Vera - 01.06.1999, Síða 40

Vera - 01.06.1999, Síða 40
leiksvæði okkar. En þegar við urðum eldri fannst okkur ýmislegt vanta sem er til stað- ar í Reykjavík." Elín: „Það var mjög gott að ala börn upp fyr- ir vestan og ég hefði ekki viljað skipta. Börn læra að vinna af því þau fara að vinna í frystihúsinu strax eftir fermingu. Nú þykir það kannski ekki nógu gott og talað um barnaþrælkun. En það var alltaf vel litið eftir þeim og þau fengu ekki að vinna nema tak- markaðan tíma. Þau lærðu að meta aga í vinnunni og mæta á réttum tíma. Foreldr- arnir eru alltaf mjög nálægt ef eitthvað bját- ar á. Einnig læra börn og ungmenni að um- gangast fólk á öllum aldri, sem ég held að sé hverfandi hér í Reykjavík í dag.“ Öruagari um stelpurnar í ReyRjavík Finnst þér ekki erfitt að koma með unglinga til Reykjavíkur eftir að hafa búið lengi f litlu þorpi? „Það hljómar kannski undarlega en ég er miklu öruggari um þær í Reykjavík en fyrir vestan. Fyrst og fremst vegna þess að ég hafði alltaf áhyggjur af þeim þegar þær óku á milli fjarðanna. Einnig breyttu snjóflóðin miklu í mínum huga. Áður fannst mér snjór- inn notalegur en eftir að flóðin féllu stóð mér ógn af honum. Hér geta þær sinnt áhuga- málum sínum, sem eru mörg, og það er holl afþreying í boði sem allir geta nýtt sér sem vilja. Það er jafnvel algengara að unglingar byrji ungir að drekka á þessum smærri stöð- um, einfaldlega vegna þess að þar er fátt við að vera.“ Hvað hefur valdið þessum fólksflótta frá smærri byggðum? Er það kvótaieysi eða eitthvað annað? Elín: „Þetta er mikið til kvótabreytingin. At- vinnumöguleikar eru ekki miklir utan fisk- vinnunnar. Mér fannst fiskvinna aldrei leiðin- leg en ég var orðin þreytt á henni. Svenni er Vöggusængur, vöggusett. Póstsendum &ði# SkólavörðustÍK 21 Sími 551 4050 Reykjavík aftur á móti fæddur og uppalinn á Súganda- firði og við vissum að þessi breyting yrði erf- ið fyrir hann. Reyndar er hann sá síðasti úr sinni fjölskyldu sem flytur burt. Fyrir utan kvótaleysi er fólk að flytja vegna skólagöngu barna eða sækja í aðra þjónustu sem aðeins er í boði hér fyrir sunnan. Það er mjög al- gengt að mennirnir séu eftir á stöðunum til að halda áfram að vinna við sitt en eiginkon- urnar fari suður með börnin í nám. Ég held að það sé ekki gott fyrir fjölskyldur að slíta þær svona í sundur. Það kom líka til greina að stelpurnar færu einar suður en mér fannst það ekki rétt. Þótt þær séu hálffull- orðnar þurfa þær að hafa einhvern til staðar á heimilinu. Ég hef rætt þetta mál við náms- ráðgjafa sem hefur sagt mér að foreldrar hafi keypt íbúðir fyrir börnin til þess að þau geti gengið í skóla í Reykjavík. Síðan hefur komið á daginn að mörg hafa ekki þann þroska sem þarf til að standa á eigin fótum og hafa flosnað upp úr námi. Ég held að það sé gott fyrir unglinga að vita af því að það sé einhver sem fylgist með þeim og veiti þeim aðhald og stuðning." Berglind: „Þessi þróun í búsetu er vfðar en hérlendis, til dæmis í nágrannalöndum okk- ar. Fólk hefur séð miklu meira í dag en áður. Þrátt fyrir veðurfræðilega einangrun fyrir vestan erum við ekki útilokuð frá umheimin- um. Við höfum sjónvarp, útvarp og Netið. Þegar við bjuggum fyrir vestan sóttum við í samskipti á irkinu, við höfum varla kveikt á tölvunni síðan við fluttum til Reykjavíkur. Einnig má benda á að það þykir sjálfsagt að ungt fólk í Reykjavík fari utan til framhalds- náms og margir koma aldrei heim aftur. Þetta er svona í öllum löndum en af því fólk flytur vestan af fjörðum er allt í uppnámi. Um miðja öldina var kannski ekki svo mikill munur á milli öflugra bæja úti og landi og Reykjavík. En munurinn er rosalegur í dag. ísafjörður á að vera höfuðstaður Vestfjarða en samt er engin fjölbreytni þar.“ Elín: „Þegar byggðarlögin voru öll sameinuð undir ísafjarðarbæ átti vegur ísafjarðarkaup- staðar að verða meiri. Hins vegar finnst mér bæjarfélagið alls ekki hafa staðið sig nógu vel, hvorki í sambandi við íþróttirnar né verslun og aðra þjónustu." Berglind: „Fyrir vestan er hægt að velja um tvennt að loknum grunnskóla - menntaskól- ann eða fiskinn. Margir krakkar vita ekki einu sinni af þeim möguleikum sem bjóðast til náms hér á höfuðborgarsvæðinu. Skóla- yfirvöld kynna þeim ekki alla þá möguleika sem eru í boði í landinu. Þegar við lukum grunnskólanum fengum við aðeins kynningu á MÍ og búið. Núna er ekki eins mikil framtíð í útgerð og fiskvinnslu eins og var hér áður fyrr. Hvað annað er eftir?“ Ósanngjarnt að krefjast þess að við komum til baka að loknu námi Nú klárar þú skóla hér en heldurðu að þú farir aftur vestur? Berglind: „Ég veit ekki einu sinni við hvað ég ætti að vinna. Mér hefur alltaf þótt ósanngjörn sú krafa, sem skólayfirvöld þar hafa haldið fram við útskriftir, að nemendur ættu að koma aftur til byggðarlagsins að loknu framhaldsnámi. Er það sama sagt við krakkana sem útskrifast í Reykjavík ?„Þið verðið að koma aftur til Reykjavíkur og halda uppi byggð hér.“ Hvað finnst ykkur um umræðuna í þjóðfé- laginu um ástandið í þessum byggðarlög- um? Berglind: „Það er alltaf verið að tala um „landsbyggðarfólkið" eins og eina heild. Eins og okkur langi allt það sama. Við erum bara einstaklingar með mismunandi þarfir og hugmyndir um lífið. Þetta er eins og þeg- ar talað er um „unglingana" eins og þeir séu allir eins. Sjáðu Moggann til dæmis. I blað- inu er sérsíða sem heitir Akureyri. Næst á eftir kemur svo síða sem kallast lands- byggðin. Allar hinar síðurnar hljóta þá að vera um Reykjavík. Þetta er eins og verið sé að flokka fólk eftir trú eða litarhætti. Það eina sem allir vita um Vestfirði er snjóflóð og að allt sé á hausnum. Það er aldrei talað um það jákvæða starf sem unnið er í þessum byggðarlögum." Elín: „Það má til dæmis nefna að það er mjög öflugt tónlistarlíf á ísafirði. Tónlistar- skólinn er mjög góður og rekinn af sama metnaði hjá Sigríði Ragnars og faðir hennar gerði á sínum tíma. Allar dætur okkar fóru í tónlistarnám vegna þess að rekið er útibú frá skólanum á Suðureyri. Kennarar eru mjög góðir og koma víða að úr heiminum. Svo er tónlistarnámið metið til eininga í menntaskólanum, sem er mjög jákvætt." Finnst ykkur að eigi að halda þessum byggðum við? Elín: „Þar sem fólk vill búa á að leyfa því að vera. Meðan atvinna helst og kvótinn skerð- ist ekki meir, á að gera fólki kleift að búa á þessum stöðum. Það sem heldur í fólk er að eignir þess eru nánast verðlausar og óveðhæfar. Samt er alltaf til í dæminu að fólk flytji frá höfuðborgarsvæðinu út á land þar sem ágæta vinnu er að hafa. Forsenda byggðar í landinu er fjölbreytt og örugg at- vinna.“ 4D

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.