Vera - 01.06.1999, Síða 3
A
L b i ö a r i
Stríö mismununar og ranglætis
„Mér hefur að undanförnu dottið í hug að fljúga til fyrrum Júgóslavíu, fara í röðina,
reyna að komast til íslands og fá íbúð og skjól í allri velmeguninni - klapp á sálina og
koss á hjartað. Með fullri virðingu fyrir raunum þessa fólks og skilningi á hroka okk-
ar íslendinga, segi ég: Bróðir, líttu þér nær. Það geysar líka stríð á íslandi. Stríð mis-
mununar og ranglætis þar sem landsauðurinn fer þara í hendur fárra manna og þeim
er sama um þá sem minnst mega sín. Ég get bara ekki stillt mig því ég veit að á ís-
landi ríkir fátækt og vesöld sem stjórnvöld kæra sig ekkert um að vita af.“
Þetta segir Guðmunda J. Pétursdóttir í viðtali hér í blaðinu og orð hennar ættu að
vera okkur öllum umhugsunarefni. Guðmunda er sterk kona sem brotnar ekki þrátt
fyrir erfiðleikana og hefur orku til að segja það sem svo margir hugsa en geta ekki
sagt því þeim líður of illa til þess. Guðmunda á fimm börn og lýsir í viðtalinu hvernig
fjölskylda hennar leystist upp m.a. vegna efnahagslegra þrenginga. Saga hennar er
saga þúsunda íslendinga sem standa slyþpir og snauðir og skuldugir eftir margra
ára basl við það eitt að eignast húsnæði og fæða fjölskylduna.
Hver kannast ekki við viðtöl við starfskonur Mæðrastyrksnefndar og annarra hjálpar-
stofnana og myndir af vellríkum forstjórum að afhenda þeim gjafir til að gefa fátæk-
um fjölskyldum fyrir jólin? Slíkar fréttir þykja jafn sjálfsagðar í desember og jólakveðj-
urnar í útvarþinu. En hvernig skyldi konunum sem DV birti forsíðumynd af - með hett-
ur til að skýla sér fyrir Ijósmyndurunum, standandi í biðröð á tröppunum hjá Mæðra-
styrksnefnd - líða í júlí? Hvert skyldu þær fara í sumarfrí?
Aðstoð íslendinga við flóttafólkið frá Kosovo er til fyrirmyndar en það er aðstoð við
íslenskar fjölskyldur hins vegar ekki. Það er því ósköþ eðlileg tilfinning sem Guð-
munda lýsir hér að ofan. Fjöldi fólks hér á landi getur ekki búið börnum sínum ör-
uggt heimili né eðlilega framfærslu þótt það vinni fullan vinnudag. Kaupið er bara í
engu samræmi við framfærslukostnaðinn. í viðtalinu bendir Guðmunda einnig á hvað
framkoma starfsfólks stofnana skiptir miklu máli. Hún hefur i því efni samanburð við
Danmörku og í þeim samanburði standa íslendingar illa. í Danmörku er litið svo á að
fólk eigi rétt á fyrirgreiðslu þegar þannig stendur á í lífi þess og er tryggð örugg bú-
seta og framfærsla. Hér á landi uþþlifir hins vegar margt fólk niðurlægingu ef það þarf
að sækja þá aðstoð sem velferðarkerfið á að tryggja því. Nema kannski í desember.
Hverjir hafa lagt sitt
á vogarskálar jafnréttis?
Hverjir hafa unnið jafnréttis-
baráttunni gagn og hverjir ógagn?
Sendu VERU ábendingar.
plús
Maríusetur
Konur sem leyfa sér að fá hugmyndir og framkvæma þær!
Konur hafa skorað á stjórnvöld að standa skil á gamalli
skuld við íslenskar konur og veita fé til stofnunar Maríuset-
urs á Kirkjubæjarklaustri í staðinn fyrir klaustur og klaustra-
eignir sem voru ólöglega af konum teknar með þeim afleið-
ingum að útilokun kvenna frá opinberu lífi varð algjör á síð-
ari öldum.
22 konur á Alþingi
sem hlutu kosningu í vor. Þessi fjöldi þýðir að nú eru konur
35% alþingismanna, en það er 10% aukning miðað við
kosningaúrslit 1995. Af þingflokkum er hlutfall kynjanna
best hjá Samfylkingunni, eða 53%, þar sem eru níu konur
og átta karlar.
Þrjár konur í ríkisstjórninni
I fyrsta skipti í sögu íslenska lýðveldisins sitja fleiri en ein
kona í ríkisstjórn landsins. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra og Sólveig Pétursdóttir dóms- og kirkjumálaráðherra
eiga heiðurinn af því að brjóta múrinn og koma til liðs við
Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
mínus
Launamunur kynjanna
í nýlegri launakönnun Kjararannsóknanefndar staðfestist
enn og aftur það óréttlæti sem felst í launamun á milli kynj-
anna. Könnunin leiddi í Ijós að 46.710 kr. munur er á föst-
um mánaðarlaunum á milli kynja í þjónustu- og sölustörfum,
55.203 kr. hjá tæknum og sérmenntuðu starfsfólki og
64.606 kr. hjá sérfræðingum.
Flugleiðir
Fyrir að setja reglur um það að flugfreyjur verði að vera í
pilsum við störf í sumar en megi ekki velja á milli flugfreyju-
búnings sem er annað hvort síðbuxur og jakki eða pils og
jakki.