Vera - 01.06.1999, Side 28

Vera - 01.06.1999, Side 28
Sigríður og vinkona hennar, Áslaug Þorsteinsdóttir frá Skálpastöðum í Lundareykjadal. Hjálpsemi og áhugi á kjörum annarra er í ættinni Steinunn Eyjólfsdóttir ræðir við Sigríði Hjartardóttur á Akranesi í mínum huga er hún alitaf bara Sigga í þvottahúsinu. Við búum báðar við Lambhúsasundið á Akranesi og sjáum heim til hvor annarrar. Ég hef oft setið í vist- legu eldhúsinu hennar Sigríðar og drukkið kaffi með fötluðu stelpunum hennar, stelpum sem eiga hana að vini og verndara. Því Sigríður er mikill verndari að eðiisfari. En það á víst alltaf að byrja á því að hyggja að uppruna fólks, svo ég spyr þessa grannkonu mína hvaðan hún sé upprunnin. „Ég er sveitastelpa," segir Sigríður bros- andi. „Foreldrar mínir, Sigríður Einarsdóttir og Hjörtur L. Hannesson, bjuggu á Stóru- Þúfu í Miklaholtshreppi þangað til ég var fimmtán ára að við fluttum hingað á Akra- nes. Já, fyrst þú spyrð, hjálpsemi og áhugi á kjörum annarra mun hafa legið í ættinni. Móðuramma mín, sem ég heiti eftir, var stundum fengin til að annast geðsjúkt fólk, hún þótti ná svo góðum tökum á því. Ég minnist þess líka að foreldrar mínir voru einu sinni beðin að lána elstu systur mína á bæ einn í sveitinni þar sem húsmóðirin lá rúm- föst, hún var krabbameinssjúklingur. Mamma taldi ungling ekki ráða við þetta verkefni, flutti sjálf til veiku konunnar og annaðist hana og heimilið þar til konan komst á fætur. En það var eitt og sér talið kraftaverk sem enginn bjóst við. Hún lifði mörg ár eftir þetta. Heima urðum við að bjarga okkur þennan tíma sem mamma var í burtu, elsta systir mín reyndi að koma í hennar stað.“ Og svo komstu til Akraness. „Já, svo fluttum við á Skagann. Þar átti ég mín æskuár. Ég varð einstæð móðir, eign- aðist dreng sem ég lét heita nafni föður míns. Reyndar er varla hægt að segja að ég hafi verið „einstæð" því foreldrar mínir studdu mig með ráðum og dáð. Þau voru svo raungott og indælt fólk..Svo gifti ég mig þegar ég var tuttugu og átta ára. Mér féll vel við tengdafólkið mitt, sumt af því er vinir mínir enn í dag. En ég varð fyrir von- brigðum með hjónabandið. Mér fannst ég ekki njóta mín í návist mannsins míns. Ég vonaði að þetta mundi lagast með tíman- um, en það gerði það bara ekki. Eftir tutt- ugu ára sambúð skildum við. Nú var ég ein með þrjú börn heima, tvö þau elstu voru farin að sjá um sig sjálf. Ég ákvað að láta reyna á hvað ég gæti, keypti mér gamlar vélar og opnaði þvottahús. Ég fékk strax nóg viðskipti enda var þetta eina þvottahús bæjarins. Um svipað leyti keypti ég húsið hér í Bakkatúninu, gamalt hús, stórt og skemmtilegt sem gaman var að hlynna að. Sjálfstraust mitt jókst og börnin uxu upp.“ 28

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.