer barðist gegn aöskilnaðarstefnunni í Suöur-Afríku
og var þar um kyrrt þegar myrkur kynþáttakúgunarinnar var svart-
ast. Hún býr enn í landinu og í nýlegu viötali viö bandaríska viku-
ritiö Newsweek vísar hún á bug öllu bölsýnistali um framtíö þess.
Gordimer viðurkennir aö margt sé í ólagi en kennir fremur reynslu-
leysi hinna nýju valdhafa og menntunarskorti blökkumanna um
þaö en spillingu og óráösíu. Hún kveöst litla samúö hafa meö
Búum sem kvarti nú og kveini yfir því aö menningu þeirra sé ógn-
aö, fólkinu sem var burðarás aöskilnaöarstefnu og kynþáttakúgun-
ar. Gordimer segir framkomu þess auðvirðilega enda hyggist eng-
inn ganga milli bols og höfuös á því eöa mennningu þess.
*
Gott verd,
falleg hönnun
og sérviska Eyjólfs
Skeifunni 6 simi: 568 7733 www.epal.is
22 ný
gluggatjöld
frá Kvadrat.
Fjöldi lita!
Með þvífallegasta
sem Egjólfur hefur séð
og kallar hann ekki
allt ömmu sína í þeim
efnum!
13