Vera - 01.06.1999, Page 22
Irma Erlingsdáttir
í
Lífshlaup
Simone
de Beauvoir
Simone de Beauvoir var kona sem
fór til Pikardíu, Ameríku, Indlands, Al-
sír, Kína, Kúbu og tók í hönd Kastró.
Hún var bæði fyrirmynd og ímynd
samtímakvenna sinna og konur sjá
hana enn í hetjuljóma. Hún gerði
mörgum konum mögulegt að ímynda
sér framtíð þar sem þær gætu haft
sömu möguleika og hún; möguleika
sem hún var einhvers konar trygging
fyrir. Hún var dáð fyrir bækur sínar og
líferni enda var hún frumkvöðull bæði í
verkum sínum og lífi. Enn þann dag í
dag er hún sjálf, það sem hún var, ekki
síður mikilvæg í hugum fólks en það
sem hún skrifaði.
Simone de Beauvoir fæddist í París 9.
janúar 1908 og dó í apríl 1986, 78
ára að aldri. Sex ára var hún send í
kaþólskan skóla en af trúnni gekk hún 14
ára. Móðir hennar var trúrækin og inrætti
henni skyldurækni og vinnusemi. Faðir
hennar var hins vegar efasemdamaður.
Hann ku hafa verið mjög fær lögfræðingur
og af honum á hún að hafa lært að njóta
lesturs góðra bóka. Æska Simone, eftir því
sem hún segir í endurminningum sínum,
einkenndist af miklum leiðindum. Hún
kveðst hafa hatað æsku sína, hún hafi verið
fyrirlitleg. Lesandinn á þó í erfiðleikum með
að taka hana á orðinu. Fjölskylda hennar var
að vísu hefðbundin og smáborgaraleg. En
faðir hennar fór með hana í leikhús, fylgdist
með árangri hennar í námi og hafði metnað
fyrir hennar hönd. Hann var áhugamaður
um bókmenntir og þrátt fyrir að yfir ákveðn-
um bókum hafi hvílt bannhelgi voru þær
þarna á hillunum, ómótstæðileg freisting.
Trúleysi föður hennar sýndi Simone fram á
að aðrar leiðir voru mögulegar en þær sem
móðir hennar hélt að henni. Hún lærði líka
22