Vera


Vera - 01.10.1998, Side 39

Vera - 01.10.1998, Side 39
Landsbyggöarhúsmóðir giftist alhæfingu, og flýr „Hversvegna er ég að segja frá þessu? Það er náttúrulega af því að ég fór vest- ur og var þar... það er að segja, ég byrj- aði eiginlega að skrifa þetta af einhverju viti af því að mér leiddist heima hjá mér. Ég gifti mig og var skyndilega orðin landsbyggðarhúsmóðir sem þurfti að drepa tímann á milli þess sem ég vann og fór í kaupfélagið. Maður þakkar raunverulega fyrir það núna að hafa alltaf haft skriftirnar að halla sér að - það auðveldar ýmislegt í óreiðu lífsins. Mér er sama hvar ég vinn, bara að ég hafi lágmarkstekjur og geti skrifað. Ann- ars langar mig að læra meira, dúklagn- ingar, spænsku eða eitthvað. En að lesa er náttúrulega besti skólinn fyrir rithöf- und.“ Ég er náttúrulega algjör alæta...... „Stíll er eitthvað sem þróast og kemur hægt og bítandi gegnum skrif manns. Það glittir í hann í þessari bók. Maður er dálítið óöruggur I fyrstu bók með að ganga eins langt og mann langar, þessvegna eru vafalaust einhverjir hnökrar á. En í sambandi við stíl þá hefur þar náttúrulega áhrif allt sem maður hefur lesið. Fay Weldon hefur til dæmis ofsalega hnitmiðaðan stíl, svo- lítill leikur með orðin. Isabella Allende hefur aftur á móti annarskonar heillandi frásagnarstíl, þennan suður-ameríska. Ég hrífst mjög mikið af þeim báðum, þær voru mínar hetjur lengi vel. Weldon er femínískur höfundur, kvennabarátta er undirliggjandi og húmorinn mjög beittur. Þær hafa báðar mjög sterkan boðskap fram að færa og eru svona dálítið að fletta ofan af sann- leikanum og skilgreina hann um leið og þær leyfa ofboðslegri fantasíu að ráða ríkjum. þetta eru svona allskon- ar krydd í potti...... Þegar ég var yngri las ég líka mikið af húmorískri, bandarískri ádeilu, eins og Kurt Vonnegut og svona breyskara dót eins Bukowski. Annars hef ég líka mjög gaman af rússneska dramanu öllu saman, og rauðu ástarseríunum á elliheimilinu á Flateyri! Hin fullkomna blanda er náttúrulega húmor og drama, en þegar ég tek upp bók og hún er grípandi og spennandi, þá er það besta bók sem ég hef lesið þegar ég er búin. Og svo næsta. og svo bara kraumar og sýöur.... Islenskar bókmenntir les ég mikið - þar eru náttúrulega margir rithöfundar sem hægt er að ræða um en það er best að tjá sig sem minnst um verk annarra í því sambandi og einbeita sér að sínum eigin. En í sambandi við karlabókmenntir versus kvennabók- menntir þá skín oftast í gegn hvers kyns höfundurinn er, það sést á svona litlum hlutum sem eru í ætt við reynslu- heima kynjanna." Þaö getur veriö mjög já- kvætt aö breyta um lífs- stíl „Bókin er skrifuð á nokkrum flækingi, Flateyri - Reykjavík - Svíþjóð - Mosfells- bær. Það er náttúrulega einn af kostum þess að skrifa, það að maður getur flækst dálítið. Ég er dálítill flækingur I mér, þó ég viti alveg að kjölfesta er nauðsynleg og ég leita hennar náttúru- lega líka. Mér líður til dæmis mjög vel útí sveit og get ekki verið í bænum lengi án þess að fara útí sveit. En eins er það með sveitina, þú veist að ég get ekki verið þar lengi án þess að fara í bæinn. Ég þarf báða pólana. Og skuldbinding- ar eru ekki á dagskrá í bráðinni. Kannski ég reyni að skapa aðstöðu fyr- ir hund, því að mig vantar ekki annan mann. Það er örugglega mjög einstak- lingsbundið hvað menn þurfa til að halda við frjórri hugsun. Ég er náttúru- lega bara voðalega eirðarlaus ennþá og vil frekar fæða bækur en börn. En lífið heldur áfram og hittir mig á horninu og ég tek því sem hittir mig þar.“ Trúir þú á Guð ? „Þegar ég er á bömmer." Hún sem sagt skildi við þennan Steina svo ef þú þekkir mann sem er hundur eða hund sem er maður, láttu hann vita af þessu axjónkvendi - hún er á horninu að hitta þú veist. ■ Úr þókinni Stjórnlaus LUKKa eftir Auði Jóns- dóttur Þetta var í byrjun júní, stuttu fyrir Sjómanna- daginn. Við komum ekki á áfangastað fyrr en undir kvöldið og fyrst í stað var hann óneit- anlega kuldalegur. Á víð og dreif breiddu snjóskaflar úr sér milli gulgrænna grasbletta. Slydda og regn börðu rúðurnar til skiptis og ískrið í rúðuþurrkunum hafði magnað kulda- hrollinn sem nagaði okkur mömmu eftir ferð- ina. Forvitnin náði samt tökum á mér því fyrir borgarbarn var vestfirskt umhverfið allt ann- að land. Fjöllin gnæfðu gráleit og hvít allt um kring og kölluðu á athyglina. Þvi næst beind- ist hún að úfnum sjónum og óhrjálegu þorp- inu sem samanstóð af kirkju, örfáum húsum og frystihúsi. Staðurinn var að mestu girtur sjó. Hann vísaði upp í eitt af þessum tröllslegu fjöllum sem virtust líkleg til að bryðja sex ára stelpu eins léttilega og pínulitla baun. Við bryggjuna lá óhrjálegur línubátur og menn í appelsínu- gulum göllum æptu hver að öðrum á meðan þeir gripu í stór ker sem sigu frá bátnum og niður til þeirra. Mörgum árum seinna fékk ég að reyna mig við löndun. En á þessari stundu virtist allt svo ofurgrátt og skrýtið að forvitnin vék fyrir heimþránni og ég hallaði mér skælandi upp að mömmu. Hún lokaði Kvennaklósett- inu og tók utan um mig, síður en svo kát á svipinn. í sama mund stoppaði rútan við kaupfélag- ið og þaðan sá ég undarlegan þjóðflokk á hlaupum, fólk með skringilega hvíta hatta á höfði, klætt stígvélum upp að hnjám og Ijós- bláum sloppum niður á læri: fiskvinnslufólk að skjótast í kaffi. Stuttu síðar kom Hvati á Landrovernum og keyrði okkur upp að bænum sínum sem var staðsettur uppi í fjaili. Þar beið okkar lambalæri með kekkjóttri sósu og kartöflum. Ég skóflaði matnum í mig á meðan mamma potaði kurteislega í hann og brosti ósann- færandi. Eftir þunga máltíðina fór ég upp í nýja herbergið mitt þar sem einu innanstokks- munirnir voru hermannabeddi, ónýt sauma- vél og eldhúskollur. Við þessa sýn langaði mig samstundis til að skæla meira. En þar sem koddinn var mjúkur og sængin hlý leið ekki á löngu þar til ég brosti værðar- lega og sofnaði. 39

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.