Vera - 01.06.1999, Page 45
mér. Ég er með ritaramenntun en langar
ekki að vinna við tölvu allan daginn. Sl.
haust byrjaði ég í Fiskvinnsluskólanum en
gafst upp eftir mánuð. Ég gat bara ekki set-
ið yfir bókum í átta tíma á dag, vitandi það
að ég myndi skulda tvær milljónir í námslán
að námi loknu, auk þess sem starfið sem
byði mín yrði mest unnið við skrifborð. Ég
fékk þá vinnu við aðhlynningu á Hrafnistu
og hef hærri laun en áður vegna vaktanna.
Það hefur reyndar verið erfitt vegna barn-
anna, en þau eiga góða föðursystur og
þetta hefur bjargast. Ef hennar hefði ekki
notið við hefði ég aldrei getað tekið þessa
vinnu. Hún hefur haft þau aðra hverja helgi
þegar ég er að vinna. Mér hefur alltaf líkað
vel að vinna með gömlu fólki, var bara 16
ára þegar ég fór fyrst að vinna á sjúkrahúsi,
og hefði átt að ná mér í sjúkraliðamenntun
fyrir löngu. Nú ætla ég að byrja á fornámi
sjúkraliða í Fjölbrautaskólanum I Breiðholti I
haust og taka þessu með ró, vinna og
halda áfram að taka sundtökin því ég neita
að sökkva."
Ólífuolía
Það er ekki ýkja langt síðan ólífuolia kom á
markað hérlendis en hún er ómissandi í
matargerð Miðjarðarhafslanda. Á íslandi
hefur matargerðarlist framandi landa notið
vaxandi vinsælda undanfarin ár. Óhætt er að
fullyrða að ólífuolía hafi náð útbreiðslu hér á
tandi og á sumum heimilum hefur hún alveg
tekið við af smjörlíkinu, nema til baksturs.
Smjörlíki var fundið upp í Frakklandi árið
1869 og var notað sem viðbit í stað smjörs
°9 til steikingar. Það náði strax mikilli út-
breiðslu meðal hinna efnaminni í Evrópu og
Ameríku og á Islandi gekk það fyrst undir
nafninu margarín. Við sem komin erum á
miðjan aldur og þeir sem eldri eru muna vel
Þá tíð þegar matur var brasaður og steiktur
UPP úr smjörlíki, eða smjöri til hátíðarbrigða.
Umræða um heilsurækt og mataræði hefur
stóraukist undanfarin ár. Ólífuolían þykir afar
bragðgóð, hún inniheldur líka mikið að ein-
ómettuðum fitusýrum og þykir hollari en
tiest annað feitmeti. I Miðjarðarhafslöndun-
um eru hjartasjúkdómar fátíðari en í Norðu-
Bróðir, líttu þér nær
Eftir að skóla lauk fór sonur Guðmundu í
heimsókn til foreldra hennar og fjölskyldu
sinnar á Kópaskeri. Á meðan flutti mamma
hans í fjórða skipti á tæpum fjórum árum.
„Flutningarnir hafa oft verið skrautlegir en
þessi var flottastur," segir hún og hlær.
„Vinirnir eru orðnir hálf flóttalegir þegar
flutning ber á góma og það tekur í budd-
una að leigja bíl til verksins. En aldrei er
maður alveg einn því tvær góðar vinkonur
mínar létu sig ekki muna um að bera með
mér allt klabbið og stafla á kerru sem við
drógum á lánuðum bíl, fimm ferðir á milli
hverfa. Samtals eigum við 10 börn, allar
einar að basla og vitum að ef við hjálpum
okkur ekki sjálfar, gerir það enginn.
Svona upp á gálgahúmorinn þá gleymd-
ist að nefna til sögunnar einn fjölskyldu-
meðlim sem ekki var sendur norður í land í
þessum flutningum frekar en hinum og er
orðinn ansi illa farinn, blessaður karlinn.
Hann heitir Jakob Frímann, kallaður Kobbi.
Nú er svo komið að hann þyrfti áfallahjálp,
Evrópu. Telja vísindamenn að neysla ólífu-
olíu eigi þar drjúgan hlut að máli.
í Matarást, alfræðibók um mat og matar-
gerð eftir Nönnu Rögnvaldardóttur, er að
finna mikinn fróðleik um ólífuolíu. Ólífutréð
hefur verið ræktað við Miðjarðarhafið óra-
lengi, líklega í a.m.k. sex þúsund ár. Ólífur
hafa gegnt miklu hlutverki í mannlífi og
efnahagslífi á því svæði allar götur síðan.
Oft er minnst á ólífur í Biblíunni, meðal ann-
ars þegar Nói sendi dúfuna frá örkinni til að
athuga hvort flóðinu væri að linna, þá sneri
hún aftur með ólífugrein í nefinu. Ólífutré
þrífast ágætlega í grýttum og ófrjóum jarð-
vegi og geta þau orðið mörg hundruð ára
gömul. Til eru margar gerðir af ólífum en
allar eru þær grænar framan af og verða
svartar þegar þær þroskast.
Olía hefur verið unnin úr ólífum í a.m.k.
átta til tíu þúsund ár og hefur meðal annars
verið notuð sem Ijósmeti og til að nudda og
smyrja líkamann með. Á Norður-Ítalíu
þekktist hún lengst af bara á borðum
blessaður, því hann er varla farinn að rata
um húsakynnin þegar hann flyst á nýjan
stað. Ef blessuðum fuglinum líður svona af
flakkinu, hvernig komast þá mannssálirnar
í gegnum þetta?" spyr Guðmunda og vill
bæta einu við í lokin:
„Mér hefur að undanförnu dottið í hug að
fljúga til fyrrum Júgóslavíu, fara í röðina,
reyna að komast til íslands og fá íbúð og
skjól í allri velmeguninni - klapp á sálina og
koss á hjartað. Með fullri virðingu fyrir
raunum þessa fólks og skilningi á hroka
okkar íslendinga, segi ég: Bróðir, líttu þér
nær. Það geysar líka stríð á íslandi. Stríð
mismununar og ranglætis þar sem land-
sauðurinn fer bara í hendur fárra manna og
þeim er sama um þá sem minnst mega
sín. Ég get bara ekki stillt mig því ég veit að
á íslandi ríkir fátækt og vesöld sem stjórn-
völd kæra sig ekkert um að vita af.“
EÞ
heldra fólks og það var ekki fyrr en um miðja
þessa öld sem almennt var farið að nota
hana í eldamennsku þar um slóðir.
Olían er unnin úr svörtum, fullþroskuðum
ólífum. Er hún mjög misjöfn að gæðum og
fara þau eftir tegund, jarðvegi, loftslagi,
uppskerutíma og meðhöndlun við vinnslu.
Hin hefðbundna aðferð við vinnslu á olíunni
er að merja ólífur milli valsa úr steini og
pressa síðan olíuna úr maukinu undir fargi.
Þetta er nefnt kaldpressun og skilar bestum
árangri. Bragðbest þykir kaldpressuð jóm-
frúarolía (extra virgiri), en sýrustig hennar á
að vera 1 % í hæsta lagi. Hún er auðþekkjan-
leg á græna litnum. Jómfrúarolía er einkum
notuð í salöt og ýmsa pasta- og grænmetis-
rétti, en síður til steikingar. Þá er á markað-
inum gul ólívuolía sem merkt er puro (hrein)
eða einungis ólífuolía (olive oil). Vinnsla
hennar fer þannig fram að afgangsólífur úr
kaldpressun eru hitaðar og pressaðar enn
meira. Er hún ekki talin jafn holl og jómfrúar-
olían. Hentar þessi olía einkum til steikingar.
í réttum frá Miðjarðarhafinu er ólífuolia not-
uð á ótal vegu. Til steikingar.'sem bragðgjafi,
í ýmsar sósur og í kryddolíu.
Á heimasíðu Heilsuhússins www.heilsa.is
er að finna uppskriftir afréttum þar sem
ólífuolía gegnir stóru hlutverki.
Heilmildir: MATARÁST, eftir Nönnu Rögnvaldardóttur,
Iðunn 1998, bls. 420-422, og heimasíða Heilsuhúss-
ins.
vsv
45