Vera - 01.06.1999, Side 33
við unnum kosningarnar 1994.'
Fó L K E R FLJÓTT A Ð GLEY M A , E N Á S T A N D I Ð
V A R Þ ANN I G ÞEGAR VIÐ TÓ KUM V I E A Ð G I F T -
I R F 0 REL DRAR GÁTU EKKI E I N U S I N N I S ÓTT
U M A Ð F Á H EI LSDAGSPLÁSS FYR I R BÖR N I N 0 G
B Ö R N Þ E I RRA K0MUST 0FT EKKI Á L E I K S K ÓLA
F Y R R E N ÞAU V0RU 0RÐIN 4 T I L 5 Á R A / 0 G
ÞÁ í HÁL FSDAGSPLÁSS.
borgarstjórnar 1994 tók hún þátt í því af full-
um krafti. Fyrir síðustu kosningar tók hún
þátt í prófkjöri Reykjavíkurlistans, náði 2.
sæti Kvennalistans og 11. sæti listans og
hefur setið nær alla borgarstjórnarfundi sl. ár.
„Reykjavíkurlistinn var skemmtilegt ævin-
týri og mikilvægt tækifæri fyrir okkur kvenna-
listakonur sem höfðum alltaf verið í minni-
hluta. Þarna.fengum við í fyrsta skipti raun-
verulegt tækifæri til að hafa áhrif. Ég var
varaformaður Dagvistar barna 1994 til 1998
en kosningarnar 1994 snérust meira og
minna um það að koma lagi á leikskólamálin
í borginni. Fólk er fljótt að gleyma, en á-
standið var þannig þegar við tókum við að
giftir foreldrar gátu ekki einu sinni sótt um að
fá heilsdagspláss fyrir börnin og börn þeirra
komust oft ekki á leikskóla fyrr en þau voru
orðin 4 til 5 ára, og þá í hálfsdagspláss. Mér
finnst þetta vera stór þáttur í kvenfrelsisbar-
áttunni. Það er grundvallaratriði að konur
geti fengið góð og örugg pláss fyrir börnin
sín á meðan þær eru að sinna sínum störf-
um. Þá skiptir öllu að þær upplifi aðstæð-
urnar fyrir börnin þannig að þær geti gert
það sem þær þurfa að gera án þess að það
komi niður á börnunum. Ég held að stefna
okkar í þessu máli hafi vegið þungt í því að
í fyrstu var stefnt að því að fullnægja þörf
fyrir leikskólapláss barna frá 1 árs aldri, I lok
fyrsta kjörtímabilsins. Það hefur ekki tekist
enn þá, en þörfinni fyrir vistun frá 2 ára aldri
er að mestu fullnægt og viðvera hvers barns
hefur lengst. Ástæðuna segir Kristín vera að
könnun sem þau létu gera 1994 sýndi meiri
þörf fyrir hálfsdagspláss en síðar varð raun-
in. Flestir foreldrar óska eftir að fá heils-
dagspláss þegar til kemur, einnig hefur
betra atvinnuástand áhrif á að meiri þörf er
fyrir leikskóla. Kristín segist einnig verða sí-
fellt meira vör við það að foreldrum finnist
börn sín vera að missa af einhverju ef þau
komist ekki á leikskóla, því þar fari fram
þroskandi kennslustarf. Viðhorf gagnvart
leikskólavist sé þannig að gjörbreytast.
„Við erum enn að byggja nýja leikskóla en
þurftum að hægja aðeins á uppbygging-
unni, ekki síst vegna skorts á leikskólakenn-
urum,“ segir Kristín. „Það þarf að mennta
fleiri leikskólakennara, taka fleiri inn í skól-
ann og útskrifa fleiri. Nú er fjölda fólks vísað
frá námi í leikskólaskor Kennaraháskólans
því að nemendafjöldinn er takmarkaður.
Stjórn Dagvistar barna, nú Leikskólaráð,
Kvennarannsóknir' hjá
Rókmenntcifrœð istafnun Húskólci íslands
Dagný Kristjánsdóttir-.
Kona verður til
Um skáldsögitr Ragnheiðar Jónsdótturfyrirfullorðna
Um skáldsögurnar í ljósi nýjustu kenninga urn
bókmenntir, sálgreiningu og femínisma. ítarleg
úttekt á menningarumræðu eftir stríð.
Almennt verð kr. 3.500,-
Tilboðsverð kr 2. 800. "
Helga Kress (ritstj.)
stúlka
Ljóð eftir íslenskar konur
Vandað úrval Ijóða eftir fslenskar konur frá
því Stúlka eftir Júlíönu Jónsdóttur kom út
1876. Helga Kress valdi ljóðin og ritar
inngang um Ijóðagerð íslenskra kvenna.
Almennt verð kr. 3.950,-
Tilboðsverð kr 4. / 80.'-
Krivtfn Viðarvlúxtir
SrtMíWl Z
,0|tuiNNr*m*oi»torHUH m*»hoi* isi*ndi
N*S*ðl*UTG*r*N
Kristín Viðarsdóttir:
Stúlkur í innheímum
Um sagnaskáldskap Vigdísar Grímsdóttur
Fyrsta rannsóknin á skáldsögum Vigdísar og fjallar
meðal annars um það hvernig þráin eftir samruna og
löngunin til einangrunar takast á í persónum Vigdísar.
Almennt verð kr. 1.790.-
Tilboðsverð kr /. 400."
Sijjþrúdur Gunnarsdóttir
FjóíaJiolia
f<Jr \x I i heixn.
Ill-mvnd. >*4U-iltlmr mumrtr-Uih
I rkAujfuH Ouim f*ú MmUnmh
[NNTAFRCOISTOfNUN HAIKðl* ÍSIANOS
hAskoiautgafan
Sigþrúður Gunnarsdóttir
Fjósakona fór út í heim
Sjálfsmynd, skáldskapur og
raunveruleiki íferðasögum Önnufrá
Moldnúpi
Fjósakona fór út í heim er byggð á BA-ritgerð
höfunar um ferðasögur Önnu frá Moldnúpi. í
bókinni er rýnt í sögurnar með hugmyndir
fcrðalangsins um sjálfan sig í brennidepli.
Almennt verð kr. 1.790,-
Tilboðsverð kr / . 400. -
Bókmenntafræðistofnun Tíáskóla IsJands
Árnagarði við Suðurgötu, s. 525-4093, fax 525-4242
netfang gardarb@rhi.hi.is
vefslóð: h ttp ://www. rhi. hi. is/HL/S tofn/BHI/