Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Side 16

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Side 16
14 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur Sálfræðingar og fæðingarhjálp Á undanförnum árum hefur mikil þróun átt sér stað hvað’varð- ar allan aðbúnað á fæðingardeildum Norðurlandanna. Á hinn bóginn virðist sem að á íslandi hafi áherslan nær eingöngu verið lögð á læknisfræðilegar og tæknilegar framfarir, en sálfræðilegri þekkingu á áhrifum meðgöngu og fæðingar hefur verið lítill gaumur gefinn. Enginn mun þó mæla því í mót, að meðganga og fæðing barns mótar allt líf fjölskyldunnar. Fjöldi rannsókna (N. Uddenberg, E. Lagerkrantz, L. Brudal o.fl.) hafa sýnt fram á nauðsyn þess að líta á sálræna og líkamlega líðan sem heild og lagt áherslu á að mæðraskoðun, fæðingardeildir og ungbarnaeftirlit komi á sam- vinnu sín á milli til stuðnings fjölskyldum á þessu timabili. Sam- kvæmt reynslu starfsfólks er oft hægt þegar í mæðraskoðun að sjá ef eitthvað er að hjá móður — og vitað er, að ef ekkert er gert til aðstoðar, verða erfiðleikarnir enn meiri eftir fæðingu barnsins sem aftur getur haft djúpstæð áhrif á innbyrðis samband foreldr- anna og tengsl þeirra við barnið. Sálfræðiþjónusta Hér á landi hefur þjónusta sérfræðinga við fjölskyldur á þessu tímabili takmarkast við meðferð alvarlegri geðrænna einkenna t.d. vegna fæðingarpsychosis móður. Sú spurning hlýtur að vakna, af hverju sálfræðingar komi ekki fyrr til aðstoðar á þessu tímabili, þar sem menntun þeirra hefur að grunni sálræna þróun mannsins, viðbrögðum hans við álagi og þekkingu á aðferðum til að takast á við erfiðleikana.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.