Vera - 01.10.1998, Page 30
Þórný Þórðardóttir lítur á starf sitt í lögreglunni sem framtíðarstarf.
Suðurveri
Helst að fólk
verði hissa
þegar tvær konur
mæta
á vettvang
-segir Þórný Þórðardóttir
lögreglunemi
Þórný Þórðardóttir hefur þegar lokið
fyrri hluta Lögregluskólans og er nú að
sinna verklega þætti námsins. Eftir
áramót lýkur hún seinni hluta skólans.
Þórný kynnti sér lögregiustarfið með
því að fara í afleysingar tvö sumur
áður en hún ákvað að sækja um skól-
ann og leggja lögreglustörf fyrir sig í
framtíðinni. Hún gengur vaktir í al-
mennu deild lögreglunnar. Henni
finnst karlkyns samstarfsfélagar taka
sér sem jafningja í starfi.
„Ég hafði ekki einu sinni hugleitt það fyrirfram hvort þeir tækju
mér eða ekki. Mér finnst ekki skipta máli hvort kona eða karl sé í
starfinu. Ég sótti ekki um þetta starf af því ég er kona,“ segir hún.
í dag þykir ekkert tiltökumál að kona sinni lögreglustarfi og er al-
menningur orðinn vanur því. „Það er helst að fólk reki upp stór
augu þegar tvær konur koma saman á vettvang," segir hún og
hlær.
Aðspurð segist hún aldrei hafa orðið vör við að fólk snúi sér
frekar að karlkyns lögreglumanni á vettvangi og sniðgangi kven-
kyns lögreglumanninn. Innan lögreglunnar eru sömu laun fyrir
sömu vinnu. Hins vegar hafa karlar almennt hærri laun en konur
vegna meiri eftirvinnu og vaktavinnu. „Ég geng vaktir eins og aðr-
ir almennir lögreglumenn og það hífir launin upp, enda eru grunn-
laun lögreglumanna lág.“
Þórný er 25 ára gömul, ógift og barnlaus. Hvað ef hjónaband
og barneignir koma til?
„Ég geri ráð fyrir að ég sæki um dagvinnu eða hlutavinnu ef ég
þarf. Mér skilst að slíkt sé auðveldara i dag en áður var. Eins og
staðan er í dag er þetta mitt framtíðarstarf. Ég myndi líklega frek-
ar hliðra til í vinnu en að hætta vegna barneigna," segir hún.
Þórný segist ekki hafa fylgst með jafnréttisbaráttu innan lög-
reglunnar. „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en ég eigi jafna
möguleika á stöðuhækkun og karl. Við val i stöðu hlýtur að vera
litið til starfsaldurs og hæfni í starfi," segir Þórný Þórðardóttir. ■