Vera


Vera - 01.10.1998, Qupperneq 34

Vera - 01.10.1998, Qupperneq 34
Af alls tuttugu ráðherrum í ríkisstjórnum Ungverjalands, Tékk- lands og Póllands féll eitt ráðherraaembætti í hlut konu í öllum þremur löndunum í fyrstu lýðræðislegu kosningunum leiðis voru skipaðar háttsettum framámönn- um einræðisflokkanna. En í þessum valda- miklu stofnunum áttu konur ekki sæti nema í undantekningartilfellum. Svokölluð Kvennaráð þjóðarinnar voru einu samtök kvenna í þessum löndum. Ein kona úr stjórn samtakanna átti sæti í miðstjórn kommúnistaflokksins en hafði ekki atkvæð- isrétt. Starf þessara samtaka einskorðaðist við táknræna landkynningu og við að gefa út kvennatímarit sem voru fjármönguð og rit- skoðuð af einræðisflokki landanna. Á þann hátt störfuðu þær eins og litlu systur karl- anna í flokknum. Femínismi fellur í grýttan jarðveg Kynjaskiptur vinnumarkaður, veikt þegna- samfélag og ríkiskerfi sem á glæpsamlegan hátt bannaði hvers kyns gagnrýni á stjórnar- hætti sína urðu til þess að konum gafst litið svigrúm til að ræða sameiginlega reynslu og hagsmunamál, eða til að mynda pólitískan vettvang um baráttumál sín. í skjóli hug- myndafræðilegs yfirburðar var öll óháð starf- semi kæfð af alræðisstjórnunum. Fyrstu árin eftir fall kommúnísku stjórnkerfanna reyndist erfitt að virkja konur til hvers kyns réttinda- baráttu. Mikiil meirihluti kvenna hafnaði til að mynda kvótakerfi sem tæki til að tryggja þátttöku þeirra á þingi og bar lítið traust til kvennasamtaka því hvort tveggja hafði verið misnotað af fyrrum valdhöfum. Þar að auki er áberandi hve andúð al- mennings og stjórnmálamanna á femínisma og hvers kyns kvennabaráttu er mikil og jafnvel heiftarleg. Því miður eru konur al- mennt sammála almenningsálitinu um að þær hafi notið of mikilla réttinda á tímum sósíalimans. í Ungverjalandi leyfa vinsælir stjórnmálamenn sér að saka konur opinber- lega um háa tíðni skilnaða, fóstureyðinga, alkóhólisma, upplausn fjölskyldna og segja konur hafa vanrækt börn sín vegna vinnuá- lags á tímum sósíalismans. Lech Walesa sagði skömmu eftir að hann var kosinn for- seti Þóllands að jafnrétti kynjanna væri kjaftæði því þróun mannkynsins grundvall- aðist á kynjaskiptingu, aðeins þær þjóðir sem kappkosta að viðhalda henni myndu lifa af í frjálsu markaðshagkerfi. Vitundarvakningin sem átti sér stað á vest- urlöndum fyrir tilstilli kvenfrelsishreyfinga á sér enga hliðstæðu í löndum Austur-Evrópu. Aðeins þröngur hópur menntakvenna og kvenna úr vaxandi efri millistétt hafa með mikilli og áralangri vinnu myndað samtök um femíníska kvennabaráttu. Þá hafa verið stofnuð ýmis kvenfélagasamtök sem ein- beita sér að velferðarmálum kvenna en segj- ast ekki berjast fyrir jafnrétti kynjanna. Á ferð minni um Þólland, Tékkland og Ungverja- land tók ég viðtöl við konur úr ólíkum sam- tökum. Þó að þær geri sér grein fyrir sér- stæðum vandamálum kvenna telja þær enga þörf á hreyfingum sem krefjast aukinna kvenréttinda eða jafnréttis kynjanna. Flestar þeirra segjast ekki vilja koma af stað menn- ingarlegum deilum um kynjaskiptingu. Það væri slæmt fyrir sjálfsvirðingu kvenna að túlka þær sem þjóðfélagslegan minnihluta- hóp. 34

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.