Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1916, Page 12

Freyr - 01.01.1916, Page 12
FREYR. 6 arhreppi í Strandasýslu, Dalasýslu, Snæíells- nessýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og Kjós- arsýslu. Búnaðarnámsskeið voru haldin þetta ár, að Eiðum, 1.—6. febr., Blönduósi,\8.—13.marz, Hól- um í Hjaltadal, 22.—27. s. m. og við Laxárbrú í A.-Skaftafellssýslu, 28. apríl til 1. mai. Nám- skeið þessi munu haía sótt um 600 manns alls, og fluttir voru á þeim 98 fyrirlestrar. — Þá var haldið námsskeið í Borgarnesi 6.—12. apríl fyrir konur og voru þær um 120 alls, er sóttu það. Engar breytingar hafa orðið á búnaðar- skólunum eða kennendunum við þá, nema hvað Hólmjárn búfræðisk. Jósefsson kendi og kennir á Hóium í stað föður síns, er situr í hinni svo nefndu launanefnd. Búnaðarsamböndin eru og hin sömu. i?ar hefir heldur engiu breyting orðið önnur en sú, að samband Dala- og Snæfells- sýslu hefir kosið Magnús hreppstj. Friðriksson á Staðarfelli fyrir formann í stað PálsV.Bjarna- sonar sýslumanns í Stykkishólmi, er skoraðist undan kosningu. Alþingi það 41. í röðinni og 26. löggjafar- þingið, var í sumar. Búnaðarþing það 9. i röðinni var einnig haldið. Hefir þessara þinga áður verið getið hér í blaðinu. Skal því að eins við bætt hér að búnaðarþingið samþykti, að ráðinn skyldi sérstakur maður, sem ráðunautur í sauðfjár- rækt. Bcekur um landbúnað er komu út á árinu auk gömlu timaritanna, Búnaðarritsins (29. árg.) Freys (12. árg.) og Tímaritsins um kaupfélög og samvinnufélög voru þessar: Garðrœkt eftir Benedikt Kristjánsson fyrrum skólastjóra á Eið- um, Leiðbeiningar um hœnsnarœkt eftir Einar garðyrkjumann Helgason, Kynbcetur sauðfjár eftir Jón H. Þorbergsson fjárræktarmann og Frá Skotlandi eftir sama. Enn má nefna bók- ina: Hestar og reiðmenn á íslandi, eftir George H. F. Schrader. Hún er að vísu sögð prentuð' 1913, en kom ekki á bókamarkaðinn fyr en k þessu ári. Sigurður Sigurðsson. Öðalsbændur og leiguliðar. Óðalsbóndi er sá kallaður, sem sjálfur á jörð^ ina, sem hann býr á. Hann, sem ýmist hafðí verið svo heppinn að fá jörðina að erfðum, eða- þá aflað sér þess lánstrausts, er hann þurfti til að geta fest kaup á henni. En ekki er æfin- lega mikil eign bak við sum óðalsbændaheitin .- Og þessir inenn voru og eru skrifaðir „óðals- bændur“. En þvf eru þá leiguliðarnir ekki skrifaðir „leiguliðar". Er svo mikil minkun að því að vera leiguliði, að því sé þessvegna slept? Eg get engu svarað því, en mér finst það eng- in minkun. En eg býst við að öðrum finnist það og þvi er slept að skrifa leiguliði. I sjálfu sér er nú ekkert meira að vera „óðals- bóndi“ en „leiguliði". En margir halda að það sé skilyrði fyrir að menn bæti jarðir sínar, að þeir séu óðalsbændur.-----„Yelæruverðugur herra prestur séra X" var orðinn óðalsbóndi, en titl- inum þar er þó slept. Þegar búið var að- ákveða að prestssetrið, sem hann sat á, ætti að leggjast niður, og brauðið að honum látn- um að skiftast milli tveggja nábúapresta, hafði hann keypt jörðina. Heyrt hefi eg að hún hafi ekki verið dýr, og þó verið metin tvisvar áð- ur honum samdi við stjórnarráðið. En nú átti hann hana. Eg man það líka, að það var þessi prestur, sem sagði við vin sinn, tveim árum eftir að kaupin voru afgerð: „Hefði eg keypt jörðina mína fyr, þá vœru fcerri þúfur hérna í túninu núna“. Það er almenn trú hér á landi, að allir hugsi eins og þessi prestur. Þess vegna eru þjóð-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.