Vera - 01.06.1999, Qupperneq 39
ur í sumar í garðinum í Laugardal.
Tókuð þið ákvörðun um að flytja eða finnst
ykkur eins og ykkur hafi verið þröngvað til að
flytja vegna aðstæðna?
Elín: „Við tókum ákvörðun um að flytja
vegna þess að yngsta dóttir okkar vildi suð-
ur í skóla. Sú elsta ætlaði í söngnám í
Reykjavík og því varð úr að við fluttum öll.
Þar sem við áttum ekki fasteign fyrir vestan
var fátt sem batt okkur. Einnig spilaði inn í
að Svenni seldi bátinn og keypti minni bát.
Hann hefur nú aðeins 23 daga til að fiska
það sem hann má yfir árið. Það fer ekki hjá
því að okkur hafi fundist við vera að svíkja
samfélagið á Súgandafirði með því að flytja
burt með svona stóra fjölskyldu. Á Suður-
eyri er þó nokkur kjarni fólks sem er fætt þar
og uppalið, þrátt fyrir að hin síðari ár hafi
aðfluttum, sérstaklega útlendingum, fjölgað
mjög ört á móti heimafólki."
Eru þessir fólksflutningar kannski óhjá-
kvæmilegir?
Berglind: „Ég er þeirrar skoðunar að þetta
sé ákveðin þjóðfélagsbreyting sem allir
verða að horfast í augu við. Menntaskólinn
á ísafirði er alveg ágætur en þegar ég byrj-
aði í MH átti ég kost á fleiri möguleikum í
námi. Þetta er aðeins lítið dæmi um þau
miklu tækifæri sem gefast þegar maður
kemur hingað suður. Við komumst ekki í bíó
á ísafirði á sumrin af því eina bíóið á staðn-
um fer í sumarfrí!"
Göngin breyttu öllu
Þú hefur sagt að þér hafi þótt erfitt að flytja
hingað aftur, þrátt fyrir að þú sért alin upp í
Reykjavík?
Elín: „Það var mjög erfitt að koma aftur til
Reykjavíkur. Þegar maður hefur búið svona
lengi í litlu samfélagi þar sem allir hafa eitt-
hvað hlutverk. Hver dagur er nánast eins,
og því veit maður að hverju maður gengur.
Það var eiginlega erfiðara en ég átti von á.
En það er öllum hollt að breyta til og þessir
búferlaflutningar hafa orðið okkur til góðs.“
Berglind: „Mamma hélt að það yrði svo
erfitt fyrir okkur stelpurnar. Maður á að gera
eitthvað þegar maður er ungur og því ekki
flytja milli landshluta eða landa?“
En hvað með jarðgöngin, breyttu þau ein-
hverju?
Elín: „Þau breyttu öllu fyrir okkur á smáu
stöðunum. Það var miklu auðveldara að
ferðast á milli fjarðanna, hitta fólk og sækja
þjónustu. Áður en göngin komu var Suður-
eyri algerlega einangruð yfir veturinn vegna
snjóa á heiðunum.'1
Berglind: „Okkur fannst þau ekki skipta
neinu máli til að byrja með því við vorum
það ungar að við höfðum allt sem við vildum
á Suðureyri. Þegar við fórum í menntaskól-
ann breyttu þau náttúrulega öllu. Þá gat
maður flakkað á milli fjarða á böll ef einhver
átti bíl. Ég sá í skólablaði hér hvernig reyk-
vískir krakkar líta á göngin. í blaðinu var ver-
ið að fjalla um það að vegfarendur þyrftu að
borga í Hvalfjarðargöngin en svo gæti fólk
flakkað ókeypis um göngin fyrir vestan. Eins
og það væri glæpur. Fólk veit ekkert um
hvað það er að tala enda hef ég rekið mig á
það að fæstir vita yfirhöfuð hvar Suðureyri
er. Núna segist ég bara vera frá ísafirði. Það
er ekki eins flókið fyrir krakkana sem ég hitti
hér.“
Hvernig var að alast upp á Suðureyri?
Berglind:„Það er mjög gott að alast upp á
Suðureyri vegna þess að allt plássið var
RafiðnaBarsamhancl islands
goetir hagsmuna rafiðnaðarmanna
um land aiit
Helstu verhefni Rafiðnuðursambunds íslands eru:
Gerð kjarasamninga og ttilkun þeirra, varsla starfsrélt-
ineia og vinnuvemd.
Að tryggja félagsmenn og fjölskyldur þeirra þegar áföll
dynjayfir.
Að annast frœðslu og titgáfustarfsemi.
Aðgefa félagsmönnum og fjölskyldum þeirra kost á góðri
aðstöðu til hvfídar í orloji.
Rafiðnaðarsambandið er starfsgreinasamband sem í eru 10 félög rafiðnaðar-
manna víðsvegar um landið og í þeim eru þeir sem starfa í rafiðnaði hvort
sem þeir hafa sveinspróf eða ekki; rafiðnfræðingar, rafvirkjar, rafveituvirkjar,
rafvélavirkjar, rafeindavirkjar, símsmiöir, símamenn, sýningarmenn, t’ölvu-
og kerfisumsjónarmenn, tæknifólk (rafiðnaði og rafiðnaðarnemar.
Rafiðnaðarskólinn - öfíug símenntun fyrir rafiðnaðarmenn
Samtök rafiðnaðarmanna eiga og reka Rafiðnaðarskólann, Viðskipta- og
tölvuskólann og Margmiðlunar- og fjarkennsluskólann. Þeir bjóða upp á
fjölbreytt námskeið, sem fjalla um fagtæknileg efni, auk námskeiða á sviði
rekstrar og stjórnunar. Einnig almenn og sértæk tölvunámskeið.
Orlofshús fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra
Rafiðnaðarsambandið á og rekur 41 orlofsaðstöðu á 15 stöðum á land-
inu. Heitir pottar eru við 15 þeirra og eru þau til leigu allt árið.
RAFIÐNAÐARSAMBAND
ÍSLANDS
Rafiðnaðarsamband íslands befurfélagslega aðstöðu
í Reykjavík, áAkureyri og á Selfossi.
Leitið nánari upplýsinga í sfma: 568 1433, bréfasíma: 553 9097,
heimasfðu: raf.is, netfangi: rsi@rsi.rl.is
39